Mánudagur, 27. október 2008
Árlegur viðburður
Þetta hef ég minnst á áður og kem örugglega með að minnast á aftur...
Plís, bíðið með jólaauglýsingar að minnst kosti fram yfir miðjan nóvember.
Bloggar | Breytt 28.10.2008 kl. 09:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 23. október 2008
Þetta vildi ég sagt hafa.
Þegar einhver segir það sem ég er algjörlega sammála, hef ég tekið mér það bessaleyfi að birta það hér. Ég hef getið þess hver skrifar eða segir þá hluti, en nú ber svo við að ég fékk tölvupóst sem ég er svo hjartanlega sammála og ætla að birta, en því miður veit ég ekki hver er höfundurinn. Voan að mér fyrirgefist það.
Hvern fjandann er fólkið að meina?
Starfs míns vegna neyðist ég til að lesa kreppufréttir daginn út og daginn inn.
Auðvitað finnst mér þetta alveg hræðilegt og allt það en það er eitt sem ég skil ekki.Flestir tala um að nú sé kominn tími til að sinna börnunum sínum, fjölskyldu og vinum.
Hvað í andskotanum heldur þetta fólk að íslenskur almenningur hafi haft fyrir stafni?
Skyldi það ætla að við höfum verið viti okkar fjær og stigið trylltan dans í
kringum gullkálfinn á meðan börnin okkar, vinir og ættingjar lágu óbættir hjá garði? Umkomulausir og einmana þar sem enginn hafði nokkurn tíma fyrir þá?
Ég sjálf og allir sem ég þekki hafa nú verið uppteknir af því að vinna fyrir sér, að vísu ekki að vinna fyrir bankastjóralaunum heldur bara svona til að eiga fyrir salti í grautinn.Þessi sauðsvarti almúgi sem ég þekki hefur bara hugsað vel um börnin sín, takk fyrir.
Hringt í vini og ættingja og heimsótt þá jafnvel ef sérlega vel hefur legið á fólki.
Mér finnst þessi umræða gjörsamlega fáránleg. Það er verið að slá ryki í augun á okkur með því að við getum nú gert svo margt gott og nytsamlegt þótt búið sé að ræna okkur aleigunni og marga starfinu. Nú þakkar maður fyrir það helst að hafa þó vinnu. Það er verið að
koma inn hjá okkur samviskubiti, að við höfum nú ekki hugsað sem best um þá sem næst okkur standa.Nú þegar við erum orðin atvinnulaus og blönk getum við allavega gefið okkur tíma að sinna börnunum í stað þess að æsa okkur yfir því að það sé búið að svipta okkur aleigunni og atvinnunni.
Við eigum nefnilega ekkert að vera að velta okkur upp úr því hver sé ástæðan fyrir þessum hremmingum, við erum hvort eð er svo vitlaus að við munum aldrei geta skilið að þetta var eiginlega alveg óvart og mönnum í útlöndum að kenna. Hvað er svo sem að marka einhverja aumingja sem eiga ekki einu sinni part í þyrlu?
Ég fyrir mína parta ætla að halda áfram að sinna börnunum mínum, ættingjum og vinum. En ég ætla líka að vera reið, alveg fjúkandi vond, og ekki hætta fyrr en ég hef fengið svör við því hvernig í andskotanum allt gat farið hér til helvítis á einni nóttu.
Afsakið orðbragðið.
Kona
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þriðjudagur, 21. október 2008
Nýi Seðlabanki Íslands?
Ætli það styttist í að skilanefnd yfirtaki Seðlabankann og við fáum bara Nýja Seðlabanka Íslands?
Er sá gamli hvort sem er rúinn öllu trausti?
Er það ekki eina lausnin á þessu öllu. Það er hvort sem er búið að sigla þessu öllu í kaf. Bara skella nýrri kennitölu á þetta alltsaman og byrja upp á nýtt.
Virðingafyllst,
Nýi Heiðar Birnir
kt. 211008.1230
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 20. október 2008
Er það ekki?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 17. október 2008
Í vikulokin.....
Maður í loftbelg sá að hann var að missa hæð. Hann tók eftir konu á jörðinni, lækkaði flugið aðeins meira og kallaði til hennar: Afsakið, geturðu hjálpað mér? Ég lofaði að hitta vin minn fyrir klukkutíma, en veit ekki hvar ég er.
Konan svaraði: Þú ert í loftbelg sem svífur í 10 metra hæð, milli 40. og 41. Norðlægrar breiddargráðu og milli 59. og 60. Vestlægrar lengdargráðu.
Þú hlýtur að vinna við tölvur, sagði loftbelgsmaðurinn.
Það geri ég, svaraði konan. Hvernig vissirðu það ?
Nú, svaraði maðurinn, allt sem þú sagðir mér er tæknilega rétt, en ég hef ekki hugmynd um hvaða gagn er af þeim upplýsingum, og reyndar er ég enn villtur. Satt að segja þá hefur ekki verið mikil hjálp frá þér. Ef eitthvað er þá hefurðu helst tafið ferð mína.
Konan svaraði: Þú hlýtur að vinna við stjórnun.
Já, sagði maðurinn. En hvernig vissir þú það?
Nú, sagði konan, þú vissir hvorki hvar þú ert né hvert þú ert að fara. Eintómt loft hefur komið þér þangað upp sem þú ert. Þú gafst loforð sem þú hefur ekki hugmynd um hvernig á að efna og þú ætlast til þess að fólk fyrir neðan þig leysi þín vandamál. Reyndar ertu í sömu stöðu og þegar við hittumst, en nú er það einhvern veginn mín sök.
Myndin tengist alls ekki sögunni. Eða?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 16. október 2008
Viltu koma út að leika?
Alveg bráðskemmtilegt leikfang hér á ferðinni...
Svo eru það sumer sem kunna að koma orðum að hlutunum og eru ekkert að skafa utan af þeim. Þessi er einn af þeim.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 15. október 2008
ERT'EKKI AÐ DJÓKA
Ég rakst á þessa frétt á visir.is. Fyrirtækið sem Fl-grúpp og Fons voru að selja sín á milli, svona til að hækka verðmæti þess upp úr öllu.
Pálmi Haraldsson er nú opinn fyrir sölu á hluta af Sterling-flugfélaginu. Þetta kemur fram í viðtali Jyllands-Posten við Pálma.
Pálmi hafnar því að Sterling eigi í erfiðleikum en segir að hann vilji gjarnan fá nýja fjárfesta inn í félagið til að styrkja rekstur þess.
Fram kemur í máli Pálma að Sterling sé skuldlaust, það er skuldar engum öðrum en honum, og sé því ekki komið upp á náð og miskunn banka sem eigi í erfiðleikum.
Pálmi sem átt hefur Sterling í ein fjögur ár segir að nú um stundir séu erfiðleikar upp á borðinu í rekstri flestra flugfélaga heimsins. Hann hafi hinsvegar fulla trú á framtíð félagsins.
Hann vill samt ekki útiloka samruna við annað flugfélag eða aðkomu nýrra samstarfsaðila. "Það er þörf fyrir sameiningar í bransanum," segir Pálmi.
Ég bara er ekki að fatt'etta...
Mæli með Youtube..
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 10. október 2008
Oops!... I did it again...
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 9. október 2008
Lögmál Murphys
Eins einfalt og það getur verið:
Það sem aldrei hefur gerst, gerist aftur.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 8. október 2008
Fokk - að hætti Baggalúts
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)