Jólakveðja

GLEÐILEG JÓL 

MERRY CHRISTMAS 

FELIZ NAVIDAD 

GOD JUL


Ísland er land þitt

Ísland er stjórnlaust, því enginn því stjórnar
Ísland er fleki af dýrustu gerð
Ísland er landið sem Flokkurinn fórnar
Ísland á reki í sjónum þú sérð

 

Ísland í forsetans orðanna skrúði
Ísland sem bankana auðmönnum gaf
Ísland sem sonanna afrekum trúði
Ísland er land sem á verðinum svaf

 

Íslensk er þjóðin sem allt fyrir greiðir
Íslensk er krónan sem fellur hvern dag
Íslensk er höndin sem afvegaleiðir
Íslensk er trúin: "Það kemst allt í lag"

 

Íslensk er bjartsýna alheimskuvissan
um íslenskan sigur í sérhverri þraut
Íslensk er góðæris átveisluhryssan
sem íslenskan lepur nú kreppunnar graut

 

Ísland er landið sem öllu vill gleyma
sem Ísland á annarra hlut hefur gert
Íslenska þjóð, þér var ætlað að geyma
hið íslenska nafn sem þú hefur nú svert

 

Íslandi stýra nú altómir sjóðir
Ísland nú gengur við betlandi staf
að Íslandi sækja nú alls konar þjóðir
Ísland er sokkið í skuldanna haf

 
Höf: Hallgrímur Helgasson

...


Mótmæli

Ég er ekki dúer, frekar meira svona þínker.  Ég hef viðrað það að mótmæla kröftuglega fyrir utan sendiráð Breta hér á landi.  Mótmæla því að á okkur hafi verið sett hryðjuverkalög og fjármunir Íslendinga frystir þar í landi.  Meðal annars eru fjármunir fiskútflytjenda frystir þar ásamt öðru.  Þeir og þau sem ég hef rætt um þessa hugmynd mína hafa öll dregið úr þessu.  Ekki þótt það málefnalegt af okkur að ónáða breska sendiherrann þannig.

Í dag voru fjölmenn mótmæli við sendiráð okkar í Brussel.  Þar þykir það alveg sjálfsagt að mótmæla við sendiráð. 

Ég er ánægður með þau kröftugu mótmæli sem fram fara á Austurvelli núna - en ég hefði viljað sjá allt það fólk sem þar er samankomið ganga fylktu liði að sendiráði Breta og mótmæla þar kröftuglega þeirri yfirgengilegu valdníðslu sem þeir hafa sýnt okkur.   


Björn Bjarnason, Björgólfur Gumundsson og Davíð Oddsson

BjörgólfuMér þótt Björgólfur komast heldur illa frá viðtalinu í Kastljósinu nú í kvöld.  Og raun er grátlegt að heyra í hve mikilli afneitun hann er. 

Hann endaði svo viðtalið með því að segjast ekki vita hvoru megin striksins hann lendir.  Vera ekki viss hvort hann sé í skuld eða ekki.

Hann hræðist það heldur ekki, hefur marga fjöruna sopið.  Eins hljóti hann að geta fundið sér eitthvað að gera... vinna við einhver góðgerðamál og svoleiðis... örugglega fínt upp úr því að hafa.

 

 

 

Mynd: news.bbc.co.uk

Björn Bjarnason er ekki í miklu uppáhaldi hjá mér, en ég kíki annað slagið á bloggið hans, líkt og annarra.  Um daginn rifjaði hann upp viðtal við Guðmund Ólafsson hagfræðing.  Það sem mér þykir einna merkilegast við þetta er að blaðamenn í dag eru að láta ráðherra, sem ég hélt að hefði meir en nóg að gera, koma með almennileg skúbb á meðan þeir pjakkast í sama farinu. Eða kannski hentar ekki að rifja þetta upp?  ég veit það ekki en tek mér bessaleyfi að birt það.  Vona að mér verði fyrirgefið:

Þekkingarvald.

Eðlilegt er, að víða sé leitað fanga, þegar reynt er að skýra það, sem hér hefur gerst. Þekkingarvaldið byggist ekki síst á titlum þeirra, sem við er rætt, hvort heldur þeir starfa hjá háskólum eða greiningardeildum bankanna. Sú spurning vaknar miðað við allt, sem á hefur gengið, hvort þessir titlar eða tengingar við einstaka stofnanir dugi lengur.

Einn þeirra, sem hefur látið að sér kveða á eftirminnilegan hátt, er Guðmundur Ólafsson hagfræðingur, sem bæði kennir við Háskóla Íslands og Háskólann á Bifröst. Jóhann Hauksson á dv.is ræddi við hann 17. nóvember 2007 og þá birtist þetta á dv.is

„Guðmundur Ólafsson hagfræðingur segir ekki sjá betur en að bandaríski hagfræðingurinn Arthur B Laffer hafi í fyrirlestri hér á landi fyrir helgina slegið af kenningu Davíðs Oddssonar seðlabankastjóra um að þjóðin væri á bjargbrúninni vega skuldasöfnunar fyrirtækja og einstaklinga erlendis. „Þetta er bara órökstutt bull. Það veit enginn almennilega hvað við er átt með að þenslan sé of mikil og að hagkerfið geti ofhitnað. Laffer blés af bjargbrúnarkenningu Davíðs Oddsonar seðlabankastjóra heyrðist mér. Hún felst í því að bankastjórinn hefur miklar áhyggjur af skuldasöfnun almennings og fyrirtækja í útlöndum og að við séum komin að mörkum þess sem þjóðfélagið þolir í þeim efnum. Það var í fyrsta skipti í veraldarsögunni sem seðlabankastjóri kvartaði yfir því um daginn að almenningur keypti leikföng,“ segir Guðmundur. Nánar er rætt við Guðmund um þetta í nýju viðtali hér á vefsíðu dv.is.“

Í viðtali Jóhanns við Guðmund stendur meðal annars:

Laffer hélt því fram á fyrirlestri hér á landi fyrir helgina að erlend skuldasöfnun og mikill viðskiptahalli væri ekkert vandamál. Hvað segir þú um það?

Þetta er bara það sem ég hef sagt í mörg ár. Ég skrifaði grein í Morgunblaðið fyrir nokkrum árum um illkynja og góðkynja viðskiptahalla. Það er ekkert að því að almenningur og fyrirtæki taki lán í útlöndum og myndi viðskiptahalla og erlendar skuldir. Einstaklingar og fyrirtæki telja vitanlega að lánið gefi meira af sér en sem nemur vöxtunum sem greiða þarf af lánunum. Er ekki allt í lagi að einstaklingar og fyrirtæki dragi hingað erlent fjármagn til að láta það vinna hér á landi? Svo er hitt að fari fyrirtæki á hausinn þá er það ekki vandamál alls þjóðfélagsins heldur viðkomandi fyrirtækis og erlendra lánardrottna.

Er skárra að lána einstaklingum og fyrirtækjum en ríkinu?

Skuldasöfnun ríkisins er miklu hættulegri vegna þess að ríkið hirðir ekki í sama mæli um að taka lán til arðbærra hluta. Skuldsett ríki er hættulegt því það hefur tilhneigingu til að velta vandanum yfir á almenning með aukinni verðbólgu.

Erum við þá ekki á bjargbrúninni þótt þjóðin skuldi mikið og viðskiptahallinn sé geigvænlegur?

Nei það er bara órökstutt bull. Það veit enginn almennilega hvað við er átt með að þenslan sé of mikil og að hagkerfið geti ofhitnað. Þetta er bara vitleysa. Laffer blés af bjargbrúnarkenningu Davíðs Oddsonar seðlabankastjóra heyrðist mér. Hún felst í því að bankastjórinn hefur miklar áhyggjur af skuldasöfnun almennings og fyrirtækja í útlöndum og að við séum komin að mörkum þess sem þjóðfélagið þolir í þeim efnum. Þetta er í fyrsta skipti í veraldarsögunni sem seðlabankastjóri kvartar yfir því að almenningur kaupi leikföng. “

Einu sinn, fyrir löngu, var ég mikill Davíðskall og fylgjandi sjálfstæðisflokknum, en ég tel mig, sem betur fer, hafa þroskast.  Ég er á því að hann ætti að segja af sér sem bankastjóri ásamt hinum bankastjórum seðlabankans, þó ekki sé nema bara til að skapa ró um bankann.  En er ekki rétt að halda þessu til haga?


Rjúpur

Fékk senda frábæra mynd.

rjupur.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

Steinunn mágkona tók þessa mynd fyrir utan heima hjá sér á Flúðum.  Ég hefði alveg viljað hafa hendur í fjöðrum þessara fugla.


Vinstri græni kallinn

Merkilegt hvað Steingrímur Sigfússon hefur breyst síðustu daga.  Hann er allur mun rólegri en áður... hættur að æsa sig upp úr öllu valdi þegar hann les ríkisstjórninni pistilinn.

Rjúpnaveiðar og fleira

Rjúpnaveiðitímabilið hófst fyrir rúmri viku síðan.  Strax fyrsta daginn gekk ég til rjúpna.  Sá þá eitt stykki en aðeins og seint.  Eins kom ég augu á endur, en þær komu ekki í færi.  Dagurinn var frábær og þá strax hlakkaði ég til næstu helgar.

Ég og sjúkraþjálfarinn minn erum ekki alveg par sáttir við bakið á mér.  Það er lítið að koma til.  Mér finnst eins og það sé bakslag í þessu.  Síðasti tími hjá honum var langur.  Hann endaði á því að setja mig í strekkbekk til að teygja aðeins á mér.  Ég var eins og ræfill á eftir.  Ég get þó gengið sæmilega uppréttur en langt í frá verkjalaus.

Á föstudaginn var James Bond þema hjá okkur í sölu- og markaðssviði VÍS.   Mikið um dýrðir og var þetta frábær uppákoma sem endaði svo með örlitlum bjór og keilu.  Við skemmtum okkur konunglega.    

Þessi helgi er búin að vera fín.  Í gær tókum við því eins róleg og mögulegt er og gerðum afskaplegaaves_rjupa.jpg lítið.  Það var gott. 

Í dag brunaði ég svo austur á Flúðir og gengum við svili minn til rjúpna með engum árangri.  Sáum ekki einn einasta fugl.  Það gerði svo sem lítið til því aðal tilgangurinn var að viðra hundinn Zorro... eða þannig. 

Ég er enn á því að reyna að veiða rjúpur í jólamatinn,  vonandi gengur það, hef þrjár helgar til að ná markmiðinu.  Er með einhverja staði í sigtinu.  Jafnvel að fara vestur í Djúp. 

Nú er bara að bíða næstu helgar.  Vonandi snjóar dálítið, sérfræðingarnir segja að þá komi hún neðar og verði ekki eins stygg. 

Þessa flottu mynd af rjúpukarra fann ég á síðunni aves.is Ljósmyndarinn heitir Jakob Sigurðsson. 


Sitt lítið af hverju

Þetta er búið að vera fín vika.  Ég mæti til sjúkraþjálfarans og hamast hann á bakinu á mér, og ég get alveg sagt það með sanni að þetta virkar.  Þó ég sé ekki verkjalaus þá líður mér mun betur og er nánast hættur að skakklappast um.  Það lítur því allt út fyrir að ég sleppi við uppskurð.  Það er gott.  Sem sagt allt á réttir leið.

Við Hlynur bróðir höfðum sett stefnuna á Akureyri um síðustu helgi.  Þar ætluðum við að vera í góðu yfirlæti hjá þeim Sigga bróður og Sigþóru mágkonu.  Við stefndum á svartfuglsveiðar í Eyjafirði en veðrið sett stórt strik í áætlanir okkar og fyrir rest fórum við ekki neitt.  Eigum það inni og stefnum á Akureyrarför fyrr en seinna.

Laugardaginn næsta, 1. nóvember hefst rjúpnaveiðitíminn.  Ég hlakka til.  Hingað til hef ég ekki getað státað af mikilli skotveiðimennsku, en nú skal verða breyting á.  Okkur langar nefnilega mikið í rjúpur um jólin.  Vonandi, tekst mér að ná í nokkur stykki í soðið.

Mæli með bloggi Láru Hönnu Einarsdóttur.  Kraftmikið og fær mann til að hugsa.


Loksins, loksins

Hún gladdi mig fréttin sem ég sá á vísir.is nú rétt áðan.  Loksins hefur íslenskur pólitíkus reynt að setja ofan í bresk stjórnvöld og sagt skoðun íslensku þjóðarinnar á aumingjalegri framkomu breskra ráðamanna.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband