Sameiningartákn þjóðarinnar, my ass

Ég hef verið að velta því fyrir mér annað slagið síðustu vikur, hvar forseti okkar, sameiningartákn þjóðarinnar, hefur haldið sig í þeim þrengingum sem á okkur dynja. org

Ef einhveratíma hefur verið þörf fyrir að einhver komi fram og vinni í því að sameina þjóðina, peppa hana almennilega upp er það núna.  En þá heyrist hvorki hósti né stuna frá Bessastöðum.

Það eina sem við heyrum af forsetanum er að það eigi að lækka launin hans um einhverjar krónur.  Þýðir það minnkað starfshlutfall?  Hefur ekki tíma í að vinna fyrir fólkið sem hann segist vera sameiningartákn fyrir?

Eftir að hafa rennt lauslega yfir upptalningu á heimasíðunni www.forseti.is er ég algjörlega sannfærður að við höfum ekkert við þetta embætti að gera.  Hægt væri að sameina þetta einhverju ráðuneytinu, til dæmis umhverfis, og spara þannig hellings pening og á sama tíma fengjum við mun meira út úr því.

Hvað hefur Ólafur Ragnar Grímsson gert sem forseti Íslands sem við erum stolt af og ánægð með?


Höfðatalan

Samkvæmt höfðatölunni margfrægu eru fallegustu konur heims frá Íslandi.
Samkvæmt þessar sömu höfðatölu eru sterkustu karlarnir frá Íslandi.
Samkvæmt einhverjum blabla tölum erum við hamingjusamasta og besta fólk í heimi.

Samkvæmt höfðatölunni mótmæla flestir hér á Íslandi.  6000 manna hópur sem kemur saman á Austurvelli á hverjum laugardegi samsvarar sex milljón manns myndu safnast saman fyrir framan þinghúsið í Washington og mótmæla.  Ég er sannfærður um að þingheimur þar tæki eftir því þar.  En hér á landi láta þingmenn eins og ekkert sé.

Ráðherrar hafa lýst undrun sinni á því að svona lagað (róstur og ólæti) skuli eiga sér stað hér á ÍSLANDI.  Ráðherrar og þingmenn gapa af undrun yfir því að fólk skuli vera rótækt og sé að gera eitthvað.  Ef við tækjum höfðatöluna margfrægu inn í þetta kæmi það mér ekkert á óvart þó mótmælin yrðu enn kröftugri en hingað til.

Erum við ekki bara eins eins og allt annað fólk.  Þegar mælirinn er fullur þá brestur stíflan.  Þessi læti eru bein afleiðing af því sem undan er gengin. 

Því miður þá er allsstaðar hægt að finna fólk sem vill ganga aðeins lengra og allsstaðar er hægt að finna fólk sem vill eyðileggja.  Það nýtir sér tækifærði núna.  Því miður. 


Óeirðalögregla hefur nú raðað sér framan húsið

Gerður var aðsúgur að Geir Haarde.

Greip lögregla til þess að draga upp kylfur sínar til og stugga fólki frá bílnum.

Um þúsund manns eru á svæðinu.

Hópi mótmælenda tókst að umkringja ráðherrabifreið Geirs H. Haarde forsætisráðherra nú fyrir stundu.

Það tók óeirðalögreglumenn nokkrar mínútur að ryðja mótmælendum úr vegi.

Helstu fréttir ... Svona er Ísland í dag.


Þegar frostið bítur kinn

Ágætis færi og fínt grip.  Er þó enn að velta fyrir mér nagladekkjum, en verðin á þeim eru einhvernvegin ekki í samræmi við budgetið í augnablikinu.

Tölurnar halda manni við efnið.
Tími:  46,08
Meðalpúls:  150
Hámarkspúls:  176
Brennsla:   673 

Kjúklinganúðlusúpa í kvöld, hreint lostæti.


Frost framundan?

Hjólaði í morgun.  Sæmilegasta færi og vel tekið á því. 

Tölurnar eru svona:
Tími:  46,07
Meðalpúls:  154
Hámarkspúls:  178
Brennsla:   699

Þetta er náttúrulega alltaf sama vegalengdin, um 12,5 km.  Ég er svona um 10 mínútum lengur í vetrarfærðinni en á marauðum gangstéttum og götum.  En þetta er líka meira krefjandi.

Vona að það haldist frost, fari ekki að hlána, þá er nánast ekki viðlit að hjóla nema vera á negldum dekkjum.  Það er að segja á meðan svellbunkarnir eru að eyðast.


Fljúgandi

Lagði af stað á hjólinu í morgun um klukkan sjö.  Milt veður og fínt.  Ég var rétt kominn út Sunnuveginn og upp á Álafaskeið, rétt um 300 metrar, þegar ég ákvað að snúa við, var búinn að fljúga þrisvar sinnum á hausinn.  Sá fram á að þessi ferð yrði ekki til fagnaðar.  Lítur ekki vel út fyrir hjólaferð í fyrramálið.  Það er alveg spurning um nagladekk í svona færð.

Reiðhjól, en samt alveg ágæt

Í þessari ótrúlegu veðurblíðu sem veriðhefur tók ég upp á því ótrúlega að hjóla í vinnuna.  Fór reyndar ekkert mjög hratt yfir, enda töluverð hálka, en gaman var það og fín hreyfing.  2x 40 mínútur á dag.  Það er gert ráð fyrir fínu veðri á miðvkudaginn.  Stefni á að hjóla aftur þá.


Einum Íslendingi þykja þessi fjöldamorð bara hið besta mál

Gísli Freyr Valdórsson, ungur og efnilegur frjálshyggjumaður fer mikinn þessa dagana við að gera lítið úr þeim sem mótmæla fjöldamorðum Ísraelsmanna á saklausum íbúum á Gaza. 

Af sinni alkunnu kaldhæðni dregur hann dám af fólki og hæðir það með beittu bloggi sínu.

Eins yfirlýsingaglaður og hann er er ekki annað hægt en að komast að annarri niðurstöðu en þeirri að að hann sé fylgjandi þessum fjöldamorðum og sé svarinn andstæðingur íbúa Palestínu.  


mbl.is Ísraelar vara við árásum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fréttaannáll 2008

Þegar maður horfir á þetta í einni beit, skilur maður ekki hvers vegna ríkisstjórnin sé ekki búin að segja af sér og að ekki sé búið að reka, þessi helvítis djöfulsins fífl sem stóðu fyrir þessu, úr landi.

Það er ekki fögur framtíð okkar íslendinga.



Óttaleg vitleysa

Ég vona að þeim líði betur núna.  Ekki það að ég sé að blogga um fréttir, en ætli það sé ekki betra að fara eftir fyrirmælum stóra bróðurs.  Þa

 

Birting ábyrgðarmanns

Nafnið sem þú gefur upp á blogginu þínu er ekki það sem sama og skráð er í Þjóðskrá. Í henni er skráð nafnið Heiðar Birnir Kristjánsson. Vegna þeirra breytinga sem fyrirhugaðar eru um áramótin á blog.is getur þú því ekki bloggað um fréttir mbl.is nema að þetta nafn sé birt sem nafn ábyrgðarmanns á blogginu þínu. Auk þess birtast bloggfærslur ekki á forsíðu blog.is nema nafnið sér birt.

Ef ábyrgðarmaður er birtur, má sjá hann með því að smella á mynd af höfundi, sem alla jafna má finna í dálkinum Um höfundinn á bloggi viðkomandi.

Ábyrgðarmann má einnig birta og fela að vild efst á síðunni Stjórnborð --> Stillingar --> Um höfund.

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband