Mánudagur, 6. apríl 2009
Í ljósi sögunnar kemur þetta kannski ekki á óvart
Ég vil vita hvað sé satt og rétt í þessari frétt, og ef það er rétt að eigendur álbræðslnanna hafi verið kallaði inn til skrafs og ráðagerða vil ég fá að vita hver kallaði þá til og hvers vegna.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 28. mars 2009
Davíð beit höfðuð af skömm sinni með þessari ræðu
Mér er misboðið, þessi ræða Davíðs Oddssonar sýnir í raun hversu blindur hann í raun og veru er.
Hann gat stytt þetta í eina setningu. "ALLIR Í HEIMINUM ERU FÍFL - NEMA ÉG".
Afsakið á meðan ég æli.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Fimmtudagur, 26. mars 2009
Víkingur Kristjánsson
Minn kæri bróðir, Víkingur Kristjánsson, íslenskufræðingur á ammæli í dag. Hann er 37. ára kallinn og ber aldurinn nokkuð vel, verð ég að segja. Ég veit ekki hvort hann verður að heiman í dag, en hann á vonandi góðan dag fyrir höndum.
Ég óska honum til hamingju með daginn og vona að hann lifi ekki í krukku.
Myndin tengist ekki blogginu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 26. mars 2009
Tveir dagar
Ferming um helgina. Guttinn ekkert að stressa sig yfir því sem hann á að kunna. Ætli ég sé ekki mun stressaðri yfir þessu en nokkurn tíma hann.
Sól blíða og kalt. Alveg kjörið til að taka fram hjólið. Stefni á það eftir helgi. Vona að nú sé bara bjart og flott veður framundan....
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 25. mars 2009
Laaangt síðan síðast
Langt síðan síðast. Hélt ég væri hættur - en lengi von á einu.
Búið að vera mikið að gera hjá okkur. Erum flutt. Stóðum í því um síðustu helgi og fengum hjálp frá frábæru fólki. Skilum af okkur í dag.
Ferming um næstu helgi. Strákurinn að verða stór
Ætlum svo að koma okkur fyrir í rólegheitum.
Svo fara vötnin að opna hvert á fætur öðru... jahú.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 8. febrúar 2009
Hann er með fínan stíl og ætti ekki að halda aftur af sér
Það blundar í'onum villidýr sem hann hefur hamið allt of lengi. Þurrprumpulegt starf í allt of langan tíma hefur líka gert hann viðskotaillan og ferlega þreyttan á öllum þessum helvítis fokking fokk bömmer sem tröllríður öllu, en hann getur ekki með nokkru móti komið auga á. Þar að auki hefur hann ekki lagt í vana sinn að hlaupast undan verkum sem hann hefur tekið að sér, jafnvel þó svo að flestir, ef ekki allir (fyrir utan nokkra helbláa og innmúraða), telji hann eiga að sjá sóma sinn í að hætta, enda dagsverkið orðið miklu meira en nóg.
Stíllinn er leiftrandi, meitlaður og beittur. Hann leyfir villidýrinu í sér að spretta fram og sýnir á áhrifamikinn hátt mátt sinn og megin. Honum tekst að byggja upp spennu sem nær hámarki á réttum stað, endirinn er þó frekar fyrirsjáanlegur.
Það vildi ég að Davíð væri bloggari. Þá fengjum við væntanlega að lesa bombur frá honum sem sem væru almennilegar og virkilega krassandi.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þriðjudagur, 3. febrúar 2009
Stóri sandkassinn
Ný ríkisstjórn var rétt nýbúin að taka völdin þegar Sjálfstæðismenn fóru á flug. Byrjuðu á því að kvarta undan aðgerðarleysi hennar og lélegri stefnu. Um leið og þeir náðu að draga andann aftur var því kastað fram að þessi nýja stjórn væri að apa upp stefnu ríkisstjórnar sem var að fara frá.
Á mannamáli voru þeir að segja að stefna ríkisstjórar Geirs Haarde hafi verið léleg. Ergó - klassa sandkassaleikur.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Miðvikudagur, 28. janúar 2009
Hvernig getur staðið á því að það er flóknara og erfiðara ferli að segja upp bankastjórum seðlabankans en að setja neyðarlög sem gerðu ríkinu kleyft að yfirtaka bankana?
Það er hægt að gera flókna hluti einfalda og einfalda hluti flókna.
Síðastliðið haust voru sett lög hér á íslandi sem gerðu ríkinu kleyft að yfirtaka bankana. Í fjölmiðlum var þessu lýst sem nauðsynlegri aðgerð til að komast hjá gríðarmiklu hruni, tapi og ég veit ekki hvað. Fólk stóð á öndinni og skildi hvorki upp né niður í neinu. Allt gerðist með ógnarhraða og flókin mál keyrð í gegn um þingið á tvöföldum amerískum ljóshraða. Hviss bamm búmm.
Hvernig getur staðið á því að það er flóknara og erfiðara ferli að segja upp bankastjórum seðlabankans en að setja neyðarlög sem gerðu ríkinu kleyft að yfirtaka bankana?
Hið einfalda er einfaldlega flókið.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Mánudagur, 26. janúar 2009
Hvers vegna gat Sjálfstæðisflokkurinn ekki "fórnað" Davíð Oddssyni en þess í stað var hægt að fórna stjórnarsamstarfinu
Hvað er í gangi... Ein af kröfum Samfylkingarinnar var að stjórn seðlabankans segði af sér, hvers vegna gat Sjálfstæðisflokkurinn ekki gengið að því? Af hverju hafa sjálfsæðismenn ekki verið spurðir að því.
![]() |
Stjórnarsamstarfi lokið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Mánudagur, 26. janúar 2009
Stjórnin fallin
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)