Miðvikudagur, 6. desember 2006
Hagur í heilsu
Actavis, hagur í heilsu. Núna ætlar þetta ágæta fyrirtæki að reyna að uppfylla þær kröfur um að selja Íslendingum samheitalyfin, sem það framleiðir, á lægra verði. Þessi lyf sem Acatvis framleiðir hér á landi eru seld m.a. í Danmörku á mun lægra verði en hér. Og hvernig ætla þessir ágætu menn að fara að. Jú, með því að flytja framleiðsluna úr landi.
Ég fatta þetta því miður ekki.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þriðjudagur, 5. desember 2006
Hef ekki hugmynd
Fjörtíu mínútur á skíðavélinni og svo heitur pottur á eftir. Kom svo heim og eldaði rautt pasta. Hefði verið fínt að opna eina chianti með þvi, en létum það ógert. Maður er allur á niðurleið.
Næsta föstudagskvöld er stefnan tekin á Holtið. Vinnan hjá Kristínu í jólaskapi. Ég hlakka mikið til. Fékk að vita hvað matur og vín verða á boðstólnum - verð að segja að maður heldur varla vatni. Langt síðan maður hefur farið eitthvað gott út að borða.
Svo er stefnan tekin á laufabrauðsgerði á laugardeginum, förum væntanlega austur á Flúðir og bökum þar. Það er að skapast hefð fyrir þessu.
Þetta er nú bara upptalning og lítið skemmtilegt aflestrar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 4. desember 2006
Í vaskinn með hann
Einn leiðinlegasti dónaskapur sem ég veit um er þegar gripið er fram í fyrir öðrum. Það finnst mér ömurlegt. Þeir og þær sem þetta gera skortir töluvert upp á að kunna almenna mannasiði. Ég þekki nokkuð af fólki sem þetta gerir. Og mér leiðist að tala við það. Hægt og rólega læt ég mig hverfa þegar þau byrja. Enda í hvert skipti sem maður ætlar að tjá sig eitthvað er gripið fram í fyrir manni.
--oo--
Eins áttaviltur í pólitík og ég er, er ég þó búinn að ákveða að kjósa ekki Frjálslyndaflokkinn. Margar ástæður liggja þar að baki. Ein af þeim er sandkassaleikurinn sem þar er stundaður:
Nonni Magg kemur og spyr hvort strákarnir vilji nú ekki vera memm. Hann ætti fullt af vinum sem myndu líka vilja vera memm og koma að leika. En hann vildi sko ekkert leika við stelpur, og þess Magga væri bara leiðinleg og ekkert gaman að hafa hana með. Hún væri svo mikil frekja. Ef þeir myndu reka hana úr hópnum myndi hann gefa öllum strákunum nammi og svo myndu þeir fara í alvöru strákaleiki. Addi Kitta Gau er sko alveg til í að vera memm með svona töffara eins og Nonni Magg er. Hann segir Möggu að hann sé hættur að vera vinur hennar og hann vilji ekki leika meira við hana. Hún væri bara ekkert skemmtileg lengur og pabbi hennar væri leiðinlegur líka.
Þetta er einfalda útgáfan. Guðjón, formaður flokksins, var ekki fagmannlegur í Kastljósinu í kvöld. Hann var æstur og frekur. Það var ekki sjón að sjá hann eða heyra í honum. Svörin sem hann gaf voru oftar en ekki út úr kú, og æsingurinn mikill. Mér blöskraði. Ég held að hann hefi ekki unnið sér inn nein prik hjá þeim sem voru að hugsa um að kjósa Frjálslynda. Hólíkrapp.
--oo--
Ég er enn í uppreisn og heilögu stríði gegn KFC. Endilega skellið logóinu inn á síðuna ykkar. Þið fáið ekkert borgað fyrir það - en málefnið er gott. Hér er linkurinn í lógóið.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Sunnudagur, 3. desember 2006
Cat delux
Hákon Burkni og Hafdís Katja, til hamingju með daginn og til hamingju með skírnina.
Þetta er búið að vera hálf skrítin helgi. Mætti í vinnu í gærmorgun um klukkan hálf tíu og var þar til hálf tvö. Ágætt, en maginn var gjörsamlega á hvolfi. Mátti hafa mig allan við að missa ekki bara allt niður um mig. Þegar ég kom svo heim gerði ég ekki mikið. Vermdi setuna. Dagurinn í dag hefur verið svipaður. Ótrúlegt hve mikið hægt er að ,,losa" sig við án þess að innbyrgða nokkuð. Ég hef þjáðst af vökvatapi og almennu máttleysi ásamt harðsperrum í maganum. Verið algjör aumingi.
Sunnudagskvöld. Fátt að gera nema sitja með tölvuna í fanginu og með annað augað á sjónvarpinu. Skjár 1, Frægir í form. Mjög frægt fólk. Ég veit hver Árni Johnsen, Þorgrímur Þráinsson og Gaui Litli er. Veit ekki hvert hitt fólkið er. Mjög frægt örugglega. En merkilegt fyrir hvað hann Gaui litli er frægur. Að vera feitur. Ótrúlegt.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 3. desember 2006
Og hér er það
Takk Karl Ágúst!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 1. desember 2006
Ég bara varð
Það er alveg merkilegt hvað maður lærir seint og illa. Í þau fáu skipti sem við ösnumst til að versla við KFC verð ég alltaf hálf fúll. Yfirleitt út af því hve maturinn er í raun ólystugur og vondur - en þó aðallega vegna þess að í hvert skipti sem við ætlum að fara að borða þetta (kaupum og tökum með heim) þá vantar eitthvað; Einn skammt af frönskum, einn bita, einn borgara, gosið eða eitthvað annað. Og auðvitað lætur maður þetta fara í taugarnar á sér. Maður borgar engar smá upphæðir fyrir þetta. EN núna stend ég upp og segi hátt og snjallt. Ég fer í heilagt stríð gegn KFC. Mig vantar bara hönnuð til að teikna logo, svona anti KFC logo.
Er það ekki?
Og til hamingju með daginn.
Bloggar | Breytt 2.12.2006 kl. 11:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Miðvikudagur, 29. nóvember 2006
Adam og eplið
Ræktin og heitur pottur eftir vinnu. Tók ekki 110% á því - en dútlaði ekki heldur. Eftir kvöldmat var svo brunað á hótel Nordica á Fjallamyndasýningu Útiveru. Hún var ágæt. En ég hélt ekki út allan tímann. Nennti því bara ekki.
Ég er aðeins byrjaður að velta fyrir mér göngum næsta sumar. Mig dauðlangar á Hornstrandir og Jökulfirði. En einnig langar mig til að ganga Laugaveginn aftur. Svo eru aðrir staðir sem manni langar til að kanna. Það er fínt að nota veturna til að láta sig dreyma.
Það er búið að rífa ljósanetið sem var utan um jólatréð á Reykjavíkurveginum. Tréð leit út eins og geilsavirkur kúkur ofurrisaeðlu. Ferleg ómynd. Vonandi verður bara einföld sería sett á það.
Það lítur út fyrir að jólin séu á morgun. Vonandi að maður sofi ekki yfir sig.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 27. nóvember 2006
Af hverju?
Það var tekið hressilega á því í ræktinni í dag. Ég fann að vöðvarnir voru bara nokkuð glaði að fá að reyna á sig. Heiti potturin á eftir toppaði svo herlegheitin. En það var dálítið erfitt að koma sér af stað. Vika síðan síðast. Merkilegt hvað maður er fljótur að verða latur og maltlaus. En ég vona að ég verði snöggur að komat upp á bragðið aftur. Á morgun verður það hlaupabretti eða skíðavél eða bara hvoru tveggja.
Núna fer róðurinn að þyngjast í vinnunni. Áramótaútgáfan er þykkur pakki. Byrjum væntanlega á herlegheitunum á morgun. Og veitir ekki af.
Ég ætla að skella mér á Hótel Nordica á miðvikudagskvöldið. Þar verður myndasýning á vegum Útiveru. Mæli með að áhugasamir um útiveru og ljósmyndir fjölmenni þangað.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Sunnudagur, 26. nóvember 2006
Helgarsprok
Máninn var alveg virkilega sáttur við mótið í Keflavík. Þetta var víst bara snilldarhelgi. Hvað getur það annað verið þegar einhver hundruð púka koma saman. Það verður allt vitlaust og bara skemmtun hjá þeim.
Við vorum mætti suðureftir um klukkan hálf þrjú og vorum viðstödd verðlaunaafhendingar og mótssliti. Svo var haldið í Hólaskóla, klárað að taka saman og svo brunað til Hafnarfjarðar. Það er ég hræddur um að kúturinn verði frekar framlágur á morgun.
Ég hlakka til morgundagsins. Hreyfing eftir vinnu. Síðasta vika var alveg vonlaus hjá mér. Var eins og blaut tuska fram eftir viku og það var fyrst í gær sem ég var þokkalegur. Ég ætla að taka á því á morgun. Lyfta. Tími til kominn.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 25. nóvember 2006
Vera má að það megi
Það er búið að vera nóg að gera. James Bond í gærkvöldi. Snilldarmynd. Fer á toppinn sem ein besta Bond myndin. Ég er ekki frá því að Daniel Craig, nýi Bondinn, sé sá besti. Allavegana í öðru sæti.
Vorum vöknuð klukkan átta í morgun. Skunduðum í Reykjanesbæ þar sem Máninn tekur þátt í fótboltamóti um helgina. Gist og hvað eina. Við vorum frameftir degi með FH ingum í dag og brunum suðureftir fyrripart dags á morgun.
Þegar við komum til baka ákváðum við að kíkja í Garðheima, skoða ýmislegt jólaskraut. Það var fínt. Svo kíktum við á Thors planið í okkar heimabæ, á Jólaþorpið. Þar var fín stemning.
Notfærðum okkur megaviku Domínós. Ég bara viðurkenni að ég nennti ekki að elda.
Morgudagurinn, sunnudagur, verður viðburðaríkur.
Þétt helgi.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)