Sunnudagur, 17. desember 2006
Sunnudagur fyrir Þorláksmessu
Jæja, það er búið að kaupa flest allar jólagjafir. Foreldrar barna sem eiga von á jólagjöfum frá okkur mega eiga von á hávaðasömum gjöfum, trommum, lúðrum, flautum og öðrum ásláttar- og blásturshljóðfærum. Þið þakkið okkur fyrir þegar börn ykkar eruð orðnir þekkt sem einleikarar. Við gerðum okkar besta og hananú.
Dagurinn í gær var nokkuð þéttur. Ég var mættur í vinnu klukkan hálf tíu. Vinnufriður, fínheit og töluverðu afkastað, allavegana gekk mér alveg ágætlega með það sem uppúr stóð á mínu borði. En eitthvað verð ég frameftir í næstu viku.
Eftir vinnu renndum við okkur á Laugaveginn. Það var frábært. Miðbærinn í smá kulda er frekar jólalegur. Kórar að syngja, fólk að spila á hljóðfæri, jólasveinar og önnur kátína. Skoppa á milli búða og skoða og spjalla. Við þetta komst ég í jólaskap. Skýtið. Svo fórum við aðeins í Kringluna og það var eins og við manninn mælt, jólaskapið fauk út í veður og vind. Laugavegurinn fær 10 í einkunn, sérstaklga búðin í húsi númer 76. Takk. Kringlan og Smáralind 3,5.
Eftir þetta alltsaman skellti ég mér í ræktina og hamaðist eins og fullvaxin marfló í 35. mínútur á skíðavélinni. Þið getið rétt ímyndað ykkur það... En potturinn á eftir var algjör toppur. Kvöldið fór svo í innpökkun og í að hlusta á Hauk Morthens. Diskinn, Í hátíðarskapi. Kemur mér alltaf í jólaskap. Ég held að Ólai Gaukur hafi útsett. Tímalaus klassíker.
Vika í að við stormum til Regínu frænku - það er að segja ef hún ætlar að halda sinni hefð að bjóða til sín sínu fólki á þessum ágætisdegi. Við mætum allavegana. Er það ekki?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 16. desember 2006
Upp í kok
Það var með mikilli ánægju og gleði sem ég las pistil Guðmundar Steingrímssonar á blogginu hans. Þar tekur hann Björn Inga Hrafnson og pakkar honum saman með bravör. Ósmurt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Föstudagur, 15. desember 2006
Ha, ha, ha
Vildi bara viðhalda baráttunni!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 15. desember 2006
Þetta getur nú bara ekki verið
Var að vinna til klukkan sjö í gærkvöldi. Kristín sótti mig og var stefnan sett á eitt helsta musteri bæjarins, Kringluna, til að taka þátt í jólagleðinni. Þar var sko fjör. Fólk á þönum fram og til baka og flestar búðir af fullar fólki og mikið um að vera. Við tókum þátt í þessu af fullum þunga og ég held að við höfum náð að klára nánast allt saman. Svona næstum því. Það er eitthvað eftir til að dunda sér við um helgina. Búðaráp er ekki mín sterkasta grein, og ég á það til að missa nærri heilsuna við það eitt að hugsa um að þurfa að fara standa í slíku veseni. En í þetta skiptið hafði ég undirbúið mig andlega í nokkra daga svo þetta var bærilegt.
Við skriðum heim um klukkan hálf tíu ánægð með afraksturinn og stefnum á að klára jólagjafainnkaupin um helgina. En það verður nú væntanlega einhver vinna hjá mér líka. Sem sagt nóg að gera.
Er svo ekki bara sys mætt aftur í blogheima.... frábært
Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 14. desember 2006
Ég ræð þessu öllu
Ég er sérlega lukkulegur með vinnustað og vinnufélaga. Fólkið sem ég vinn með er upp til hópa snillingar. Sem skemmtilegt dæmi má nefna að á föstudagsmorgnum kveikir einn vinnufélaginn á Rás 1 stundvíslega klukkan níu og óskastund Gerðar G. Bjarklindar fær að hljóma. Það kemur yfir mig einhver nostralgía, þetta eru lögin sem maður heyrði í óskalagaþáttum sjómanna og sjúklinga þegar maður var púki á vestur á Ísafirði. Þá var ekki búið að finna upp Rás 2 eða Bylgjuna. Í fyrstu var ég ekki viss hvernig ég ætti að taka þessu - en í dag er þetta ómissandi. Um daginn þá var þessi vinnufélagi minn í fríi, en þá voru aðrir sem hlupu undir bagga og Gerður G. hljómaði sem aldrei fyrr.
Á þessum tíma, í kring um jólin, á maður til með að láta hugann reika aftur í tímann. Jólin á Ísafirði og jólin í Djúpinu. Þau voru eiginlega best og mest jóla. Síðustu ár er maður samt að upplifa jólin upp á nýtt í gegn um kútinn. Hann er reyndar poll rólegur yfir þessu og er ekkert að kippa sér upp við þetta stúss. Jólin koma. Við vorum að reyna að veiða hann í kvöld hvað honum langaði í jólagjöf. Einhverjar hugmyndir fæddust.
Vikan hjá mér í ræktinni er þrek og úthald. Engar lyftingar heldur skal tekið á þvi á skíðavélinni eða bretti. 40 mínútur lágmark, sex daga í röð. Það verður lyft í næstu viku.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þriðjudagur, 12. desember 2006
Vangaveltur
Ég á ekkert í þessu. Fékk póst rétt áðan og gat ekki stillt mig.
Þessi hljómsveit er nýbúin að skipta um söngvara en að öðru leyti er hún eins. Lagið er líka alltaf eins.Hljómsveitin Íhaldið er úr Reykjavík. Hún hefur gefið út nokkrar plötur en einhverra hluta vegna er það bara þetta eina lag sem náð hefur einhverjum vinsældum meðal áhangenda hennar.
Íhaldið er því nokkuð skýrt dæmi um það sem kallað er "one hit wonder" í bransanum.
Önnur lög hljómsveitarinnar hafa einhvern veginn alveg fallið dauð niður og vakið litla hrifningu.
Þetta eru lög eins og "Tæknileg mistök", "Hlerum, hlerum", "Bombum Írak", "Þegar ég vaknaði um morguninn og Varnarliðið var farið" , "Rándýra Ísland", "Biðröðin við Mæðrastyrksnefnd", "Ég missi ekki svefn út af misskiptingu", "Bush var vinur minn", "Sætasta stelpan á ballinu," "Verðbólgudraugurinn gengur aftur", "Þenslan er komin", "Hæstu vextir í heimi", "Við þurfum enga stefnu (því við erum bara við, gamla Íhaldið...)", "Ó, Friedman!", "Hver er þessi Whole Foods?", "Saman á ný í herbergi - óður til aldaðra", "Muniði Falun Gong?", "Mér var víst mútað af Baugi", "Ég skipa þig í Hæstarétt, vinur", "Aldrei fór ég til Kárahnjúka", "Kolkrabbabúggí", "Fjölmiðlalögin (syrpa)" og síðast en ekki síst "Keyrum upp húsnæðisverð með 90% lánum og breytum þeim svo aftur í 70%, hey!"
Þetta síðasta var arfaslakt -- um það eru flestir sammála, bæði gagnrýnendur og almenningur -- en það má segja það Íhaldinu til málsbóta að það var samið af upphitunarhljómsveitinni.
Eitt uppáhaldslagið mitt, persónulega, um þessar mundir með Íhaldinu er hin hugljúfa ballaða "Hvers vegna ert aldrei kjur?" sungin af Selfosshnakkanum Árna Matthíesen, draumkennd vangavelta um krónuna, stöðugleikann og efnahagslífið almennt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 11. desember 2006
Melabúðin á hálendinu
Í Mogganum í gær, sunnudag, er furðuleg grein eftir Jakob Björnsson fyrrverandi orkumálastjóra. Þar veltir hann því fyrir sér hvers vegna byggðarlög sækjast eftir að fá álver. Niðurstaðan sem hann dregur saman er ekki góð; um leið og búið er að hola einu stykki af álveri þá er það ekki tekið aftur. Þess vegna vilja byggðarlög fá þannig "traust" fyrirtæki til sín. Þau fara ekki næstu árin. Þessi ágæti maður virðist ekki vilja sjá aðra möguleika.
Ein af ástæðum þess að byggðarlög vilja fá eitt stykki álver, eða aðra stóriðju, til sín er sú að annað hefur ekki verið í boði. Það viriðst vera þannig að búið sé að grípa í það hálmstrá sem á að redda öllu og því verður ekki sleppt. Hvað sem það kostar. Ekki fyrr en búið er að álvæða allt landið. Og eyðileggja það sem hægt er að eyðileggja. Öðrum möguleikum er ekki gefið tækifæri. Að setja öll eggin í sömu skál hefur aldrei gefist vel.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 10. desember 2006
Ójá, einmitt svona
Holtið er alveg að gera sig. Fórum þangað á föstudagskvöldinu með RJC. Stemningin góð, maturinn fínn og félagsskapurinn alveg frábær. Áttum sem sagt góðar stundir þar. Eftir grappa og kaffi var farið í heimahús og vorum þar fram undir morgun. Frábært kvöld. Laugardagurinn var ekki alveg jafn góður. En við tökum ekki svona hraustlega á því nema í mestalagi einu sinni á ári og þá eru náttúrulega einhverjar fórnir sem þarf að færa.
Það var virkilega gaman að spjalla við gömlu félagana hjá RJC.
Í dag vorum við vöknuð snemma og skelltum okkur ásamt Tobbu austur á Flúðir í laufabrauðsgerð. Fjöldaframleiðsla. Við vorum með 60 stykki. Það hefur teki Kristínu nokkur ár að koma mér upp á bragðið af þeim. Það er að takast. Núorðið finnst mér fínt að narta í þau.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Föstudagur, 8. desember 2006
Allt í pati
Svona var aðkoman hjá mér í morgun....
lyklaborðið í klessu og allt í pati....
Minn kæri jólavinur að verki og kunni til verka. Það tók mig töluverðan tíma að komast inn í tölvuna og logga mig inn. En það hafiðst að lokum.
Og stríðið heldur áfram gegn kfc.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 7. desember 2006
Fáðu þér bita
Ég var að flétta hátíðarblaði Bistró, snilldar blað. Við eigum örugglega eftir að nálgast hugmyndir þar. Ég veit samt ekki hvort það verði á aðfangadagskvöld, maður er pínulítið fastur í einhverju sem verið hefur. Hamborgarhryggur, ja nema maður yrði svo heppinn að komast yfir eins og sex, átta rjúpur, þá yrði kátt í kotinu. Ég hef ekki haft rjúpur í jólamatinn síðust fimm sex jól. Ég sakna þess - en kann ekki að bera mig eftir björginni.
Gamlárskvöld hefur verið meira kvöld tilrauna. Ég hef gert tilraunir með andabringur þær hafa heppnast vel. Ég hef aldrei heílsteikt kalkúna en ef ég myndi fara í stórfuglaeldun held ég að ég myndi vilja leika mér með bringurnar en ekki heilan fugl. En það er langt í gamlárskvöld og óþarfi farast úr áhyggjum strax.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)