Laugardagur, 23. desember 2006
Heimavið í vondu veðri
Kemur maður ekki bara til með að halda sig heimavið. Jólakveðjur á Rás 1. Hangikjöt í einum potti og jólagrauturinn í öðrum. Rauðkálið tilbúið. Það er bara allt að gera sig.
Jólahugvekjan og stundin sem við VÍS-arar áttum saman eftir vinnu í gær var dásamleg. Ég naut þess að hlusta á kórinn syngja, upplestur jólaguðspjallsins og hugvegkju sr. Þorvaldar Víðissonar.
Ekki margorður.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 22. desember 2006
Meðmæli með íslenskri stafafuru
Jólatréð komið í fótinn og stendur fallegt á stofugólfinu. Íslensk stafafura, líkt og hefur verið hjá okkur síðustu ár. Furan er okkar tré. Reyndar hef ég stungið upp á þvi að við fengjum okkur gerfitré, en slíkar pælingar hafa verði kæfðar í fæðingu. Þó tréð sé komið upp, skreytum við það ekki fyrr en á Þorláksmessukvöldi.
Meira veðrið sem gekk yfir í gær. Rafmagninu sló út í Bónus þegar ég var þar og myndaðist bara kósí stemning, eins furðulegt og það hljómar. Það færðist ró yfir allt rétt á meðan. Í annarri búð sem ég fór í er einfalt þak og glumdi ógurlega í búðinni þegar mikil hagglél gengu yfir. Varla hægt að tala saman þar inni.
Mæli með jólalagapælingum Guðmundar Steingrímssonar. Smellhittir í mark.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Fimmtudagur, 21. desember 2006
Gerist ekki styttri
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 21. desember 2006
Allt er þetta frekar aumt
Ég á það til að bíta eitthvað í mig og það fast. Sem dæmi má nefna að Ingvar Helgason hf. hefur auglýst, núna fyrir jólin, einhver bílatilboð sem er svo sem allt í lagi, en klikkja svo út með því að misþyrma laginu, Göngum við í kring um. Miklar eynaskemmdir. Ég hef heitið því að kaupa ekki bíl hjá þeim. Enda held ég að ég geti vel staðið við það - við erum ekki að fara í bílabissnes á næstunni. Eins held ég áfram andstöðu gegn KFC. Skelfingar ómeti, og vond þjónusta þar á bæ.
Umræða um Kompás þáttinn tröllríður öllu um þessar mundir. Ömurlegt ef satt er að forstöðumaðurinn hafi notfært sér traust skjólstæðinga sinna.
Það eru nokkrar spurningar sem vakna. Er rétt hjá umsjónarmönnum þáttarins að greiða fyrir heimildirnar? Það finnst mér rýra dálítið trúverðuleika þeirra. Einnig finnst mér frekar furðulegt, já og aum kynningarbrella, hvernig Stöð 2 auglýsti upp, setti hann seint á dagskrá og ítrekuðu að atriði í honum væru gróf og ekki ætluð börnum. Daginn eftir var hægt að horfa hann á visir.is. Og til að klára þetta í eitt skipti fyrir öll, af hverju var þátturinn sýndur núna, viku fyrir jól. Hefði ekki verið hægt að bíða í tvær til þrjár vikur? Það tók víst þrjá mánuði að gera hann. Það hefði mátt nota tímann til að vinna hann enn betur, og slípa það sem miður fór?
Ég endurtek - ef það er rétt sem fram kom í þættinum er það ömurlegt - er samt ekki réttara að kæra þetta og koma í réttan farveg.
Og til hamingju Ísland. Dýrasta land Evrópu. Húrra, húrra, húrra, HÚRRAAAA. Hvernig eru launin okkar í samanburði við aðrar þjóðir? Ég held að myndin skekkist enn frekar þegar/ef það er skoðað í samhengi við dýrtíðina.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 20. desember 2006
Baráttan verður alltaf harðari
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 20. desember 2006
Innrás í gær
Ég skil ekkert í þessu. Í gær fékk ég um 130 heimsóknir. Furðulegt.
Við Máni skelltum okkur í Kringluskrattann í gærkvöldi. Röltum okkur um og skoðuðum og spjölluðum. Þetta var bara ágætt. Ætlum að skoppast eitthvað í kvöld, binda síðustu enda.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 19. desember 2006
Plögg og ekkert annað en Plögg
Endilega kíkið á þennan trailer. Er þetta ekki önnur snilldin frá Vesturportinu?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 19. desember 2006
Göfugur maður
Æ, ég veit það ekki. Hann komst ekkert upp með þetta.
![]() |
Óskar biður um að samningi hans við Faxaflóahafnir verði rift |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 18. desember 2006
Með matnum
Núna fyrir hátíðarnar hef ég nokkuð verið spurður að því hvað vín henti með hinum og þessum mat. Oftar en ekki verða úr slíku spjalli skemmtilegar vangaveltur um vín og mat, matargerð og hefðir.
Ég hef mikinn áhuga á matargerð og oftar en ekki spái ég dálítið í hvað vín myndi nú passa með þeim mat sem ég er að elda. Það kemur líka fyrir að að ég elda mat sérstaklega í kring um eitthvað ákveðið vín sem mér hefur áskotnast. Það er þó undantekning. Stundum eru gerðar tilraunir en stundum eru ekki teknir neinir sénsar.
Fyrir um ári birti ég grein á heimasíðu Freistingar um vín með hátíðamatnum. Þar stiklaði ég á þeim helstu réttum sem eru á borðum um jólin. Sjálfur er ég svo vanafastur að það kemst ekkert annað en malt og appelsín að hjá mér á aðfangadagskvöldi.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 17. desember 2006
Jólapappírinn
Bing Crosby, White Christmas. Klassík. Lag sem kemur manni í jólaskap.
Máninn kominn eftir að hafa verið í Kópavoginum um helgina. Gott að fá hann heim. Ég setti hann í að læra textann sem hann á að fara með í jólaleikritinu sem hann tekur þátt í . Á meðan hann var í því stóð ég í straueríi, Kristín í jólakortagerð. Nóg um að vera.
Við fórum í bæinn í dag og kláruðum nánast öll jólagjafainnkaupin. Bara einn lítill strumpur eftir. En við vitum hvað það á að vera svo eiginlega er þetta bara búið. . . Eigum reyndar eftir að nálgast jólatréð. Held að það verðið stafafura eins og síðustu ár. Ef við finnum fallegt eintak.
Hamborgarhryggurinn kominn í ísskápinn. Máninn pantaði humar í forrétt....
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)