Foreldrar

Stutt í frumsýningu

foreldrar

 


Lausnin

Það góða við að hamast á hlaupabretti og skíðavél er að þá getur maður látið hugann reika.  Gott eftir erilsaman dag að taka til í hausnum.  Oft á tíðum kemur þá einhver vitleysan í ljós sem búið hefur um sig og stekkur fram.  Stundum fullskapað meistaverk, stundum hálfköruð vísa en oftast eru þetta bara brot sem maður tekur upp og veltir fyrir sér hvort hafi einhvern tilgang.  Á tuttugustu og sjöundu mínútu í puðinu mínu í dag spratt fram lausn á öllum vanda launafólks.  Lausnin birtist mér uppljómuð og mér leið eins og ég hafi séð ljósið.  Í þessu landi óstöðugrar krónu, verðbólgu og ofurvaxta, þar sem lán eru verðtryggð og almennur launamaður semur stundum til margra ára í senn, og oft eftir mikið erfiði og hefur kannski lítið upp úr krafsinu.  Fyrst verðtryggingin er ekkert á leiðinni í burt er ekki það eina rétta að verðtryggja launin?  Ég bara spyr.  Pæling

Það er farið að draga til tíðinda hjá Nágrannanum.  Spurning hvernig þetta endar allt saman. 


Helgarsprok

Sá Kalda slóð á föstudagskvöldinu.  Þröstur Leó, Helgi Björns og Hjalti Rögnvalds ásamt öðrum leikurum voru skratti góð, myndataka og útlit alveg til fyrirmyndar en sagan sjálf var ekki góð.  En þetta var ágætasta mynd.  Á laugardagskvöldinu sá ég svo Mýrina.  Hún var mjög góð og gekk allt upp.  En ég er ekki alveg sáttur við Ingvar Eggert í hlutverki Erlends.  Hann sýndi snilldar takta og allt það en það vantaði hrukkurnar í andlitið og að hann væri dálítið lifaður.  Myndin var góð.

Í dag var svo gengið á Esjuna.  Upp að Steini.  IMG_4847a
Það var frábært.  Formaðurinn bauð svo í kaffi,
kruðerí og spjall á eftir, þar sem við fórum yfir
hvað okkur langar til að ganga næsta sumar. 

Planið lítur svona út í grófum dráttum. 

Maí:  Birnudalstindar, garpaferð (einmitt, rétt svona)
Júní:  Hornstrandir, tjald og bakpoki
Júlí:  24 tindar á 24 tímum, Glerárdalshringurinn
Ágúst:  Ekki alveg ákveðið ennþá, hugmyndabankinn opnaður

Svo verða dagsferðir og annað skemmtilegt á boðstólnum. 
Eins gott að koma sér í form. 


Nágranninn

Nágranninn.  Ég bíð spenntur eftir hverjum kafla. 


Álverið í Straumsvík - stækkun, nei takk

Og enn er ég við sama heygarðshornið.  Skæri og lím á lofti.

"Sjónmengun eykst til muna. Álbræðslan og línumannvirkin verða risastór sama hvernig reynt er að smækka þau í orðræðunni þessa dagana. 

Loftmengun eykst líka mjög mikið við stækkun:

Svifryk frá bræðslunni fer úr 470kg í 1.175kg  á sólarhring (250% aukning)

Flúoríð frá bræðslunni fer úr 270kg í 675kg á sólarhring (250% aukning)

Brennisteinsdíðxíð fer úr 7,2 tonnum í 19 tonn á sólarhring (250% aukning)

CO2 (gróðurhúsalofttegund) fer úr 880 tonnum í 2.200 tonn á sólarhring.(250% aukning)

Ekki má heldur gleyma kerbrotunum sem urðuð eru í flæðigryfjum en magn kerbrota fer úr 8,4 tonn í 21 tonn á sólarhring.(250% aukning)

Að sjálfsögðu verður mengunin frá verksmiðjunni eftir stækkun vel undir heilsuverndarmörkum, enginn hefur haldið því fram að hér eigi að fórna mannslífum eins og skilja mátti á Tryggva Skjaldarsyni starfsmanni Alcan  í morgunútvarpi RUV í morgun. En engu að síður þýðir þessi mengun töluvert lakari loftgæði í Hafnarfirði en eru þar í dag. Starfsmaður umhverfisstofnunar sagði t.d. að við kæmum mun oftar til með að sjá gula brennisteinsmengun frá álbræðslunni eftir stækkun á veðurstilltum dögum en við gerum í dag. Það að stækkun álbræðslunnar snúist bara um sjónmengun er ekki rétt. Spurningin um stækkun snýst m.a. um það hvort að Hafnfirðingar sætta sig við lakari loftgæði í Hafnarfirði en þeir búa við í dag."

Af heimasíðu Sólar í Straumi.


Rétt rúm vika

19. janúar 2007

foreldrar

 

Jú og eitt í víðbót...
Gísli Ásgeirsson bregst ekki.

 

 


Smá föl og allt í steik

Tók 45 mínútur að komast úr Hafnarfirði í vinnuna.  Þetta ekki margir kílómetrar.  Púff.

Svo hef ég bara verið í veseni í dag.  Hólímakkaróní


Puðið gegn mörinni

Nú er það hafið og engin miskun.  Hálfs mánaðar leti er búin og nú er það harkan sex sem gildir.  Eftir vinnu í gær voru teknar 47 mínútur á skíðavélinni, þar af 40 mínútur á útopnu.  Það tók þó nokkuð margar mínútur til að koma svitakirtlunum og mörbræðslunni í gang.  Að velgja mörinn.  Allt þetta salt, saltpétur og önnur bindiefni ríghéldéldu í sitt og neituðu að sleppa, en með með þrjósku hafðist að koma vélinni af stað.  Og þá byrjaði maður líka að svitna.  Það var gott.  Eftir góðar teygjur var svo skriðið ofan í heitan pott í nokkrar mínútur.  Ég er sem sagt byrjaður aftur.  Í kvöld verður lyft.


Það sem ég sagði ekki - en annar gerði

Oft les maður eitthvað eða heyrir og vildi óska þess að manni hafi dottið það í hug.  En þá er ekki annað í stöðunni en nota klippa og líma og að sjálfsöðu geta þess hvaðan línurnar eru fengnar.  Gísli Ásgeirsson var með fínan pistil á síðunni sinni um daginn.  Birti hluta af honum hér:

,,Eftir ótal gjafir Álvers bónda stendur eftir spurningin: Um hvað á að kjósa? Álverið keypti lóðina undir stækkunina fyrir nokkrum árum. Mér skilst að rekstrar-og byggingarleyfi séu fyrirliggjandi og það eina sem er eftir, sé að afgreiða skipulagið. Kannski eigum við að kjósa um skipulag með álveri eða skipulag án álvers? Hvað veit ég? Ef ég ætti svona stóra lóð og fengi ekki að byggja á henni, yrði ég álíka saltvondur og Álftnesingurinn sem fær ekki að byggja á lóðinni sinni því hún er of nálægt heimili forseta bæjarstjórnarinnar sem tók sig til í sumar og bjó til tjörn á henni því honum fannst hún svo ljót. Þetta er vont mál fyrir Nesmennina og endar með málaferlum og skaðabótum og eflaust verður bærinn að kaupa lóðina aftur á fullu verði. Þessi staða gæti komið upp í Hafnarfirði.
Ég held að þrátt fyrir íbúalýðræðið margumrædda verði kosningin höfð þannig að álverið verður samþykkt. Það hentar bæjarstjórninni ekki að hætta við á elleftu stundu sem væri á við rofnar samfarir og það hefur hingað til ekki þótt gott. Bæjarstjórninni væri í lófa lagið að setja ákvæði um 50% kjörsókn og afgerandi meirihluta. Þess vegna verða kosningarnar ekki samfara þingkosningum í vor, því þá er hætta á góðri kjörsókn. Með góðum vilja er hægt að keyra mál í gegn og kalla það lýðræðislega ákvörðun."

Ég held að þetta geti vel orðið niðurstaðan, en það er líka hægt að koma í veg fyrir það.  Eða?


Rotuðum jólin

Við rotuðum jólin algjörlega með sannkallaðri veislu heima hjá Boggu og Þráni í gærkvöldi, Þrettándann.  Hittumst öll stórfjölskyldan (að mestu leyti) og nutum góðs matar og félagsskapar.  Siggi og Sigþóra komu að norðan með litla strútinn, sem stal senunni.

Á föstudagskvöldinu fórum við með Mánann austur á Flúðir, en hann átti inni helgarheimboð hjá frændum sínum.  Sátum yfir spjalli og kaffi nokkuð frameftir sem þýddi að við vorum seint á ferðinni heim.  Ég fór svo í vinnu á laugardagsmorgni, frekar þreyttur.  Vann dálítið fram eftir degi.

Dagurinn í dag, sunnudagur, fór svo í að sofa aðeins út og bruna svo á Flúðir og sækja guttann.  Ég tók með GPS tækið sem Kristín gaf mér í jólagjöf, svona til að prufa gripinn.  Setti inn punkta áður en við lögðum af stað, langaði til að sjá hvernig tækið virkaði.  Það átti að vísa okkur leiðina, en allt kom fyrir ekki.  Það vildi snúa við alla leiðina til Hveragerðis, en þá slökktum við á því.  Held að ég viti upp á mig klaufaskapinn.  Tækið er sem sagt í fínu lagi en eigandinn ekki.

Ég skrifaði nú ekki mikið um skaupið um daginn.  Átti ekki til orð.  Víkingur bróðir skrifaði heldur ekki mikið. Bara nokkur orð.  En Staksteinar Morgunblaðsins vitnaði samt í okkur báða 3. janúar.  Hehehe.

Að rota jólin merkir, eftir því sem ég best veit, að kveðja þau með myndarlegri veislu á síðasta degi.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband