Komdu niður, kvað hún amma...

...komdu niður, komdu niður, komdu niður sögðu öll í kór.
mbl.is Bakkað yfir tré á Skólavörðustíg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tóndæmi

Laugardagsmorgun.  Kaffi í krús og Rás 2.  Ágætt.

Við Kristín tókum þátt í foreldrarölti í gærkvöldi.  Við vorum ekki nema fimm sem tókum þátt.  Það var tíðindalaust á vígstöðvunum.  Ró yfir bænum.  Þessu var lokið rétt um klukkan ellefu. 

Á fimmtudagskvöldinu fór ég á fund um deiliskipulag lóðar álversins í Straumsvík.  Það kom ýmislegt fróðlegt þar fram.  Flest styrkti mig í þeirri skoðun minni að vera á móti stækkuninni.  Bara eitt lítið dæmi.  Það er mikil eftirspurn eftir iðnaðarlóðum í Hafnarfirði.  Af hverju að hengja sig í eitt stórt fyrirtæki, setja öll eggin í sömu körfuna?  Af hverju ekki að vera með fjölbreytt úrval atvinnutækifæra?

Amen á eftir efninu.

 


Just a perfect day

Heyrði Skapta Ólafsson flytja lagið - Perfect day - eftir snillinginn Lou Reed í morgun.  Það laumaðist gæsahúð upp eftir handleggnum. 

Ég hlakka til að sjá ÁST.


Korter í kosningar...

og Framsóknarflokkurinn byrjaður að fiska.  Nú er byrjað að kasta út færunum hægt og rólega - en örugglega.  Spurning, fyrst þeir fara svona af stað... hvernig endar þetta í vor þegar flokkurinn fer að toppa í alvöru?

Skelfing.


mbl.is Formenn stjórnarflokkanna boða blaðamannafund
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Í fullu starfi...

...við að vera ekkja. 


mbl.is Yoko Ono kom í veg fyrir sýningu heimildarmyndar um John Lennon
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ullarsokkur

Í dag skaust ég úr vinnunni og í apótekið.  Stuttur skreppur.  Þegar ég kom út skein sólin beint á mig.  Ég gekk af stað og fór að hugsa hvers vegna í ósköpunum ég væri að vinna innandyra.  Þessar hugsanir koma alltaf upp í hugann um þetta leyti árs og magnast fram eftir vori.  Þá dreymir mig um að snúa við blaðinu og byrja upp á nýtt.  Gera eitthvað allt annað en það sem ég starfa við.  Helst koma mér í góða vinnu utandyra.  Þetta ágerist fram eftir sumri og  bráir ekki af mér fyrr en seint á haustin.   Eftir sumarfrí.  Eftir sem svarar einni góðri meðgöngu.  Sem fer jafnvel fram yfir.

Þessa dagana er ég að glugga í ferðalýsingu Páls Ásgeirs um Laugarveginn.  Vísarar stefna á að fara næsta sumar og ef vel stendur á göngum hjá mér stefni ég á að skella mér.  Ég fór þessa leið sumarið 2005 og lofaði mér þá að fara aftur.

Ég er dálítill ullarsokkur, svona inn við beinið allavegana.


Sól í Straumi

Ég hef mikið dálæti á heimasíðu Sólar í Straumi.  Til að breiða út boðskapinn sæki ég þangað efni annað slagið.  Hér eru nokkrar ástæður fyrir því að segja NEI við stækkun.

    • Alcan í Straumsvík verður eftir stækkun stærsta álver í Evrópu og óljóst er hversu mikið fyrirtækið mun stækka til viðbótar þegar gamla verksmiðjan verður endurnýjuð.  Mengun frá álverinu myndi aukast verulega við stækkun og losun gróðurhúsaloftegunda myndi verða jafn mikil í Straumsvík og af öllum samgöngum á Íslandi.
    • Stækkun álversins í Straumsvík þýðir lakari loftgæði í Hafnarfirði. Mengunarlosun á sólahring verður eftir stækkun:  2.000 tonn af gróðurhúsalofttegundum, 9,3 tonn af brennisteini, eitt tonn af svifryki, og 700kg af flúor.  Þessi mengun skiptir Hafnfirðinga miklu máli þá 40-50 daga á ári sem vindáttin dreifir menguninni beint yfir bæinn.
    • Nú þegar liggja fyrir áætlanir einkaaðila um hafnfirska íbúabyggð fyrir vestan Straumsvík og innan tíðar verður bærinn farinn að teygja sig í vestur með ströndinni. Við teljum að risaálver eigi alls ekki heima í þéttbýli og alls ekki á framtíðarbyggingalandi Hafnarfjarðarbæjar.
    • Fulltrúi Alcan lýsti því yfir á dögunum að ef ekki væri álver í Straumsvík í dag, kæmi sú staðsetning ekki til greina fyrir nýtt álver sökum staðsetningar í þéttbýli. Við erum honum sammála.
    • Stækkun í Straumsvík mun þýða verulega sjónmengun á álverslóðinni sjálfri sem verður eftir stækkun jafn breið og hún er löng í dag.
    • Verði af stækkun munu stærstu línumannvirki Íslandssögunar vera lögð ofanjarðar í gegnum útivistarsvæði Hafnfirðinga sunnan Helgafells sem og í gegnum átta sveitafélög á suðvestur- og suðurlandi. Línumannvirkin munu hafa í för með sér verulega sjónmengun í upplandi höfuðborgarsvæðisins og í sveitum landsins. Alcan í Straumsvík þarf í framleiðslu sína jafn mikið rafmagn og öll höfuðborgin með allri sinni íbúa- og atvinnubyggð. 
    • Samþykki Hafnfirðingar stækkun í Straumsvík munu þrjár virkjanir í Þjórsár verða settar í framkvæmd þrátt fyrir andstöðu íbúa á svæðinu. Með því að segja nei við stækkun leggja Hafnfirðingar mikilvægt lóð á vogaskálarnar til verndunar íslenskrar náttúru. 
    • Þegar talað er um auknar tekjur Hafnfirðinga af álverinu við stækkun er horft fram hjá þeirri staðreynd að tekjurnar munu aukast umtalsvert án stækkunar á næstu árum. Fyrir dyrum standa skattalagabreytingar sem eru óháðar stækkun og fyrirframgreiðslur á hafnargjöldum  renna út. Jafnframt hefur ekki verið reiknað út hvaða aðrar mögulegar tekjur Hafnarfjarðarbær getur haft af svæðinu ef ekki verður af stækkun. Því ber líka að halda til haga að við skattalagabreytingarnar lækka heildarútgjöld Alcan til íslensks samfélags þó svo hlutur Hafnarfjarðar aukist til muna.
    • Þegar talað er um auknar tekjur af álverinu fyrir Hafnfirðinga þarf að kynna líka hvaða áhrif þreföld stækkunar mun hafa á fasteignaverð á Völlum, í Áslandi og á Holtinu. Það hefur heldur ekki verið kynnt hvað skuldir heimilanna munu aukast mikið vegna þenslu á framkvæmdatíma og hvaða önnur ruðningsáhrif stækkunin mun hafa í Hafnarfirði á framkvæmdatímanum og í framtíðinni.
    • Það er mikill misskilningur að á krepputímum bíði störf eftir atvinnulausum Hafnfirðingum í Straumsvík. Vegna þenslu á framkvæmdatíma er ekki hægt að gera ráð fyrir atvinnulausum Hafnfirðingum sem ganga í ný störf í stækkuðu álveri. Þeir starfsmenn sem ráðnir verða annarstaðar frá í nýtt álver starfa þar áfram komi til samdráttarskeiðs í Hafnarfirði. 
    • Það er ánægjuefni að Alcan hefur stutt íþrótta- og æskulýðsstarf í Hafnarfirði undanfarin ár. Það er hinsvegar mikill misskilningur að án Alcan hefði íþrótta- og æskulýðsstarf í bænum þróast með öðrum hætti. Í fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarbæjar fyrir síðasta ár var gert ráð fyrir 1.155 milljónum til þessa málaflokks og framlag (auglýsingasamningur) Alcan á síðasta ári var 5 milljónir eða 0,4% af heildarútgjöldum bæjarins til málaflokksins. (heimild: www.hafnarfjordur.is)
    • Því hefur verið haldið fram að hvergi sé hægt að framleiða ál á eins vistvænan hátt og á Íslandi. Staðreyndin er sú að rúmlega helmingur (55%) allrar álframleiðslu í heiminum er framleiddur með endurnýjanlegum orkugjöfum og því fráleitt að halda því fram að á íslendingum hvíli einhverjar skyldur í þessum efnum. Endurnýjanlega orkugjafa eins og á Íslandi er að finna t.d. í Rússlandi, Afríku, suður- og norður Ameríku. 
    • Í dag starfa 216 Hafnfirðingar i álverinu í Straumsvík, fyrirtækið er í mjög góðum rekstri og það er ekkert í kortunum sem bendir til þess að fyrirtækið fari og loki á næstu árum. Á heimasíðu Alcan segir: ,,Engar áætlanir eru uppi um lokun álversins ef ekki kemur til stækkunar, enda gengur verksmiðjan vel og árangurinn er góður, bæði á tæknilegum mælikvörðum og í umhverfismálum.” (heimild: www.alcan.is)

 

Orgínallinn er svo hér.

Og Ingþór, til hamingju með nýju síðuna!


Koma svo

Þetta hefur verið frekar erfiður dagur.  Andvaka síðustu nótt gerir það að verkum að maður er ekki alveg upp á sitt besta.

En það verður æfing á eftir.  Lyft.  Massedda.


Í stuttu máli

Við hittumst í gær, næstum öll systkynin og fylgifé, ásamt mömmu í tilefni afmælisdags pabba.  Hann hefði orðið sjötugur 2. mars.   Þetta var fínn hittingur eins og alltaf.  Enda erum við sérlega skemmtilegt fólk.  Öllsömul.

Síðustu vikur, eða frá því fyrir jól, hef ég verið í huganum í útilegum.  Lesið ferðalýsingar, skoðað landakort og myndir frá fyrri afrekum.  Tilhlökkun fyrir komandi ferðaári er mikil.  

Þá hefst ný vinnuvika innan skamms.  Hún verður góð. 


Minn maður

Hvaða öfund er í gangi.  Þetta eru eðlileg viðskipti, ég geri ráð fyrir að hver og einn myndi gera það sama og Bjarni Ármannsson gerði.  Ég trúi ekki öðru. 

Það er náttúrulega líka margt jákvætt við þetta.  Hann hlýtur að greiða 10% fjármagnstekjuskatt sem eru um 38 milljónir.  Það slagar nú hátt í eitt sendiráð í Afríku, Kína eða Antartíku.  Pælið í því, skattar af einum viðskiptum standa undir annarri eins vitleysu og sendráðsflipp fyrrverandi utanríkisráðherra.

Hann á nú líka eftir að halda upp á stórafmæli.  Annar eins söngvari og hann er fær náttúrulega bara Stones til að spila undir hjá sér og Jaggerinn syngur bakraddir.  Fínt að byrja að safna fyrir því. 

Söluhagnaðurinn er ekki nema um 95föld árslaun mín.  Ég hefði gert það sama og hann.  


mbl.is Bjarni Ármannsson kaupir og selur í Glitni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband