Við Kárahnjúka í maíbyrjun 2008

Við Kárahnjúka í maíbyrjun 2008

Á vorin þegar lifnar leir
laus við stífluhlekki
og jökulkaldur þungur þeyr
þykkum feykir mekki

yfir Hérað æðir ský
eðjan litar strauma
þá kemur loks í ljós á ný
landið, kennt við drauma.

Höfundur, Gísli Ásgeirsson


Það er allt að fara til helvítis í Hafnarfirði...

... og fer þangað mjög hratt ef álverið fær ekki að stækka. Það er ekkert annað í stöðunni. Hafnfirðingar ættu strax að byrja að undirbúa flutninga til vesturheims.  Hafnarfjörður fer í eyði eftir 7-10 ár. Það er ekki til fólk í firðinum sem hefur kraft og áræðni. Nýsköpun er ekki til í bænum. Það eina sem hægt er að gera er að vinna í hjá álverinu, eða það sem er næst best, vinna hjá fyrirtæki sem á allt undir verksmiðjunni. Ég get ekki skilið annað af málflutningi Hags Hafnarfjarðar og Framkvæmdastjóra SA. Við förum til fjandans, beina leið. Hratt og örugglega ef ekki verður af stækkun.

Nei, fjandakornið, svona slæmt er þetta ekki. Í Hafnarfirði býr fólk með hugmyndir og kraft sem væri meira en tilbúið til að fara af stað og gera hlutina ef aðstæður og stuðningur væru fyrir hendi. Í Hafnarfirði og reyndar höfðuborgarsvæðinu öllu, búa frumkvöðlar sem eru tilbúnir þegar færi gefast og aðstæður bjóða upp á slíkt.  Þær aðstæður eru fyrir hendi núna. Í stað þess að leggja milljarða í virkjanir og niðurgreiðslu á raforku til álvera, væri leikur einn að veita fjármagni í nýsköpun og til að koma nýjum hugmyndum á koppinn.

Á fundi í Bæjarbíói í gær, fimmtudag, fór Vilhjálmur Egilsson mikinn.  Hann mærði Alkan í bak og fyrir og sagði það hreint út að Hafnarfjörður væri ekki það sem hann er í dag ef ekki væri fyrir álverið. Dálítið til í því en í dag er Hafnarfjörður svo miklu meira og býr yfir svo miklu, miklu meira.  Reyndar varð mér um og ó þegar hann fór að boða fleiri álver, í Húsavík og Helguvík.  Virkja meira og virkja ennþá meira.  Ég held að mörgum á fundinum hafi blöskrað.  Framfarir liggja í öðru en slíkum blautum draumum.

Sækkun álvers er ekki nein lausn, heldur mætti frekar líkja því við að pissa í skóinn sinn. Kannski hlýtt og notalegt í smá stund, en kalt og blautt til lengri tíma.


Jæja, þá er það byrjað

Áróður Alcan er kominn á fullt.  Öllu til tjaldað.  Samtök Atvinnulífsins fella stóra dóma um hvað Hafnfirðingar munu missa af og eitt það ömurlegasta við þetta allt er hvernig hlutlausri skýrslu Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands er snúið, hún teygð og lítið gert úr henni.  Það er dapurt að horfa upp á ofsagræðgi valta yfir það sem stendur svart á hvítu.  Hlutlausta gangrýni. 

Á fundi sem ég var á í gærkvöldi steig blaðafulltrúi Alcan í pontu og smelti því framan í fundarmenn að skýrslan væri bull.  Fólkið í Hafnarfirði færi með rugl.  Meira að segja þvertók hann fyrir að álverið yrði þrisvar sinnum stærra en það er er í dag.  480000/160000=3. 

Mér er óglatt.

Örlítil viðbót, frétt á Rúv.is

Mér er meira óglatt.


Davíð Þór Jónsson - Bakþankar 18. mars 2007

FAGRI HAFNARFJÖRÐUR?
Senn taka Hafnfirðingar afdrifaríkustu ákvörðunina sem tekin hefur verið um framtíð bæjarins síðan Hansakaupmenn réðu þar ríkjum. Spurt er hvort bæjarbúar vilji að stærsta álbræðsla Evrópu rísi í hjarta Hafnarfjarðar.

Í raun er undarlegt að spyrja þurfi að að þessu. Ef af fyrirhugaðri stækkun verður mun álverið í Straumsvík nefnilega ausa um 70 tonnum af svifryki á ári yfir íbúabyggð í bænum. Losun gróðurhúsalofttegunda mun rúmlega tvöfaldast og fyrirhuguðu útivistarsvæði verður fórnað undir stærstu línumannvirki á Íslandi með 36 metra háum möstrum. Dettur einhverjum virkilega í hug að það sé hagur Hafnarfjarðar?

Það hefur verið dapurlegt að sjá hvernig útlenskir auðkýfingar með fulla vasa fjár og íslenskt leiguþý þeirra hafa dembt bláköldum lygum og hræðsluáróðri yfir Hafnfirðinga til að fá þá til að makka rétt og lúta hagsmunum fyrirtækisins. Sýndar eru fallegar myndir af ímynduðu álveri þar sem "óvart" vantar allar raflínur, skorsteina jafnháa Hallgrímskirkju og ýmislegt annað sem þarf til að álbræðslan yrði starfhæf. Jafnvel eru sýndar myndir af litlu álveri í Noregi sem er jafnlíkt fyrirhugaðri stóriðju í Straumsvík og lambasparð er fjóshaugi. Af hverju ætti sá sem hefur sannleikann sín megin að ljúga?

Sagt er að verði stækkunin ekki samþykkt verði álverinu lokað því núverandi stærð sé svo óhagkvæm í rekstri. Hún er þó ekki óhagkvæmari en svo að aðeins þrjú þeirra 22 álvera sem ALCAN starfrækir nú eru stærri. Af hverju ætti álverið í Straumsvík að vera lagt niður? Af því að það er svo þreytandi að græða bara fjóra milljarða á því á hverju ári? Enginn hefur nefnt að loka eigi einhverju hinna álveranna.

Og þótt lokað yrði, bættur sé skaðinn. Nýlega misstu um 600 manns vinnuna við brotthvarf Bandaríkjahers. Samt lagðist byggð á Suðurnesjum ekki af eins og hótað hafði verið. Íslenskt atvinnulíf þyrstir í vinnuafl. Vinnufær Íslendingur er ekki vandamál, hann er tækifæri. Það er ALCAN sem þarf Hafnarfjörð, ekki öfugt – sama hve mörghundruð milljónum fyrirtækið ver til þeirrar blekkingar.

Látum ekki ljúga vitið úr hausnum á okkur. Látum ekki stjórnast af innihaldslausum hótunum og hræða okkur til undirgefni.

Seljum ekki erlendum auðhring Hafnarfjörð barna okkar.

Þessi pistill birtist á baksíðu Fréttablaðsins 18. mars 2007.
Ég tók mé það bessaleyfi að birta hann hér, ég vona að Davíð fyrirgefi mér það. 


Sorrí gamli gráni

Ég er súr og svektur.  En kannski mest hissa.  Um daginn voru forstjórar olíufélaganna sýknaðir í hæstarétti af ákæru um samráð.  Þrátt fyrir að fyrir lægju gögn sem sýndu svart á hvítu að þeir mökkuðu sig saman, höfðu samráð um verðlagningu og skiptingu markaðarins.  Ég er súr og svektur yfir því að þeir ganga út og smæla framan í heiminn, hvítþvegnir af öllu.  Ósnertanlegir.

 


Þetta eru ekki endalok...

... nú er bara að bretta upp ermar.  Ég trúi ekki öðru en deiliskipulagið, sem kosið verður um,  verði ekki samþykkt.  Álverið er fínt eins og það er.  En stækkun... æ nei.  Vil ekki stærsta álver evrópu nánast í garðinum.


mbl.is Fleiri með en á móti álversstækkun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ja, nú er ég hissa...

... þetta kom sannarlega á óvart.
mbl.is Félag starfsmanna Alcan ÍSALs mælir með stækkun álversins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki er ráð nema í tíma sé tekið

...best að drífa í þessu.
mbl.is Vilja svipta Hitler þýskum ríkisborgararétti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Snöggir að þessu...

...eru þeir jafn snöggir að lækka aftur? 
mbl.is Verð á eldsneyti hækkar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Réttur dagsins

Bókamarkaðurinn í Perlunni er ágætis snilld.  Við kíktum þangað, svona fyrir forvitnissakir.  Vorum ekki með neitt sérstakt í huga.  Fórum út með þrjá árganga af tímaritinu Útivera, Eragon II, tvö landakort og smáræði í viðbót.  Búinn að flétta hratt í gegnum öll tölublöðin og nú er bara að byrja að lesa sig í gegn um þau. 

Í dag var opnuð kosningaskrifstofa Sólar í Straumi.  Ég kíkti þangað.  Fínasta stemning og létt yfir öllu.  Ég skráði mig meira að segja í samtökin.  Gott hjá mér.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband