Föstudagur, 11. maí 2007
Hana, étið þetta
Við þökkum kærlega fyrir meðaltalið. Það er ekki svo slæmt.
Ég hef verið í smá vandræðum með að átta mig á hversu mikla kaupmáttaraukningu ráðstöfunartekna mér hafi hlotnast síðustu árin. Ég var sannfærður um að það væri nánast bara ekki neitt. Alla vegana finnst mér buddan mín alltaf frekar létt. En svo ákvað ég að skoða þetta örlítið nánar og komst að fínni niðurstöðu.
Ég lagði saman ráðstöfunartekjur mínar, tveggja leikskólakennara, eins framhaldsskólakennara, Bjarna Ármannssonar, Hreiðars Más Sigurðssonar, Björgúlfs Thors Björgúlfssonar og mömmu minnar sem vinnur á Sólvangi. Svo deildi ég bara. Ekkert flókið dæmi. Útkoman var ótrúleg. Við höfum það sko alls ekkert skítt. Heldur að meðaltali helvíti gott. Við erum, að meðaltali, með skrilljónir til ráðstöfunnar.
Hvað er svo verið að væla.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Miðvikudagur, 9. maí 2007
Vegalaus úti í óbyggðum með langa fyrirsögn vommandi yfir hausnum
Það birtist heilsíðuauglýsing í einhverju blaðinu í dag frá því ágæta fyrirtæki Brimborg. Þar sagði að bílar menga ekki, heldur mennirnir sem þá keyra og eiga. Einmitt. Byssur drepa heldur ekki, heldur þeir sem þær eiga.
Bílar eru fræbærir og allt gott um þá að segja. Ég hef ekkert undan þeim að kvarta, en svona auglýsingar eru bara prump. Það mætti alveg eins segja að nammi skemmir ekki tennur, rigning gerir mann ekki blautan nema maður standi óvarinn úti undir berum himni í rigningu. Dæmalaus vitleysa.
Þar sem ég hef ekki enn gert upp hug minn varðandi kosningarnar núna á laugardaginn, gerði ég það að gamni mínu að taka eitt skemmtilegt próf sem á að sýna hvert hugur manns stefnir. Til að sannfærast tók ég prófið í tvígang og lét líða sólarhring á milli. Það er skemmst frá því að segja að ég, kaupfélagsstjórasonurinn sjálfur, aðhyllist minnst framsóknarflokknum. Það kemur mér svo sem ekki mikið á óvart. Samkvæmt þessu prófi kýs ég Hindúaflokk sem hefur ekki enn verið stofnaður, en hann kemur til með að leggja áherslu á Hatha yoga, baunaspíruræktun, íhugun og að fá Formúlu eitt keppni hingað til lands. Ég verð væntanlega dauður þegar að þessu öllu saman kemur.
Ég heyrði aðeins í vini mínum í dag, en hann er búsettur úti í Noregi. Hann er að kæfa sig í vinnu og kvefi en hefur það þó fram yfir okkur að sumarið er byrjað að banka uppá hjá þeim. Hann gerir ráð fyrir að það bresti á með fullum þunga eftir tvær vikur eða svo. Ég vona að okkar sumar láti sjá sig ekki seinna en um miðjan júlí og vari, að minnsta kosti fram í ágústlok. Þá verð ég alsæll. Nú er bara að bíða, vona og sjá.
Ég er ekki enn búinn að átta mig á nýja teljarasísteminu hér á moggabloggi. Kem væntanlega ekki til með að skilja það. En það er líka barasta allt í lagi.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þriðjudagur, 8. maí 2007
Verra gæti það nú verið
Jæja, okkur VÍSurum gengur bara skratti vel í átakinu hjólað í vinnuna. Dólum svona í 4-7 sæti. Þegar ég kom heim eftir vinnu hafði ég klárað eitthvað um 109 km. Það er ágætt á ekki lengri tíma.
Í dag, á heimleiðinni var mér hugsað um celeb, íslensk celeb. Selebb. Við erum svo fátæk af selebbum og öll erum við orðin hundleið á að sjá alltaf sama fólkið framan á og í öllum tímaritum að eitthvað þarf að gera. Jú þá er tjaldað til flugfreyjum. Ég sá í einhverju blaði um daginn þar sem flugfreyja (starfsheitið var sérstaklega tekið fram) mælti með einhverri innréttingu, fataskáp eða einhverju álíka. Framan á séð og heyrt er sagt að einhver fasteignasali hafi haldið áramótapartí. Þetta þykir mér lítið merkileg frægð. En ég er nú líka svo smekklaus og fylgist lítið því sem er hipp og kúl.
Það styttist í kosningar. Ég veit ennþá ekki hvaða flokk ég ætla að kjósa. En ég er sannfærður um hvaða flokkar myndi næstu stjórn. Það verða Sjálfstæðisflokkur og Samfylking. Ég þori að veðja.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Það er bara ekkert að frétta. Sumir dagar eru bara þannig.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 4. maí 2007
Öpp and atóm
Það kom mér á óvart hvað það er lítið mál að renna úr Hafnarfirðinum til Reykjavíkur á hjóli. Þetta eru á milli ellefu og tólf kílómetrar á skrifstofuna í Ármúlanum. Ég var 36 mínútur í morgun en á miðvikudaginn þegar er renndi þetta fyrst þá var ég rétt rúmar fjörtíu mínutur enda þá ekki alveg klár á hvaða leið best væri að fara. Svo skellir maður sér bara í hressandi sturtu og er spikk and span, reddí tú rokk klukkan átta. Tær gargandi snilld.
Á þessum hjólaferðum hef ég tíma til að hugsa um hvað sem er. Eitt er það hvers vegna hnakkar á reiðhjólum a.m.k. fjallahjólum eru svona skratti óþægilegir. Mjóir og frekar harðir. Að sjálfsögðu komst ég að niðurstöðu og hún er sú að hjólaframleiðendur vilja náttúrulega selja aukahluti á borð við gelhnakk og hjólabrækur með svampklofi. Sniðugir. Ég geri fastlega ráð fyrir að seinnipartinn í næstu viku verði ég kominn með þokkalegt sigg á gumpinn og harður hnakkur verði ekkert mál.
Hún mamma átti afmæli í gær. Við Kristín röltum okkur yfir til hennar i gærkvöldi. Létt spjal og rólegheit hún fer nú að komast á virðulegan aldur.
Fleira ekki gert og fundi slitið.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 1. maí 2007
Furðulegt helvíti
Ég hef verið að velta því fyrir mér hvers vegna mér sé í raun nákvæmlega sama um pólítík. Hún kemur mér við og maður á margt undir því hvernig landinu er stjórnað, en mér er í raun sama hver gerir það. Þessir flokkar sem hér eru, sama hvort þeir heita Samfylking, Sjálfstæðisflokkur, Framsókn, Vinstri Grænir eða eitthvað annað, eru nánast snýttir úr sömu nös. Það er áherslumunur á þeim sem fer eftir vindátt en það er allt og sumt.
Núna fyrir kosningar kemur hver flokkurinn á fætur öðrum með glórulaus kosningaloforð. Það á að gera þetta og það á að gera hitt. Það á að veita fé í þetta og það á að veita ennþá meira fjármagni í hitt. Það skiptir ekki máli hvað er sagt, því jú, þegar kemur að því að mynda stjórn eru gerðar málamiðlanir. Þá er mestu vitleysunni stungið undir stól fram að næstu kosningum. Þess vegna heita þessi loforð - kosningaloforð.
Eins hef ég verið að velta ábyrgð stjórmálamanna örlítið fyrir mér. Á tillidögum og þegar mikið liggur við segjast þeir allir bera ábyrgð. Þegar eitthvað bjátar á og óþægileg mál koma upp er þvælt fram og til baka hvort þeir eigi að bera pólitíska, lögfræðilega eða siðferðilega ábyrgð. Það var nú bara núna í vetur að formaður fjárlaganefndar sagðist vissulega bera ábyrgð, en hann var ekki viss hvernig ábyrgð hann bæri. Þetta var Byrgismálið. Og hvað?
Á sínum tíma voru utanríkisráðherrahjón tekin við smygl á kjöti til landsins. Það fannst svínakjöt í fórum þeirra við leit. Því var snúið upp í að vinkona þeirra sem þau hittu í ferðinni hefði átt þetta. Einmitt. Ráðherrann kjaftaði sig út úr þessu. Sami ráðherra verslaði áfengi út á ráðuneytið í veislu fyrir ritstjóra flokksblaðsins. Jú, hann bar ábyrgð en sagðist vera breyskur maður - og hvað svo?
Þingmaður er dæmdur til fangelsisvistar, situr inni. Fær uppreisn æru frá handhöfum forsetavalds, flokksystkynum sínum, og er kominn aftur á fullt. Sterkari en nokkrusinni.
Ég man í fljótu bragði eftir einum ráðherra sem gerði eitthvað í sínum málum. Guðmudur Árni Stefánsson sagði af sér ráðherraembætti eftir að hafa gert nokkrar bommertur. Mig minnir þó að hann hafi setið áfram á þingi.
Stjórmálamenn segja oft að verk þeirra séu lögð fyrir dóm kjósenda á fjögurra ára fresti. Að vissu leyti er það rétt en að mörgu leyti er það náttúrulega bara krapp. Starfsmaður, í hvaða fyritæki sem er, sem brýtur af sér, er umsvifalaust sagt upp, eða honum er gert að segja upp. Punktur og basta.
Þetta rifjast upp núna þegar umhverfisráðherra umhverfðist í viðtali sem ég sá á rúv um daginn. Ég hef sjaldan orðið jafn krossbit á framferði í sjónvarpi. En svona er þetta. Það má ekki spyrja að neinu óþægilegu. Bara að halda kjafti og horfa upp til þessa fólks sem stjórnar. Smæla framan í heiminn.
Það mætti halda lengi áfram. En niðurstaðan er sú að þetta er óskaplegt bananalýðveldi sem við búum í og manni er nánast slétt saman hver ráði í sandkassanum.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þriðjudagur, 1. maí 2007
Á þetta ekki vel við?
Fram, þjáðir menn í þúsund löndum,
sem þekkið skortsins glímutök!
Nú bárur frelsis brotna á ströndum,
boða kúgun ragnarök.
Fúnar stoðir burtu vér brjótum!
Bræður! Fylkjum liði í dag -
Vér bárum fjötra en brátt nú hljótum
að byggja réttlátt þjóðfélag.
þó að framtíð sé falin,
grípum geirinn í hönd,
því Internationalinn
mun tengja strönd við strönd.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 29. apríl 2007
Já, gerðu það bara
Ég á það til að vera ekki á réttum stað á réttum tíma. Eða gera ekki það rétta á réttum tíma. Stundum er það líka ágætt. Ég keypti ekki í DeCode þegar það trend tröllreið landanum. Heppinn þar. En ég var líka ekki í Ásbyrgi í dag, þegar glæsilegt óopinbert hitamet var slegið. Óheppinn. Ásbyrgi, Hjóðaklettar og það svæði er einn af þessum mögnuðu stöðum sem gaman er að heimsækja. Hver veit hvort við kíkjum þangað í sumar. Það væri bara vel til fundið. Skaftafell á líka sess hjá mér. Gönguferðir þar í grend til dæmis í Bæjarstaðaskóg í góðu veðri er eitthvað sem maður man lengi.
Á meðan par eitt var að velta því fyrir sér að kaupa penthás íbúð í Gramercy Park í NY, til viðbótar við aðra í búð sem þau áttu fyrir í því glæsilega húsi, þá var ég að velt því fyrir mér hvort ég ætti að fá mér reiðhjól. Ég komst ekki að niðurstöðu þá. Ég þurfti lengri tíma til að spá og spöglera. Mér leist nefnilega vel á tvö hjól Annað kostaði um 33.000 krónur hitt var á 44.000 krónur. Ég fylltist valkvíða, en það gerist eingöngu þegar ég er að fjárfesta. En eftir fréttir á mbl um hvernig Jón og Lilja fóru að þá er þetta náttúrulega borðleggjandi. Það er náttúruleg þjónustan sem skiptir máli, og ef manni líkar hún þá bara, go for it.
Hamingja er í kollinum á manni. Um að gera að muna það.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 28. apríl 2007
...og hver kemur til með að ríða rækjum næsta kjörtímabil...
Hellingur í gangi og maður er bara er ekkert að tjá sig. Framsókn í hverri holskeiflunni á fætur annarri. Allt að leka niður hjá Íslandshreyfingunni. Samfylkingin ekki að gera neinar rósir. Vinstri Grænir.... svona lala. Prestar á kirkjuþingi ekki alveg að átta sig á hvaða ár er. En ég ætla ekkert að tjá mig um þessi leiðindi. Það er annað sem er mun áhugaverðara og það er klósettpappír.
Ég á mér nokkrar gerðir af uppáhalds klósettpappír. Ég er sérstaklega hrifinn af Andrex pappír, þessum sem er með hvolpinum utan á. Það er góður pappír, tvöfaldur og mjúkur og maður finnur hreinlega gæðin. Einnig er ég hrifinn Lotus pappír, þessum sem svipar til Andrex. Sömu gæði þar.
Ég er ekki hrifinn af bónuspappír eða einföldum ódýrum pappír sem fer í tætlur við minnstu snertingu. Það má notast við slíkan pappír í neyð.
Ég man nú ekki hvaða stórsnillingur mismælti sig svona snilldarlega í útvarpinu og sagðist ríða rækjum næstu tvo tímana eða svo en ég hlæ ennþá að því.
Bloggar | Breytt 29.4.2007 kl. 00:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 24. apríl 2007
That's why they call me Mister Fahrenheit
Ég á það til að vera skelfilega pirraður og látið smávægilegustu smámuni fara í taugarnar á mér. N1 herferðin er svona pirrings. Heilu opnurnar í dagblöðunum með mynd sem búið er að afbaka og skemma. Sjónvarpsauglýsingin er svo illa stolin frá Póstinum (allur pakkinn) að maður fer hjá sér og aumingjahrollurinn gerir nánast út af við mann. Það eina sem er gott við þá auglýsingu og heldur henni uppi er Queen, Don't stop me now.
Annars er maður bara nokkuð sprækur. Síðustu vikur hef ég skrönglast út og joggað dálítið. Þrisvar til fjórum sinnum í viku eða svo. Þetta er hluti af planinu fyrir Glerárdalshringinn. Ég held að það sé betra að vera í þokkalegu formi. Nenni ekki að fara þetta á hörkunni, japplandi á jöxlunum. Vill frekar fara með innistæðu í farteskinu.
Svona að lokum langar mig til að benda á einn frábæran pistil eftir Ármann Jakobsson.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)