Fimmtudagur, 19. apríl 2007
Höldum þessu svona
Við tókum daginn snemma, eða um klukkan átta. Það var gott. Máni fékk frá okkur hraðamæli á hjólið í sumargjöf. Hann hafði laumað því að okkur að honum langaði í slíkt apparat.
Það var nóg um að vera hjá okkur öllum í dag. Máni hóf daginn á að taka þátt í víðavangshlaupi svo var það bíóferð og fótbolti hjá honum. Við Kristín tókum því ólíkt rólegra. Röltum okkur dálítið, bæði hér í Hafnarfirið og einnig tókum við smá skrens í Reykjavíkinni.
Þetta var bara góður dagur. Og annað sem er líka gott... stutt í helgina.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 18. apríl 2007
Gleðilegt sumar
Það stefnir í að vetur og sumar frjósi saman. Það veitir á gott sumar. Það er gott.
Var með Bubba í eyrunum núna í kvöld. Féll alveg fyrir þessum texta hjá honum.
VIÐ TVEIR
Lítill strákur kallar á pabba sinn.
Blómin vaka á velli grænum.
Heiður er himininn.
Litill strákur bíður faðminn sinn.
Hlátur hjartað bræðir.
Og litli lófinn þinn.
Hér liggjum við tveir og trúum því,
að Guð sé góður og ljúfur.
Tyggjum strá,horfum hátt,
til himins pabba stúfur.
Þarna krunkar krummi á börnin sín.
Krummi hann er fuglinn okkar.
Á vænginn sólin skín.
Lítill strákur fann þar sem hann grær.
Fjögurra blaða smára.
Augun hrein og tær.
Hér liggjum við tveir og trúum því,
að Guð sé góður og ljúfur.
Tyggjum strá,horfum hátt,
til himins pabba stúfur.
Hér liggjum við tveir og trúum því,
að Guð sé góður og ljúfur.
Tyggjum strá,horfum hátt,
til himins pabba stúfur.
Hér liggjum við tveir og trúum því,
að Guð sé góður og ljúfur.
Tyggjum strá,horfum hátt,
til himins pabba stúfur.
Höfundur Bubbi Morthens
Takk fyrir veturinn
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 16. apríl 2007
Taktu lýsi og borðaðu fisk
Maturinn fór dálítið skakkt ofan í mig í hádeginu. Ingibjörg Sólrún og Mörður Árna heiðruðu okkur VÍSara og kynntu sín helstu mál. Þetta var frekar pínlegt fyrir þau að rölta á milli borðandi fólks og spjalla um stefnur og kosningamál. Afskaplega leiðinlegt svona í hádeginu.
Samfylkingin er líka dottin í sama pittinn og Framsókn gerði hér fyrir nokkru. Lofa 5000 nýjum störufm. Þau eru reyndar hógværari en Framsókn sem lofaði 12000 nýjum störfum á sínum tíma. En þetta selur víst og hljómar vel. Ég hef velt því fyrir mér hvað hefði gerst ef öllum þessum störfum hafi ekki verið lofað. Þá værum við heldur betur illa stödd. En hver eru þessi 12000 nýju störf?
Þar sem ég er pólitískt viðundur hef ég ekki með góðu móti ákveðið hvað ég á að kjósa eftir mánuð. En ég sannfærist hægt og rólega um hvað ég ætla ekki að kjósa.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 15. apríl 2007
Sunnudagsmorgun
Var vaknaður rúmlega átta í morgun. Vakti strákinn um hálf níu, en hann er að keppa með FH á Faxaflóamótinu sem er um þessar mundir. Það verður gaman að sjá hvernig þeim gengur.
Það er komið vor, eða svona er að bresta á. Um daginn settist ég út í garð með blöðin og sötraði kaffi. Þetta var eftir vinnu. Það var ósköp ljúft. Ég hlakka til þegar við skríðum meira inn í vorið og sumarið. Það er stutt i að við sækjum tjallann okkar úr geymslu. Þá er náttúrulega komið sumar. Ferðalög og ýmislegt brall.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 14. apríl 2007
Kaffi klukkan hálf tíu
Eftir að hafa skutlað stráknum á fótboltaæfingu klukkan rúmlega níu var hellt uppá kaffi, blöðin lesin og svo smá netráp. Það er fínt að byrja helgina svona. Ekkert stress og vesen.
Í vikunni sem er að líða skráði ég nokkra hressa Þórólfa til göngu þann 07.07.07. Glerárdalshringinn. Ég endaði einnig letifríið mitt og er byrjaður að skokka og hreyfa mig aftur eftir um mánaðar langa pásu.
Það er rétt rúmur mánuður í fyrstu ferð Þórólfa. Birnudalstinda. Það er frekar krefjandi ganga. Eitthvað fleira gerum við þá helgi. Eitthvað verið að velta sleðaferð til Grímsvatna fyrir sér. Kemur í ljós.
Sumarfríð mitt verður óttalega tætingslegt. En það verður skemmtilegt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 13. apríl 2007
Föstudagurinn þrettándi
Mér varð það til óhapps að hafa kveikt á sjónvarpinu og hlusta, með öðru eyra, á Kastljósþátt kvöldsins. Þær voru þar til skrafs, Ragnheiður Elín Árnadóttir frá Sjálfstæðisflokki og Kristrún Heimisdóttir frá Samfylkingunni. Ragnheiður byrjaði á að sýna hroka og yfrlæti sem á ekki að sjást eða heyrast í sjónvarpi. Toppað þar meira að segja brandara Geirs Hilmars um sætu stelpuna og hvað mætti notast við. Hræðilegt hjá henni. Kristrún átti sína slöppu spretti líka. Sífellt gjammandi og grípandi fram í fyrir Ragnheiði. Ég held að þær vilji láta taka sig alvarlega. Það er ekki hægt. Ekki þegar þær haga sér svona. En þáttinn má væntanlega sjá á ruv.is
Föstudagurinn þrettándi er greinilega óhappadagur. Hundur í óskilum bjargði því sem bjagða var - en þeir komu fram í sama þætti. Snillingar
Bloggar | Breytt 14.4.2007 kl. 17:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 13. apríl 2007
Hólímakkaróní
Ég var að dunda mér á netinu og komst að því að víst er Ísland hluti af USA. Eða USA hluti af Íslandi. Væntanlegt framsókarþingmannsefni suðurnesja Helga Sigrún Harðardóttir er með meistarapróf frá Oklahoma háskóla á Keflavíkurflugvelli.
Jámm.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 12. apríl 2007
Nú skal öllu tjaldað til
Sjálfstæðismenn blésu í lúðra í dag. Landsfundur með öllu því fagra sem slíkur fundur býður uppá. Nú koma krassandi loforð sem sauðsvartur pöpullinn fellur fyrir. Já.
Framsókn hélt sinn landsfund fyrir stuttu síðan. Loforðaflaumurinn væntanlega veglegur. Ég hef ekki náð að setja mig inn í hann. En að öllum líkindum er hann álíka fagur og Sjálfstæðismenn koma til með að bera fram.
Ég renndi augum yfir lista loforða þessara flokka frá því fyrir síðustu kosningar, sem birtur var í einhverju blaði um daginn. Árángurinn er ekkert stórkostlegur. Eiginlega til skammar.
En það er bara allt í lagi. Ný loforð á fjögurra ára fresti... jú og svo sakar ekki að setja upp bros, auglýsa eins og vitleysingur og haga sér eins og ....
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 10. apríl 2007
Ammæli í löngum bunum
Hlynur á ammæli í dag. Ég rölti mér til hans áðan, en hann hafði skoppið út að borða með stelpunum sínum. Gott hjá honum. Til haminju með daginn kúturinn minn.
Og hún skottulía frænka mín, Stefanía Arna átti ammæli í gær. Til hamingu með gærdaginn skotta.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 9. apríl 2007
Þá er friðurinn úti ...
Í sjónvarpinu var eitthvað það jafn leiðinlegasta sjónvarpsefni, á eftir maður er nefndur, nú í kvöld. Formenn stjórmálaflokkanna sátu fyrir svörum og reyndu að toppa hvon annan. Þetta er ekki sjónvarpsefni frekar að horfa á sokka þorna á ofni. En svona verður þetta næsta mánuðinn eða svo.
Fjórða hvert ár er öllu flaggað. Hvert loforðið á fætur öðru er sett fram og við bítum á agnið.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)