Mánudagur, 28. maí 2007
Og það var sumar aftur í dag
Ég hef fundið nýtt hlutverk fyrir buffið mitt. Fyrir þau sem ekki vita þá er buff einhverskonar sokkur, opinn í báða enda og passar á höfðu fólks. Fjallafólk notar þetta óspart, sem húfu, skuplu og hvað sem er. Maður er sérlegur töffari ef maður er með buff á hausnum. Þessi flík er einnig þekkt sem Had. Ef þið vitið ekki enn hver þessi flík er þá má benda á að krakkar eru mikið með þetta á hausnum, í dag eru krakkabuffin með myndir af íþróttaálfinum og Sollu stirðu. Nú. Nýja hlutverk buffsins míns er augnleppar. Nú þegar daginn er tekið að lengja og hann hefst alltaf fyrr og fyrr varð ég að finna upp á einhverju, því herbergið er uppljómað af sólinni fyrir allar aldir. Ekki alveg það skemmtilegasta þegar manni langar til að sofa aðeins lengur. Eitthvað varð til bragðs að taka. Datt mér þá í hug að bregða buffinu fyrir augun og athuga hvort það gerði eitthvað gagn. Ég sofnaði fljótt og svaf sem engill til klukkna níu. Í gærkvöldi skellti ég því buffinu fyrir augun og svaf eins og rotaður fram eftir morgni.
Ég gekk á Helgafell. Ætlaði mér góðan tíma í það. Ég var rétt um 40 mínútur upp á topp frá bílastæðinu. Ekkert a flýta mér. Á toppnum tók á móti mér fjölskylda með geltandi hund á móti mér. Þau voru að gæða sér á nestinu og tíkin vildi passa upp á sitt fólk. Ég ætlaði mér að ganga þá aðeins yfir á fellið áður en ég kvittaði fyrir komunni í gestabókina, en það endaði með því að ég gekk niður hinum megin og gekk svo fyrir fellið. Þar sem ég var djúpt þenkjandi og ekki alveg við hugann við það sem ég var að gera, munaði engu að ég rölti mér aftur upp. Áttaði mig á því að ekki var allt með felldu þegar ég mætti hundafjölskyldunni á niðurleið. Tíkarskömmin urraði á mig og vakti mig upp frá doðanum. Já, einmitt.
Nú eftir þessa hressilegu göngu, sem tók rúma tvo tíma, brunaði ég aftur í Hafnarfjörðinn og skellti mér í Suðurbæjarlaugina. Lá í heitapottinum í góðan tíma og mýkti upp stirða vöðva í lærum og kálfum. Nú er maður albúinn að hjóla í vinnuna í fyrramálið.
Þetta er búið að vera fínasta helgi.
Bloggar | Breytt 29.5.2007 kl. 08:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 27. maí 2007
Já svoleiðis nokk
Í dag glöddust gumar og sprundir. Sumarið var alltumleikis og ekki annað hægt en að njóta þess í botn.
Það fór lítið fyrir fjallgöngu hjá mér en þess í stað var hjólað. Ég lagði af stað um klukkan þrjú, eftir að Bogga systir og Týri höfðu kíkt í kaffi til mín, sem við drukkum úti. Ég var ekki alveg viss hvert mig langaði að fara en svo var bara stokkið af stað. Renndi sem leið lá í gegnum Garðabæ og Kópavog til Reykjavíkur. Strikið tekið á Sæbrautina og svo var ströndin þrædd aftur til Hafnarfjarðar með ýmsum útúrdúrum og krókum. Þetta urðu eitthvað um fimmtíu kílómetrar og tæpir þrír tímar.
Á morgun ætla ég að ganga á Helgafellið. Það klikkar ekki.
Ég er orðinn mjög spenntur fyrir Glerárdalshringnum. Þolið hefur aldrei verið betra og heilt á litið hef ég sjaldan eða aldrei verið í eins góðu gönguformi og nú.
Svo styttist í dásemd allra dásemda, Hornstrandir, en við eigum reyndar eftir að ákveða endanlega hvar við göngum. Ég hef verið að lesa Hornstrendingabók Þorleifs Bjarnasonar. Sú bók lýsir vel hve lífsbarátta íbúa svæðisins hefur verið hörð og erfið.
Ég vona að það verði sumar líka á morgun...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Laugardagur, 26. maí 2007
Alveg gengur þetta glimrandi vel
Jæja. Hvítasunnuhelgi, oft kölluðu fyrsta ferðahelgi ársins. Það er nú lítið ferðaveður núna. Frekar kalt og lítið spennandi að tjaldbúast. En þetta fer allt að koma.
Í vikunni lauk Hjólað í vinnuna, átaki ÍSÍ. Vísarar stóðu sig alveg hreint með mestu ágætum. Við urðum í fimmta sæti yfir dagafjölda og í sjötta sæti yfir flesta kílómetra á starfsmann. Ég held að ég hafi endað í 351 km. Samt ekki alveg viss. Síðasti dagurinn var þriðjudagur, og á miðvikudag sá maður varla nokkurn hjólamann á ferðinni úr eða í Hafnarfjörðinn. Við erum náttúrulega átaksfólk með eindæmum. Tökum það með trompi.
Það má vel vera að maður skelli sér í göngu á morgun. Fara á Vörðuskegga í Henglinum nú eða á Móskarðshnúka. Ætli maður láti ekki kylfu ráða kasti. Nú einnig er spennandi að fara í tveggja til fjögurra tíma hjólatúr. Maður sér til hvernig veður og færð verður.
Ég gekk í Sjálfboðaliðasamtök um náttúrvernd í vetur. Þetta er félagskapur sem vinnur að göngustígagerð og fleirum álíka verkefnum víðsvegar um landið. Ég veit ekki hversu virkur ég verð, en fyrsta verkefnið sem ég ætla að taka þátt í er á fimmtudagskvöldið næsta.
Kristín og Máni farinn austur í sveitina. Sauðburður í fullum gangi. Strákurinn ekkert smá ánægður með að vera kominn í sumarfrí. Algjör sæla.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 24. maí 2007
Nöldur, svona rétt til að ná úr sér hrollinum
Jæja. Nú er kominn tími til að rausa.
Ég er bara mjög sáttur við nýja ríkisstjórn. Reyndar hefði ég viljað að sjálfstæðisflokkurinn hefði verið með jafnara kynjahlutfall, en Þorgerður Katrín er nú á við þær margar. Fyrir kosningarnar spáði ég því að þessir flokkar myndu skríða saman.
Ég er ennþá í spámannsbuxunum. Ég held að það væri farsælast fyrir framsóknarflokkinn að ganga til liðs við Samfylkinguna. Þessir flokkar eru ekkert agalega ólíkir og ég held að kröftum framsóknarmanna væri betur varið í stærri flokki og framsóknarflokkurinn er búinn að vera í þeirri mynd sem hann er í dag. Spái því samruna þessara flokka innan ekki langs tíma.... tja segjum innan tveggja ára.
Hvað er þetta með Björn Bjarnason. Hann hefur reynar aldrei verið minn tebolli og ekki batnar það hjá honum. Á heimasíðu hans má lesa..."Morgunblaðið leggst eindregið á þá sveif í leiðara sínum í dag, að ríkisstjórnin eigi að halda áfram, enda hafi hún til þess meirihluta. Forsíðufrétt blaðsins er einnig í þeim anda." og hvað með það? Hvaða máli skiptir það hvað blaðamönnum eða ritstjóra á Mogganum finnist um ríkisstjórnina? Furðulegt. Eins held ég að hann verði að líta það alvarlegum augum hversu óvinsæll hann er. Það þýðir lítið fyrir hann að snúa útúr með því að segja a 80% hafi ekki strikað hann út. Þetta er sama útúrþvælda afsökun sem hann kom með þegar Guðlaugur Þór hafði hann betur í prófkjörinu í fyrra. Maðurinn áttar sig ekki á því að það er verið að hafna honum. Þó "aðeins" 20%, eða hvað það nú var, strikuðu hann út þá held ég að enn fleiri hafi hugað sér að gera það, eða kosið annan flokk. Djúpur.
Þá er nöldurhornið tæmt í bili. Næst segi ég frá því hver verður næsti forstjóri Símans.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 22. maí 2007
Astraltertugubb
Skelfing geta fréttir af stjórnarmynduninni verið leiðinlegar. Og mikið afskaplega svara stjórnmálamennirnir leiðinlega. Rignir upp í nefið á þeim og yfirlætið lekur af þeim.
Sjálfstæðisflokkurinn hefði átt að ganga alla leið og henda Þorgerði Katrínu úr ríkisstjórninni. Þvælist hún ekki bara fyrir í þessum kallaklúbbi?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 15. maí 2007
Mikið af hinu góða
Hér má sjá dömuna sem allt snérist um á laugardaginn. Ég var við það að missa fingur af kulda og eyrun köld í gegn þegar ég beið eftir henni.
Risessan er snilld. Öll umgjörðin utan um þetta ævintýri var frábært.
Kristín náði nokkrum góðum myndum af henni - ég læt eina fylgja hér.
Bloggar | Breytt 16.5.2007 kl. 08:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 15. maí 2007
Léttvín og bjór
Getur Framsóknarflokkurinn ekki bara vel við unað. Hann er nú ekki í neinu pilsnerfylgi meira að segja ekki bjórfylgi. Nei, Framsókn er í þokkalegu léttvínsfylgi. Reyndar hefur Framsókn ekki verið með minna fylgi í 90 ára sögu hans. Það er önnur saga
Ég hef verið að reyna að átta mig á þeim ósköpum og óhróðri sem fjölmiðlar og stjórnarandstaðan eru sögð hafa látið dynja á Framsóknarflokknum og frambjóðendum hans síðustu vikur og mánuði fyrir kosningar. Ég hef ekki enn náð að koma auga á neitt afgerandi. En það má nú vera að ég sjái ekki skóginn fyrir trjánum.
Ég spáði því fyrir kosningar að Samfylking og Sjálfstæðisflokkur myndu skríða saman upp í rúm. Ég ætla að halda mig við þá spá í smá stund í viðbót....
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 13. maí 2007
Mér þótti Siv syfjuð...
... það var viðtal við hana í sjónvarpinu. Hún virkaði dálítið þreytt. Ætli hún sé búin að fá nóg?
Risessan var aftur á móti alveg frábær.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 12. maí 2007
Fall ársins, samkvæmt fyrstu tölum
... og er það ekki bara málið.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 12. maí 2007
Og það var kosið
Þar sem þetta eru leynilegar kosningar þá ætla ég ekki að gefa uppi hvað ég kaus. Þó verð ég að hryggja suma og viðurkenna að ég kaus hvorki Vinstri Græna né Framsókn. Aðrir gleðjast yfir þessu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)