Sjálfkynhneigður

Einhvertíma fyrir löngu heyrði ég ágætt orðið.  Sjálfkynhneigður.  Það var sagt um þann sem var svo upptekinn af sjálfum sér að fátt annað komst að.  Viðkomandi sá ekki annað en sjálfan sig og það sem snéri beint að honum.  Nánasta umhverfi skipti hann ekki máli.  Nánasta fjölskylda var aukaatriði sem hann setti í annað sæti.  Þegar ég heyrði þetta orð fyrst fannst mér það fyndið, fjarlægt og í raun eins og góður brandari frá Tvíhöfða eða Radísusbræðrum (ef einhverjir muna eftir þeim). 

En svo fór ég að spá aðeins og spögglura.  Þekki ég einhvern sem mætti flokka sem sjálfkynhneigðan?  Einhvern sem er svo upptekinn af sjálfum sér að fátt annað kemst að?  Jú ég geri það og held að vel flest okkar viti um eitt og eitt slíkt kvikindi.  Oft á tíðum eru þetta bestu skinn.  En það er eins og það vanti eitthvað í þetta annars ágæta fólk.  Því finnst alveg sjálfsagt að vinir þess og fjölskylda hlaupi undir bagga hvernig sem á stendur fyrir því.  Það sér ekki aðstæður hjá öðrum, það eina sem kemst að er: ég, ég, ég.  Nánustu vinir og aðstandendur eru oft svo meðvirkir að ekkert má segja.  Ég er þannig.

Er maður ekki djúpur.


Af bloggi

Trendið í sumar hjá ofurbloggurum var að tilkynna að þeir væru nú í sumarfríi og því myndu þeir ekki blogga neitt næstu dagana, vikurnar eða jafnvel mánuðinn.  Þetta var náttúrulega algjörlega nauðsynlegt fyrir sauðsvartan pöpulinn sem fylgist með sínum ídólum, bíðandi eftir gullmolum sem sáldrast, líkt og úr viskubrunni heimspekinganna.  Mér sýnist stefna í það að nýjasta trendið sé að læsa blogginu sínu.  Erótíski rithöfundurinn Ellý Ármannsdóttir tók upp á því, eftir að hafa gengið fram af siðvöndum lesendum sem slysuðust inn á síðuna hennar.  Þegar ein belja mígur má búast við að þær geri það allar.

Þá er ekki annað hægt en að pæla í því hvers vegna fólk er að halda úti bloggsíðu.  Ég hef haldið að blogg væri opin dagbók, þar sem bloggarar tjá sig um allt og ekkert.  Annað hvort stendur maður við það sem maður skrifar eða sleppir því bara að birta það.

Æ...maður á það til að vera svo mikill tuðari.  Auðvitað má fólk hafa þetta eins og það vill.


Píslagangan - Síminn

Að vera fyrstur með eitthvað á Íslandi og auglýsa það með meira en 2000 ára gamalli uppákomu er frekar hlægilegt og dálítið lýsandi.... 

Auglýsingin er flott unnin og allt það, en fyrir mitt leiti þá er frekar kjánalegt að tengja símann og Jesú saman.  Það er spurning um að þessa fínu línu, fara ekki yfir hana.

Í Kastljósinu í kvöld reyndi Brynja að gera mikið mál úr þessu.  Var ekki bara íslenskt Spámannsmál í uppsiglingu.  Fulltrúi biskupsstofu eyddi öllu slíku.  Enda óþarfi að tapa sér yfir þessu.

Auglýsingahöfundurinn, Jón Gnarr, varði náttúrulega barnið sitt.  Tók meir að segja svo djúpt í árinni og sagði auglýsinguna fallega.  Tja.... hverjum þykir sinn fugl fagur og allt það.

Síminn fær náttúrulega hellings umtal, allir hafa skoðun á þessu.  Er þá ekki tilganginum náð hjá þeim?


Uxum ásmegin

Það tók dálítið á að hjóla heim eftir vinnu í dag.  Mótvindur töluverður, ég þurfti meir að segja að hjóla niður Kópavogs- og Arnarneshæðirnar, það var ekki viðlit að hægt væri að láta sig bara renna.  Svo rigndi líka slatta.  Þetta var hressandi en tók töluvert lengri tíma heldur en dags daglega.  Það var mun skárra veðrið í morgun.  Þá var bara rigning og nánast logn.

Það hófst heilsuátak hjá okkur í VÍS í dag.  Maður var mældur í bak og fyrir.  Það verður gaman að sjá hvort maður geri einhverja góða hluti.  Létta sig um nokkur kíló eða svo.  Kemur allt í ljós.  Alla vegana stefni ég að því að dusta rykið af kortinu mínu í ræktinni, og jafnvel að fara að mæta.


FH

Við feðgarnir skelltum okkur á völlinn í gær og horfðum dáleiddir á okkar menn, FH, sigra Breiðablik í stórskemmtilegum og spennandi leik. 


Nótt

Nú ríkir kyrrð í djúpum dal,
þótt duni foss í gljúfrasal,
í hreiðrum fuglar hvíla rótt,
Þeir hafa boðið góða nótt.

Nú saman leggja blómin blöð,
er breiddu faðm mót sólu glöð,
í brekkum fjalla hvíla hljótt,
þau hafa boðið góða nótt.

Nú hverfur sól við segulskaut
og signir geisli hæð og laut,
er aftanskinið hverfur hljótt,
það hefur boðið góða nótt.


Þetta fer allt að koma

Þetta er ljúfur árstími.  Dagarnir bjartir og rökkur á kvöldin.  Yndislegt að rölta um bæinn sinn.  Skoða hús, garða, fólk, göturnar og allt sem fyrir ber. 

Fórum í kjötsúpu til mömmu í kvöld.  Það var gott.  Spjölluðum svo við hana, Júlíu og Hlyn.  Áttum góða stund með þeim.  Datt svo í einhverja nostalgíu og skoðaði myndaalbúm.  Myndir sem mamma hefur tekið síðustu ár.  Sérstaklega gaman að sjá hvað við bræðurnir vorum einu sinni grannir og spengilegir.  Í dag er Hlynur sá eini sem með sanni má segja að líti skratti vel út.  Við hinir erum að slaga í að verða miðaldra bumbur.  En ég held að við séum að vinna í þessu. 

Sjá tólin fyrir jólin... það er málið.


Algjörlega út úr kú

Ég fékk lánaðan Queen disk hjá Hlyn bróður.  Greatest Hits 1.  Hvert snilldarlagið á fætur öðru.  Það var gaman að rifja upp öll þessi snilldarlög.  Ég fer ekki ofan af því að Farrokh Bulsara, betur þekktur sem Freddie Mercury, var einn allra besti söngvari sem hefur lifað á þessari vesælu plánetu.

Þetta var útúrdúr.  Kemur ekki neinu við.  Ekki baun í bala.


Sumarfríið búið

Sumarfríið búið.  Tókum hringinn á samt ýmsum útúrdúrum á tæpum tveim vikum.  Frábært.

Vinna á morgun.  Lífið skríður í fastar skorður.  Það verður ágæt.  En hefði alveg verði til í að minnsta kosti eina viku til viðbótar.... tvær vikur í röð eru svona rétt til að vinda ofan af manni. Næsta sumar verður öðruvísi.


Spáð og spögglerað

Nú er spurning hvert maður fer um helgina... austur eða vestur?  Kannski verða rólegheit yfir öllu og við brunum ekki úr bænum fyrr en eftir helgi... stutt í sumarfríið.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband