Miðvikudagur, 25. júlí 2007
Er hægt að selja fólki allt....
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Sunnudagur, 15. júlí 2007
Ömurleg miðborg
Enn einn dásemdardagur. Það er bara ekkert lát á sumrinu. Hvernig endar þetta eiginlega.
Við Kristín vorum mætt út í Suðurbæjarlaug klukkan rúmlega tíu í morgun. Lágum á bakkanum og bökuðum okkur til klukkan eitt. Er samt merkilega lítið brenndur, enda bar ég öfluga barnasólvörn á mig allan, svona til að koma í veg fyrir stórslys.
Víð fórum svo í smá stúss. Í Útilífi keyptum við okkur potta sem okkur hefur langað í. Þetta er sérleg kasaróla til að elda útilegumat. Létt og vonand bara skratti góð. Nógu mikið kostuðu herlegheitin.
Nú eftir það ákváðum við að skoða miðborgina örlítið. Lögðum við Hallgrímskirkju og röltum þaðan niður Skólavörðustíginn og niður á torg. Það er alveg merkilegt hvað miðborgin er skítug og þreytt. Það er ljótt að sjá hve allt er lúið og ógeðslega skítugt, útkrotað og viðbjóðslegt. Gangséttarnar haugskítugar og annar viðbjóður þar. Það er ekki nema von að maður er alveg hættur að fara þangað. Í þau fáu skipti sem maður fer blöskrar manni gjörsamlega. Ömurlegt.
Það styttist í Hornstrandir.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 14. júlí 2007
Sólarsamba
Höfum rolast og haft það gott í dag. Enda ekki annað hægt, sól, blíða og algjört sumar. Lítum út eins og bleikir fílar eftir allt sólbaðið. Dásamlegt. Höldum þessu áfram.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 12. júlí 2007
Svona var það...
jæja. maður er svona hægt og rólega að skríða saman.
Þegar við komum ofan af fjöllum og nánast búin að ganga lappirnar af okkur komst fátt annað að hjá okkur en heitur pottur og rúm. Við brunuðum inn að Hömrum og náðum í Vignir, sem var nokkrum tímum á undan okkur til byggða og náði því að leggja sig dálítið, ásamt því að kippa með okkur sunddótinu, hreinum fötum og öðru smálegu. Svo var strikið tekið í laugina. Þar sem við reyndum eftir fremsta megni að teygja á mjög aumum vöðvum sem voru byrjaðir að stirðna upp. Eftir um hálftíma pottasull höskuðum við okkur uppúr og komum okkur heim til Sigga og Sigþóru þar sem við fengum höfðinglegustu móttökur sem hægt er að hugsa sér. Þar var boðið upp á bakkelsi og það sem heillaði meira... mjúkt og gott rúm til að leggjast í.... Held að við höfum verið meðvitundarlaus áður en hausinn snerti koddann. Þá var klukkan um 13:30 og við búin að vera vakandi í um 31 tíma.
Við sváfum til klukkan sex en þá rifum við okkur á lappir, enda indæll matarilmur í lofti. Var kjarngóð og matarmikil gúllassúpa borin á borð og áttum við frábært kvöld með húsráðendum þeim Sigga og Sigþóru ásamt Júlíu og Guðbjörgu, formanni Þórólfs. Máni kom svo til okkar um kvöldið eftir að hafa verið með vini sínum og skólafélaga frá því að N1 mótið kláraðist deginum áður. Við fórum svo inn að Hömrum í Tjallann okkar og sváfum vært til morguns.
Við vöknuðum um klukkan átta á mánudagsmorgninum brunuðum inn á Akureyri í Munkann þar sem okkar beið morgunmatur. Svo var strikið tekið niður á bryggju og út á sjó, því Capt. Siggi bauð okkur á sjóstöng á Haffara. Það var siglt út á Eyjafjörðinn og rennt fyrir fiski. Fengum fínan afla og skemmtum okkur stórvel. Við komum til með að gera þetta aftur.
Seinnipart dagsins var svo hefðbundinn rúntur í Jólahúsið, þangað höfum við farið árlega og oftast bætist eitthvað smáræði við í safnið okkar.
Tókum svo saman Tjalla þurran og fínan og lögðum í'ann einhverstaðar í kring um fimmleitið. Stoppuðum á mörgum sjoppum á leiðinni til að hengja upp plaggöt og skilja eftir bæklinga fyrir sjóstangaútgerðina. Vorum svo loks heima hjá okkur um klukkan hálf tólf, eða svo.
Frábær helgi að baki.... Við erum hetjur!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 10. júlí 2007
16x27
Bara rétt til að láta vita að ég er á lífi. Við fórum allan Glerárdalshringinn.... en reyndar ekki á alla tindana og voru líka örlítið lengur en tuttutuogfjóratíma.... enduðum á að taka sextán tinda á tuttugu og sjö tímum. Erum samt bara nokkuð góð með okkur. Eftir Stóra Stall var kominn mikill lurkur í mörg okkar svo að ákveðið var að taka stefnuna niður í Glerárdalinn. Og eftir 27 tíma og rúma 45 kílómetra komum við á endastað eftir mikið, langt og skemmtilegt ævintýri. Hund þreytt.
Hver veit nema maður leggi aðra eins geðveiki aftur... Hver veit... Nú er rétt rúm vika þar til við verðum í annarri göngu á Hornströndum, nánar tiltekið Jökulfjörðum. Formaðurinn búinn að setja sig í samband við Jónas í Æðey þannig að siglingin er klár. Ég hlakka til.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Mánudagur, 2. júlí 2007
Styttist og styttist
Jæja, nú styttist í Glerárdalshringinn, 24x24. Það er ekki laust við það að sé smá spenningur í loftinu, enda er það dálítið að ætla að ganga í 24 tíma, 50 kílómetra og um 4000 metra hækkun. Þrátt fyrir að hjóla rúma 20 kílómetra að minnsta kosti þrisvar í viku og ganga á Esju og Helgafell annað slagið. Birgja sig upp af ýmsum vítamínum steinefnum, omega 3 og lýsi. Þá er maður ekki viss hvort maður sé tilbúinn. Hvenær er maður svo sem til í svona vitleysu. Veit það ekki. Við leggjum alla vegana af stað með það fyrir augum að klára dæmið. Annað kemur ekki til greina. Þetta verður alveg magnað.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Fimmtudagur, 28. júní 2007
Ofurfallegt sumar
Þá styttist í N1 mótið. Við komum til með að bruna norður næsta fimmtudag. Máni fer með rútu ásamt liðunum á degi fyrr. Spenningurinn eykst hægt en örugglega. Enda ekki nema von. Þetta er hápunktur sumarsins, fótboltalega að minnsta kosti.
Við vorum sérlega heppinn í gær. Gísli og Tobba buðu okkur í mat og sjálfum Rúdolf var skellt á grillið. Mikið lifandi, skelfing og óskaplega var hann góður. Það munaði minnstu að ég æti á mig gat. Hélt þó í við mig. Svona fyrir kurteisissakir. En það munaði ekki miklu.
Ljúf helgi framundan. Skildi þó ekki vera að maður að eitthvað yrði lagt undir fót.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 25. júní 2007
Smásvonavitleysa
Ég tek léttan bloggrúnt annað slagið. Kíki þá á þau "heitu" hjá moggabloggi og á vísisblogginu. Ég hef alltaf gaman gaman að því þegar ofurbloggararnir láta vita að þeir hafi nú verið á undan með hina og þessa frétt eða upplýsingar. Svo vilja þeir náttúrulega láta vitna í sig í fréttinni.....
Steingrímur Ólafsson var duglegur við þetta á sínum tíma en ætli JAX sé ekki aðalskúbbarinn í dag. Það er líka gott þegar hann lætur vita að því þegar fréttir birtast að hann hafi nú verið með þetta á sínu bloggi einhverju fyrr. Hann vill náttúrlega fá kreditið.... skárra væri það nú.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 24. júní 2007
Aravísur
Það var ýmislegt gert um helgina. Upphaflega stóð til að halda almennilega afmælisveislu fyrir Mána en þar sem margir af hans vinum eru í ferðalögum var því frestað. Þess í stað rúntuðum við austur eftir landinu með nesti í poka. Fórum alla leið austur að Seljalandsfossi og gengum bak við hann. Það höfum við ætlað að gera í mörg ár... loksins varð af því.
Eftir nestisát og afslöppun ákváðum við að slá tvær flugur í einu höggi. Renna á Flúðir í stutt kaffistopp hjá Steinu og Co. og jafnvel hitta á Hlyn bróðir sem ætlaði kannski að vera þar skotturnar sínar.
Þetta fór náttúrulega allt öðruvísi. Við fórum þaðan fimm eða sex tímum síðar, Mánalaus, en hann varð eftir hjá frændum sínum. Hlynur var svo að berjast við tjald og rok á Laugarási.
Í dag brunaði Kristín austur að sækja hann á meðan ákvað ég að taka hjólhestinn fram og skella á skeið. Eftir smá rennirí fram og til baka um fjörðinn var stefnan tekin upp að Hvaleyrarvatni. Brunaði þangað í góðum fíling og fór hratt yfir. Það var töluvert af fólki við vatnið og mikið fjör. Ég renndi að eins lengra, eða þar sem Þytur, flugmótelfélagið er með aðstöðu. Horfði þar á netta flugsýningu. Þegar ég var svo rétt nýlagður af stað aftur til baka sprakk á fáknum. ég mátti gjöra svo vel og stíga af baki og leiða kvikindið alla leið heim. Þar voru bæturnar teknar upp og hafist handa við að lagfæra ósköpin. Ég átti eina götótta slöngu sem ég bætti í leiðinni og hef heitið mér því að fara ekki lengra en út í sjoppu án þess að vera með gúmmíið og pumpu meðferðis.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 19. júní 2007
Svona á að gera það.......
Merkilegt hvað letin er að gera út af við marga. Þessum var parkerað svo vel uppi á gangstétt að með ólíkindum var.... og það voru ekki nema í mesta lagi 20 metrar í þokkalegustu bílastæði.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)