Gott ráð

Það er alveg ljómandi gott að nota væna klípu af smjörlíki til að mýkja auman háls.  Einnig hefur smjörlíkið reynst söngvurum vel til að gera rödd sína silkimjúka.  Ljóma smjörlíki er alveg til fyrirmyndar.

Uppgötvun

Það er alveg gráupplagt, fyrir sköllótta menn, að bóna skallann á sér með hraðbóni.  Sérlega góð áferð sem næst.  Hér tala ég ekki af reynslu.

Draumur

Mig dreymdi óþverralykt.  Tengist kannski því að ég hef verið kvefaður síðust daga og ómögulegt fyrir mig að finna nokkurra lykt.  Ekki einu sinni almennilega prumpulykt.  Annars veit ég ekkert um drauma.

Myndbandsspólur

Þegar myndbandspóla er leigð á svokallaðri myndbandaleigu skal varast að leigja of gamla mynd, því það er nær ábyggilegt að myndbandið sjálft sé þá illa farið og þar af leiðandi sést myndin illa og hljóðið er lélegt.  Það má gjarnan mæla með Bónusvídeó.


Aðþrengdur

Þegar ýsa er soðinn er gott að setja rúma teskeið af borðediki út í vatnið.  Fiskurinn lítur þá betur út efir suðuna.  Það hefur tíðkast að snæða soðna ýsu, kartöflur og feiti á mánudagskvöldum.  Er það vel.


Tölvulæsi

Fyrir einhverju síðan var töluverð umræða um tölvulæsi og tölvuólæsi fólks.  Það hafði komið í ljós að hópur fólks hræddist tölvur og veraldarvefinn vegna tölvuólæsis.  Til að rifja tölvumál upp ákvað ég að skrifa nokkrar línur og sjá hvernig mér gengur með þær.

0II00II00II00II00II00II00II000000IIIII00I0I0I0I0I0I0000III000III0000III00II0I000I 0I00II0I0I0II0I0I0III0I00II0I0I0I0I0I0I00I00I000III00I00I0I0I0I00I00I0I00I0I0IIII0 0I0I0III0I0I0I0I00I0I0I0I0I0I0I0I0I0I0I0I0I0I0II0I0I0I0I0I0I0I0I0I0I0I0I0I0II000I0 I0I0I0I0II0I0I0I0I0II0I0I0I0II0I0I0I0I0II0I0I00I0I0I0I0I0I0I00I00III00I0I0IIII00II0I I00I0I00I00III0I00I0I0I0I00I0I0I00II000I0I00I0I00I0I0III000I0I0I0I00I00I0I0I0I0I0

Lesist svona: núll, einn, einn, núll, núll, einn, einn, núll núll, einn, einn, núll, núll ... og svo framvegis.

Þegar þetta er sett svona upp, línu eftir linu, kemur ekki á óvart að fólk ruglist á þessu og eigi bágt með að átta sig á samhenginu.  Ói hreinlega við.  Ég komst að því að ég er tölvulesblindur og skil ekkert þessu.


Athugasemd

Það þykir góður siður að benda með vísifingri beint upp í loft, nokkur augnablik áður en byrjað er að skrifa.  Gott er að nota lindarpenna.

Nýleg færsla

Áður en maður ekur af stað þá er það góður siður að ganga í það minnsta, þrjá hringi kring um bílinn sinn áður en maður sest uppí.  Best réttsælis.

Að hætti Mike Tysons

Þessi vika er búin að vera, í einu orði sagt, ömurleg.  Um síðustu helgi lagðist ég, eins og rotuð rotta, með eitt það mesta kvef sem ég hef fengið.  Í upphafi var þetta nett hálsbólga og sviði en seinni part sunnudags var eins og skrúfað hafi verið frá horframleiðslunni og allar holur í hausnum fylltust.  Ég var þrútinn og augun sokkinn djúpt í tóftirnar, líkt og Mike Tyson hafi fengið útrás fyrir allri gremju sinni á andliti mínu.  En núna, seint á fimmtudagskvöldi er maður við það að skríða saman.

Í þessu ástandi hefur manni lítið orðið úr verki.  Mest verið við að að hlusta á fréttir og á stundum lesið nokkrar blaðsíður í bók á milli þess sem maður hefur slefað í koddann.

Nú... í pirringskasti sem þessi kvefpest hefur valdið mér, er maður uppfullur af tuði og nöldri.  Svo það er eins gott að halda áfram.  Kráareigandi einn gengur algjörlega fram af mér með spekingslegar athugasemdir.  Í viðtali sem ég heyrði við hann, út af opnunartíma veitingastaða, sagði hann eitthvað á þá leið að vissulega væri hann til í að loka staðnum sínum klukkan þrjú, fjögur að nóttu.  Það væri betra fyrir hann, starfsfólk hans og ekki síst betra fyrir viðskiptavini hans.  Hvað stoppar hann þá í því að gera það?  Er honum ekki frjálst að loka klukkan fjögur fyrst hann veit að það er best fyrir alla.  Þessi ágæti vert væri meiri maður ef hann tæki upp á því að loka staðnum sínum þetta snemma.  Á undan öðrum.  Þar gæfi hann gott fordæmi.

Í umræðunni um miðbæjarvesenið langar mig að koma með tillögur.  Sleppum því að hreinsa miðbæinn eftir eina feita og væna djammhelgi.  Látum okkur sjá hvernig bærinn lítur út eftir svallið.  Ég held að eftir slíka rassskellingu kæmist umræðan um opnunartíma skemmtistaða og hegðun okkar upp á hærra plan.

Klukkan fimm á laugardagsmorgni, eftir drykkju og djamm næturinnar þá getur ekki annað verið en að fólk sé við það að að tapa sér vegna ölvunnar og þreytu.  Ég held að það væri farsælast fyrir alla, hvort sem það eru pöbbaeigendur eða kaffihúsaeigendur eða bara sauðsvartan pöpulinn, að loka fyrir allt skemmtanahald í miðborginni einhverstaðar milli klukkan tvö eða þrjú að nóttu til.  Í iðnaðarhverfum væri svo hægt að vera með almennilega næturklúbba sem sinntu dans og skemmtanaþyrstu fólki fram undir morgun.  Er ekki upplagt svæði fyrir slíkan stað í nágrenni Hringrásar í Klettagörðum.  Eða í Smiðjuhverfinu í Kópavogi.  Alveg kjörið.


Skaupstofan

Randver var rekinn úr Spaugsofunni.  Þetta var í blöðunum í liðinni viku.  Allt fór á haus útaf þessu.  Meira að segja voru pælingar um að þetta væri dulbúin auglýsing fyrir sjónvarpið.  Svona fá fólk til að muna eftir gömlu köllunum.  Hver veit.

Ég veit ekki með ykkur, en var Randver ekki sá sísti í þáttunum?  Minnst fyndinn?  Var ekki bara eðlilegt að láta hann hætta, svona til að poppa þetta örlítið upp með gestaleikurum.  Reyndar þótti mér þátturinn í gær ósköp skaupslegur.  Svona míníútgáfa af áramótaskaupinu.  Ekkert sérstöku skaupi.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband