Hmmmmmmmm

honda

Örlítil pæling

Hver er munurinn á kúk og skít?

Hilton

Ég varð fyrir miklum vonbrigðum þegar ég komst að því að á Reykjavík finnst ekki á heimasíðu Hilton.  Bömmer.

Til sölu

Dágott sjónvarp þokkalega stórt, en ekkert kvikmyndatjald.  Verð 8.000.000.-  átta milljónir.  Fæst í einhverri búð á höfuðborgarsvæðinu.

Í spreng

Iss, piss og pelamál
púðursykur og króna
Þegar mér er mikið mál
míg ég bara í skóna


Ísland, bezt í heimi

Það er nú, sem betur fer, margt sem ég get ómögulega skilið.  Eitt af því er það að sækja tónleika með íslenskum flytjendum í útlöndum.  Stuðmenn, Sálin, Garðar Thor, Diddú og nú síðast sjálfur Bó flykkjast til útlanda til að halda tónleika.  Fyrir hverja?  Jú, fyrir okkur vitleysingana sem rjúkum til og kaupum rándýra flugferð til London, Köben eða Hvertsemer til þess eins að fara á tónleika með samlöndum okkar. 

Hvers vegna þarf að sækja vatnið yfir lækinn.  Er ekki miklu skemmtilegra að sjá og upplifa eitthvað nýtt í útlöndum.  Þetta er eins og að taka með sér harðfisk, hangikjöt og skyr þegar maður bregður sér út fyrir landssteinana.  Ekki hægt að éta óþverrann sem þar er borinn á borð.  Á sama hátt erum við að flykkjast út til að sjá Bó og Có.  Bjánalegt.

Er þetta minnimáttarkennd hjá okkur?  Ísland, bezt í heimi og allt það.!


Helgarsamsull

Hvar er mannlífið í Reykjavík um helgar.  Þá er ég ekki að tala um næturlífið, slagsmál og almennt fyllerí.  Heldur, hvað gerir fólk sér til dundurs eftir messu á sunnudegi.  Sumir kíkja á kaffihús aðrir á söfn og myndlistasýningar. Einn helsti samkomustaður fólks er Kolaportið.  Við eigum það til að reka nefið þar inn nokkrum sinnum á ári.  Oftast komum við tómhent út, í mesta lagið að við kaupum okkur kókosbollur, harðfisk eða hákall.  En það var einmitt það sem við keyptum í dag.  Það er ábyggilegt að maður hittir alltaf einhvern sem maður kannast við í Kolaportinu, því allir fara þangað annað slagið.  Það stendur til að loka því, hvert fer maður þá?


Íslandsmeistaratitill er ekki allt

Mig langar svo gjarnan til að óska Elvari til hamingju með að Valur varð Íslandsmeistari í dag.  Áfram FH.

Upplýstur

Ég varð þess heiðurs aðnjótandi að taka leigubíl fyrir einhverjum misserum.  Þetta var þýðversk eðaldrossía af gerðinni Mercedes.  Það sem fór í taugarnar á mér var hvað bílstjórinn var spar á að nota stefnuljósin.  Þegar ég bar þetta upp á hann og setti þar með ofan í við hann, gaf hann þá  spekingslegu skýringu að hann þyrfti nú ekkert að nota þau.  Hann vissi alveg hvert hann væri að fara.


Veðrið

Agalega hefir veðrið verið hryssingslegt í dag.  Beljandi rok og vart hundi út sigandi.  Nú væri ljúft að sitja við sundlaugabarm á einhverri notalegri eyju í Karapískahafinu.  Og drekka pinacolada.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband