Jess Sör

Maður í loftbelg sá að hann var að missa hæð. Hann tók eftir konu á jörðinni, lækkaði flugið aðeins meira og kallaði til hennar: Afsakið, geturðu hjálpað mér? Ég lofaði að hitta vin minn fyrir klukkutíma, en veit ekki hvar ég er.

Konan svaraði: Þú ert í loftbelg sem svífur í 10 metra hæð, milli 40. og 41. Norðlægrar breiddargráðu og milli 59. og 60. Vestlægrar lengdargráðu.

Þú hlýtur að vinna við tölvur, sagði loftbelgsmaðurinn.

Það geri ég, svaraði konan. Hvernig vissirðu það ?

Nú, svaraði maðurinn, allt sem þú sagðir mér er tæknilega rétt, en ég hef ekki hugmynd um hvaða gagn er af þeim upplýsingum, og reyndar er ég enn villtur. Satt að segja þá hefur ekki verið mikil hjálp frá þér.  Ef eitthvað er þá hefurðu helst tafið ferð mína.

Konan svaraði: Þú hlýtur að vinna við stjórnun.

Já, sagði maðurinn. En hvernig vissir þú það?

Nú, sagði konan, þú vissir hvorki hvar þú ert né hvert þú ert að fara. Eintómt loft hefur komið þér þangað upp sem þú ert. Þú gafst loforð sem þú hefur ekki hugmynd um hvernig á að efna og þú ætlast til þess að fólk fyrir neðan þig leysi þín vandamál. Reyndar ertu í sömu stöðu og þegar við hittumst, en nú er það einhvern veginn mín sök


Að öllu gamni slepptu... eða nei, við skulum bara ekkert sleppa því

Heitir þetta á íslensku, að maka krókinn? 

 


Flens

Ég er fórnalamb flensu.  Byrjaði á því að liggja í viku.  Taldi mig góðan og mætti til vinnu.  það dugði í rúma viku en þá lagðist ég aftur.  Á fimmutudaginn var hysjaði ég upp um mig brækurnar og haskaði mér í vinnu. Er svo allur að koma til.  Ég ætla að vona að ég sé búinn með flensuskammt minn næstu árin.

Get ekki tuðað yfir neinu almennilegu svo það er best að vera ekkert að tjá sig.


Hver er munurinn á níðingi og níðingi?

Ég var að velta því fyrir mér hvort Reynir Traustason, ritstjóri DV, sé ekki í lagi.   26 febrúar sl. tjáði hann sig níðingana á netinu.  Honum þótti mátulegt að bloggari skyldi hafa verið fundinn sekur um níð og dæmdur til að greiða skaðabætur.  Í gær kveður svo við allt annan tón.  Þá er um að ræða ógeðfellda málsókn á hendur launamanni fyrir að tjá sig.  Hver er munurinn á þessu tvennu?

Ég verða viðurkenna að ég get ekki annað en hlegið að þessu.


Lambalundirnar voru alveg að gera sig

Stundum þarf ekki mikið... Kristínu langaði í lambalundir í kvöld, svo ég eldaði lambalundir.  Ég var ekkert að flækja þetta neitt mikið.  Lundirnar voru steiktar á pönnu og með þessu var sætkartöflumús, rófur, gulrætur og papriku sem ég steikti í soja ásamt smá sátu af steiktum blaðlauk.  Með þessu drukkum við ágætis vín frá Suður-Afríku, Drostdy-Hof Cabernet Sauvignon.  Þægilegt vín í góðu jafnvægi og var skothelt með lambinu. 

Ég er sannfærður um að þennan rétt eigi ég eftir að þróa eitthvað áfram.


Stór spæling

Á blaðsíðu sex í 24 Stundum í dag er sagt frá því að forstjóri einn hafi fengið leyfi til að rífa eitt stykki hús, en því miður ekki fengið leyfi til að reisa annað í staðinn.  Ehemm.   Afsakið meðan ég æli.


Draugagangur....

Ég taldi mig sjá drauga í gærmorgun í ræktinni.  En þegar betur var að gáð þá voru þetta bara Strýtustubbarnir ráfandi um í eftirdragi þjálfarans.  Þeim fannst bara vera mið nótt.

Til hamingju

khp

Minn betri og fallegri helmingur á afmæli í dag. 


Strútur

Þá er hugmynd að haustgöngunni fædd.  Þórólfum líst, eftir því sem ég best veit, nokkuð vel á þessa hugmynd.  Það á eftir að ákveða dagsettningar endanlega, en það kemur.

Það er einn hængur á.  Hólaskjól, er ekki í alfaraleið.  Hægt er að koma sér þangað með áætlunarrútu frá BSÍ.  Hún leggur af stað úr bænum klukkan 08:30 og er ekki kominn í Hólaskjól fyrr en um klukkan 17:00.  Þetta erferð með tveggja tíma stoppi í Landmannalaugum og þriggja kortera stoppi við Eldgjá

Ég fann fínustu leiðarlýsingar á heimasíðum  Ferðafélags Íslandas og Útivistar.

Dagur 1

Brottför frá BSÍ kl. 08:30. Ekið austur fyrir fjall í Hólaskjól þar sem gangan hefst. Fyrsta dagleiðin er stutt um 6-7 km og hentar prýðilega eftir langa rútuferð (erum ekki kominn í Hólaskjól fyrr en um klukkan 17:00 ef við tökum áætlunarrútuna eins og fyrr segir). Í fyrstu liggur leiðin upp með Syðri-Ófæru hjá hinum nafnlausa fossi sem oft er nefndur Silfurfoss eða jafnvel Litli-Gullfoss.  Þaðan áfram um tilkomumikið gljúfur að gamla gangnamannaskálanum við Álftavötn sem Útivist endurbyggði. Svæðið í nágrenni skálans er mjög fallegt, svo að það er vel þess virði að skoða sig um og fara í kvöldgöngu. 

Skálinn við Álftavötn.

Dagur 2

Syðri-Ófæru er fylgt framan af.  Farið er hjá mikilli steinbrú er liggur yfir ána við Þorsteinsgil.  Dalverpið sem blasir þar við heitir Álftavatnakrókur og er farið að mynni Ófærudals.  Fossar steypast fram úr dalnum og ofan í Krókinn, en þarna mætir Eldgjáin einnig gönguhrólfum en hún liggur þvert á Ófærudal.  Sveigt er til vesturs og haldið undir hömrum girtum hlíðum Svartahnúksfjalla, fjallabálks er setur mikinn svip á umhverfið. Síðan liggur leiðin með norðurhlíðum þeirra inn í Hólmsárbotna og að Strútslaug. Gott er að fara í bað í heitri lauginni. Þarna gnæfir Laugarháls og Torfajökull með sínar litskrúðugu líparíthlíðar yfir í norðvestri, Svartahnúksfjöllin í austri og Strútur í suðri. Eftir baðið er gengið yfir Skófluklif eða um Krókagil, en þá er aðeins spottakorn eftir í Strút þar sem höfð er næturdvöl. Þessi dagleið er um 20 km.

Skálinn við Strút.

Dagur 3

Farið vestur yfir Veðurháls með Mýrdalsjökul á vinstri hönd.  Gengið eftir Mælifellssandi, hjá Hrútagili og Skiptingaöldu. Leiðin liggur um Slysaöldu og þaðan yfir Kaldaklofskvísl, sem liðast um sandinn í lænum.  Gengin er gömul gata á milli Einstigsfjalls og Sléttafells og komið að Hvanngilshnausum.  Þá liggur leiðin í skála í Hvanngili þar sem gist er síðustu nóttina.  Þessi dagleið er um 18 km.

Skálinn í Hvanngili.

Dagur 4

Morgunganga og heimferð.  Tja... eða....

Það má líka breyta aðeins til og lengja leiðina um eins og tvo göngudaga og enda í Húsadal í Þórsmörk.  Þá yrði framhaldið svona.

Dagur 4

Frá Hvanngili er fljótlega komið að Kaldaklofskvísl. Á henni er göngubrú. Austan kvíslar skiptast leiðir, annars vegar austur Mælifellssand (F 210) og hins vegar suður Emstrur (F 261), þangað sem leið okkar liggur. Innan við kílómetra frá Kaldaklofskvísl þarf að vaða aðra á, Bláfjallakvísl. Eftir u.þ.b. 4 km göngu er komið að Nyrðri-Emstruá. Brú var byggð yfir hana 1975. Framundan eru Útigönguhöfðar tveir. Á milli þeirra liggur leið okkar. Nú líður ekki á löngu þar til við stöndum á brúninni ofan skálans í Botnum. Þessi dagleið er um um 10 km.

Skálinn í Emstrum.

Dagur 5

Þar sem Syðri-Emstruárgljúfrið nær langleiðina inn að Entujökli verðum við að byrja á því að taka á okkur talsverðan krók áður en hin eiginlega ganga suður Almenninga hefst. Brattur krákustígur er niður að göngubrúnni á Syðri-Emstruánni. Farið varlega. Við ármótin á Markarfljóti og Syðri-Emstruá er sjálfsagt að ganga fram á gljúfurbarminn. Nú hefst hin eiginlega ganga suður Almenninga. Land breytist þegar komið er fram í Úthólma suður við Ljósá. Þar rennur áin í fallegu gljúfri sem víða er vaxið birki og blómum. Sunnan Kápu er Þröngá næst okkur. Hana verður að vaða. Sjálfsagt er að ganga hönd í hönd og hleypa undan straumi. Þröngá skilur á milli Þórsmerkur og Almenninga. Þaðan er um fjörtíu mínútna gangur í Húsadal.  Ætli það verði ekki að hlaupa síðustu metrana til að ná rútunni sem fer úr Húsadal klukkan 15:30. Nú eða gista þar, fara í gufu og/eða heitan pott, grilla og hafa það gott og taka svo rútuna daginn eftir.  Þessi dagleið er um 17 km.  Rútan gengur úr Húsadal tvisvar á dag klukkna 08:30 og 15:30.

Á heimasíðu Austurferða er ýmis fróðleikur um Húsadal.

Þetta komum við til með að ganga í haust.  Ég get ekki annað sagt en ég hlakki til.


Danskar nautalundir og Argentískt rauðvín

Í dag ákváðum við að gera pínu vel við okkur i mat, danskar nautalundir urðu fyrir valinu.  Eldaði þær á einfaldasta mátann, steiktar í smjöri á pönnu.  Bornar fram með góðu salati, kartöflum og feitinni.  Drukkum með þessu Norton Reserva Malbec, ljúfur bolti.  Það þarf ekki mikið til að slá upp eðalveislu.

Júróvísíon núna í kassanum.  Hlusta á það með öðru eyranu, margt annað sem heillar.  Var að að spá í gríninu hjá Barða.  Held að snillingurinn sá sé bara nokkuð ánægður með sig, hann er allavegana búinn að gera grín að öllu og öllum með laginu hei sei blablabla.  Vona allavegana að það verði ekki valið til útfluttnings...  


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband