Fréttir og kastljós í gær

Mér finnst alltaf skrítið þegar viðmælendur fréttamanna komast upp með að svara ekki spurningum.  Í fréttum á RÚV í gær var Geir Haarde spurður að því hvort hann skildi ekki reiði almennings yfir einkaflugvélabulli ráðherrana.

Hann svaraði eitthvað á þá leið að hann hafi nú í eina tíð verið fjármálaráðherra og hafi þá verið þekktur fyrir annað en bruðl.  En það fékkst ekkert svar við spurningunni. 

Ég held að með því að hafa þessa ráðherra sem lengst í útlöndum spari þjóðin mun meira en þegar þeir eru á landinu. 

Ég hef haft mikið dálæti á Dofra Hermannssyni, þótt hann skelleggur og leggja margt gagnlegt til mála.  En upp á síðkastið hefur ljóminn minkað.  Þegar hann var að reyna að verja ferð utanríkisráðherra með einkaflugvél og í gær þegar hann reyndi að halda uppi fagra Ísland stefnu Samfylkingarinnar.  Honum fórst það alls ekki vel úr hendi. 


Mozilla Firefox

Datt í hug að breyta til og hlóð niður Mozilla vafranum.  Svona við fyrstu sýn líst mér ljómandi vel á.  Ég er þó með Explorerinn á kantinum, svona ef ég lendi í einhverju óstjórnlega leiðinlegu veseni.

Mótmæli

Við vorum lögð af stað úr Hafnarfirðinum rétt rúmlega átta í morgun.  Þegar við nálguðumst Arnarneshæðina var allt fast.   Atvinnubílstjórar lokuðu fyrir umferð.  Ég styð þá 100% en mæli með að þeir breyti taktíkinni

Reyndar er morgunumferðin úr Hafnarfiðri svo hæg að þetta breytti ekkert svakalega  miklu. 


Batnandi manni

Ég stefni á að taka upp fyrri siði og mæta í ræktina reglulega.  Eihverra hluta vegna er það afskaplega erfitt þessa daga.  Þrátt fyrir að taka Spirulinu og lýsi skortir mig alla nennu.  Spælandi.


Það sem ég skrifaði ekki

Ég hef sett mér markmið.  Göfugt og mikið.  Ég ætla að eiga allar fyrirsagnirnar í dálknum hjá Ingþóri

ÞAÐ SEM ÉG SKRIFAÐI ÉG EKKI

Ég verð því að ná að minnsta kosti tíu færslum í beit.  Veit ekki hvenær það tekst - en minn tími mun koma.


Nú er tuðblaðran þanin

Ég skrapp í Bónus í gær.  Ég var ekkert að stressa mig, tók þessu rólega og skoðaði mig vel um. 

Meðal þess sem var á innkaupalistanum var rækjusalt.  Inni í kælinum renndi ég yfir úrvalið.  Það voru 3-4 tegundir í boði.  Meðal annars frá Salathúsinu, Kjarnafæði og Bónuss.  Þar sem dýrtíðin er að tröllríða öllu leit ég ósjálfrátt á verðmerkingarnar.  Allt voru þetta 200 gramma dósir.  Bónussalatið var 20 krónum dýrara heldur en hinar tegundirnar.  12% dýrara.

Vissulega er frjáls álagning og vitanlega ráða Bónuskallarinn og kellingarnar hvað þau leggja á vörurnar.  En það er einhvernvegin stimplað inní fólk að það sem er merkt Bónuss sé, eigi, hlýtur að vera, getur ekki annað en verið ódýrara en sambærileg vara.  Eða er þetta bara vitleysa í mér.


Fjárans nöldur alltaf hreint

Eitt helsta einkenni okkar íslendinga er nöldur. Hver í sínu horni nöldrar og agnúast út í hitt og þetta.  Síðustu daga hefur fátt annað verið rætt á kaffistofum landsins en fall krónunnar, hækkun matvælaverðs, vaxta og hækkun eldsneytisverð.  En hvað gerum við?  Ekki neitt, eða jú, sumir blogga og er mikið niðrifyrir og á meðan aðrir TALA um að eitthvað þurfi að gera.  Nokkrir atvinnubílstjórar ganga einu skrefi lengra og GERA eitthvað í málunum og mótmæla á sæmilega áhrifamikinn hátt. 

Og hvað gerist.  Jú nöldrið nær nýjum hæðum og nú er nöldrað yfir þessari andskotans vitleysu í bílstjórunum. Ég styð þessar aðgerðir bílstjóra.  Það má vel vera að þeir séu að brjóta lög en má ekki segja að nauðsyn brjóti lög?  Ráðamönnum hefur oftsinnis verið bent á fáránleika olíugjaldsins sem hækkar um leið og innkaupsverð.  Stundum þarf bara að öskra og láta illum látum. 

Ef bílstjórar ætla að halda mótmælunum áfram mæli ég með að þeir breyti örlítið taktíkinni hjá sér.  Það má gera á ýmsa vegu.  Ég mæli til dæmis með frönsku aðferðinni.  Hún felst í því að sturta nokkrum bílförmum af skít, mold, heyrúllum eða einhverju öðru fyrir framan alþingishúsið eða stjórnarráðið.  Parkera svo bílunum og þenja flauturnar í góðan hálftíma.  Það hlýtur að koma hreyfingu á hlutina.


Ammæli í löngum bunum

Þetta gullfallega kvikindi á ammæli í dag.
Til hamingju Ísland.  Og til hamingju ég. 

Heiðar3

 


Ammæli

Þessi fagri og spengilegi drengur, á ammæli í dag.
Til hamingju bróðir.

vikingur1


Tímamót

Ég held að Elvis hafi yfirgefið bygginguna.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband