Vor í lofti

Það var ljúfur og góður birkiilmur í lofti þegar ég hjólaði í vinnuna í morgun.  Ullarsokkurinn spratt fram í mér og mig langað ekkert inn á skrifstofu.  Svo til að toppa þetta alltsaman þá heyrði ég og sá Kríu í dag á leið heim úr vinnunni.  Það er ótvírætt merki um vorkomuna. 


Myndlist í öndvegi árið 2008

Það er búið að vera nóg að gera síðustu daga og vikur, og á sama tíma leiðist manni ekki.  Líkt og margir launþegar fórum við í göngu 1. maí.  Reyndar var þetta ekki nein kröfuganga sem við fórum í.  Meira svona okkur til gamans.  Við lögðum hluta af Selvogsgötu undir fót.  Þessi leið liggur frá Hafnarfirði yfir í Selvog í Herdísarvík.  Við lögðum í hann á Bláfjallavegi og gengum yfir Grindaskörðin og yfir hraunið að Hlíðarvatni.  Þetta voru rétt um 15 km.  Fínasta Þórólfsferð.

Í síðustu viku hófst Hjólaðívinnuna.  Og ég hjólaðiívinnuna náttúrulega. Þessi uppákoma stendur út næstu viku, eða þar um bil.  Í fyrra vorum við VÍSarar nokkuð framtaksamir, en í ár er rólegra yfir þessu.  En hver veit hvernig þetta endar hjá okkur.   Ég skemmti mér alla vegana við þetta.

Um miðjan júní nk. heldur Árbakkaættin sitt víðfræga ættarmót.  Að þessu sinni eigum við í Kristjánsleggnum að sjá um herlegheitin.  Undirbúningur gengur bara vel.  Þó nokkrir boltar komnir á loft og nú er bara að sjá  hvernig þetta fer.  Allavegana er stefnt að því að hafa það skemmtilegt. 


Styttist í ættarmót - nokkrar myndir af því tilefni

scan0001

 

 

 

 

 

 

 

 

scan0002

 

 

 

 

 

 

 

scan0046

 

 

 

 

 

 

 

 

scan0028


Matrósaföt

Ég hef verið að velta því örlítið fyrir mér hvers vegna verið er að klæða ungabörn í matrósaföt.  Ég hef svo sem ekki komist að neinni niðurstöðu sem meikar sens.


Brottnamið úr kvennabúrinu

Stundum er bókstaflega hægt að gleyma sér við að hlusta á útvarpið, Rás 1.  Ég átti slíka stund nú í kvöld er ég hlustaði á uppfærslu Metropolitan óperunnar í New York á Brottnáminu úr kvennabúrinu eftir W. A. Mozart, í beinni útsendingu.  Vissulega er maður ekki óhlutdrægur, okkar maður, Kristinn Sigmundsson, fór með eitt aðalhlutverkanna,  hann skilað því með miklum sóma.  Ég hefði svo sannarlega viljað vera á svæðinu og upplifa stemninguna, fá hana beint í æð.  

Ég hef ekki þekkingu á sígildri tónlist, en nýt þess að hlusta á það sem gleður eyrað.  Uppfærslan í kvöld gerði það svo sannarlega.  Húmorinn skein einhvernvegin í gegn og fékk maður það á tilfinninguna að  maður væri á staðnum.


Don't do that classical music crap

Þetta er bara snilldin eina...

 


The Good the Bad the Ugly

Ég er á lífi....

Langað til að deila þessu með sem flestum. 


Já... Júróvísíon

Ég hef verði með óformlega spurningakeppni í vinnunni, heima og meðal kunningja.  Ekkert flóknar spurningar en svörin hafa látið á sér standa.....

Fyrri spurning er:
Getur þú raulað viðlagið hóhó laginu sem tók þátt í júróvísíon.

Oftar en ekki getur fólk raulað það með léttum leik og það er greinilegt að lagið er grípandi.

Seinni spurningin er:
Getur þú raulað viðlagið í laginu sem vann.

Þar kemur maður að tómum kofanum.  Fólk stamar og stynur og vefst tunga um tönn.  Ég hef þá laumað að aukaspurningu; Veistu hvað lagið heitir sem vann keppnina hér heima.  Fólk fer alveg í klessu og getur ekki svarað.  Það er kannski ekkert skrítið.  Lagið er leiðinlegt, alls ekki grípandi.

En þetta er bara létt pæling á miðvikudagsmorgni.


Hjólað í vinnuna

Ég tók hjólið fram um síðustu helgi.  Pumpaði í dekkin, smurði keðjuna og ditten og datten.  Á mánudagsmorgun var svo brunað úr Hafnarfirðinum í vinnuna.  Ef ég man rétt þá eru þetta eitthvað um 11-12 kílómetrar.  Sem er bara temmilegt til að koma sér í gang á morgnanna og ekki er síðra að hjóla heim seinnipartinn og "hjóla vinnuna úr sér".  Ég viðurkenni að þetta tók dálítið á.

Ég bið bæjaryfirvöld í Hafnarfirði, Garðabæ, Kópavogi og Reykjavík að hraða sópgræjunum í gang því á köflum eru gangstéttarnar og hjólastígarnir eitt glerbrotahaf.  Og þó maður sé þokkalega dekkjaður þá þarf ekki mikið til að það springi hjá manni.   

Hjólað i vinnuna.


Ammæli, afmæli, ammæli

Þessi gegnheili gullklumpur, eðaldrengur og kæri bróðir, Hlynur, á afmæli í dag.  
Ég óska honum til hamingju með daginn.  Hafðu það sem allra best. 

Hlynur

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband