Sunnudagur, 6. júlí 2008
Ukulele Orchestra of GB
Ég skemmti mér endalaust yfir þessum snillingum....
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 5. júlí 2008
Almennilegur hjólatúr
Ég hef látið mig dreyma um að fara í almennilegan hjólatúr. Þetta hefur blundaði í mér allt frá því við keyptum okkur hjólin vorið 2007. En ég hef ekki látið vera að því fyrr en í dag. Ég hafði einhversstaðar heyrt að Bláfjallahringurinn væri kjörinn hringur, 40 kílómetrar eða eitthvað svoleiðis. Mér þótti það vera hæfilegur rúntur svona á laugardegi.
Í stað þess að aula mér af stað í morgun var ég að drolla eitthvað fram eftir degi. Þegar ég svo ákvað að skella mér, renndi ég fyrst upp í Hjólasprett, til að kaupa eina slöngu, svona rétt til að hafa örlítið vað fyrir neðan sig. Svo var stokkið af stað með Garmin og Polar græjur.
Ég lagð af stað frá Hafnarfirði og kom rétt aðeins við í sjoppu til að kaupa smá nesti. Þaðan lá leiðin í gegnum Setbergshverfið og út á Reykjanesbrautina. Þar var ég í kappi við kolbrjálaða bílstjóra sem þó sýndu hjólakappanum þokkalega tillitssemi. Ég fór í gegnum Garðabæ og Kópavog og tók stefnuna í gegnum Seljahverfið. Það tók dálítið í að hjóla þar upp. Áfram var haldið og upp á Suðurlandsveg, framhjá Norðlingaholti og í áttina að Hellisheiði. Við Bláfjallaafleggjarann á Sandskeiði sýndi garmurinn að ég hafði lagt um 22 kílómetra að baki. Hva, bara hálfnaður, hugsaði ég með mér en ákvað að hjóla dálítið lengra í átt til Bláfjalla áður en ég nestaði mig.
Eftir gómsæta rækjusamloku, kókómjólk og banana á góðum stað rétt utan vegar með útsýni yfir Vífilfellið, með toppinn hulinn skýjum, var haldið áfram. Það var rennifæri örlítill mótvindur sem virkaði sem fínasta kæling.
Á þessum punkti uppgötvaði ég hvílík snilldargræja síminn minn er. Ég hafði fyrir nokkru dundað mér við að setja nokkur lög inn á hann, svona til gamans. Þegar ég var orðinn leiður á sjálfum mér og mínum hugsunum, tróð ég heddsettinu í eyrað og byrjaði að blasa á fullu og syngja með. Það hefur án efa verið stórfurðuleg sjón að sjá hjólreiðamann á puðandi upp brekkur syngjandi Gibba Gibb með Halla og Ladda. En trúið mér, það lag virkar vel, þegar maður er að taka á því. Eins var er Mugison góður. Einnig hlustaði ég á Dolly Parton og AC/DC ég er óttalegt tónlistarviðundur. Alæta.
Þegar stutt er eftir á skíðasvæðið er beygt útaf við skilti sem segir að það séu 25 km í Hafnarfjörð. Þarna var ég búinn að hjóla rúma 30 kílómetra og var því að átta mig á að upplýsingarnar sem ég taldi mig hafa um 40 km vegalengd var bull. En fyrst maður var kominn svona langt þá var bara að halda áfram. Nú tók við laaaaangur vegakafli, ómalbikaður og mjög grófur. Þarna hélt ég að ég og hjólið myndum hrisstast í sundur. Ég færi úr lið í öxlum og úlnlið. En með AC/DC glymjandi í eyranu hafðist þetta nú allt saman og vel það. Þetta var hin mesta skemmtun því nú lá leiðin niður í mót allt auðveldara. Ég segi það ekki, ég hefði mun frekar viljað vera á malbiki, það hefði verið mun þægilegra. En allir komu þeir aftur og enginn þeirra dó. Dollý Parton og Kenny Rogers sungu Island in the stream. Og ég hugsaði um jólin (kósíheit par ...).
Við Grindarskörðin var tilhlýðilegt að stíga af fáknum og smella eins og einni mynd sjálfum sér við skiltið, svona rétt til staðfestingar á því að maður hafi verið þarna.
Eftir um 58 kílómetra og rétt um þrem tímum seinna var ég kominn heim. Er skratti ánægður með sjálfan mig, en hrikalega aumur í gumpnum. Ég set ofarlega á óskalista hjá mér að eignast almennilegar hjólabrækur, svona ef vera kynni að ég skelli mér í svona ævintýri aftur, sem ég geri fyllilega ráð fyrir.
Hef heyrt að það sé skemmtilegur hjólatúr að renna sér Hvalfjörðinn.
Bloggar | Breytt 8.7.2008 kl. 14:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Föstudagur, 4. júlí 2008
Tómas Víkingsson - til hamingju með daginn
Þessi stórefnilegi listamaður á afmæli í dag.
Tómas Víkingsson, til hamingju með daginn.
Þetta er reyndar ekki ný mynd af kappanum, en hann hefur ekki mikið breyst.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 4. júlí 2008
Ofan á alltsaman var þetta bara fínt
Ég ætla ekki að segja að ég hafi lent í standandi veseni vegna roksins á leiðinni heim í gær, en það var fjári mikill vindur. Það lá við að ég þyrfti að setja undir mig hausinn í verstu kviðunum. Ég var um 40 mínútur á leiðinni heim. Ég lagði um 87,5 kílómetra undir dekk þessa vikuna (í og úr vinnu) tel ekki með hjólatúra á kvöldin.
Ég flétti upp á orðinu sem datt í hausinn á mér í gær, afturbatapíka. Og viti menn, ég fann það í íslensku orðabókinni. ´
afturbata-píka kvk : ógift stúlka sem hefur eignast barn en fólk er farið að gleyma því.
Ég fann það ekki í íslensk-ensku bókinni, mætti ekki þýða það sem recovery-pussy. Veit það ekki.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 3. júlí 2008
Sunnuvegur hiti 10°c. dálítil rigingn, töluverður vindur klukkan 06:00
Ég var heppinn, var með vindinn á hlið mest alla leiðina, þannig að þetta var átakalítil hjólaferð úr Hafnarfirðinum í Ármúlann. Það er margt sem manni dettur í hug þessar mínútur á hjólinu. Í morgun fékk ég leiðindaorð á heilann, sem ég heyrði í einhveri mynd eftir Hrafn Gunnlaugsson. Orði er AFTURBATAPÍKA. Ég fór að velta því fyrir mér hvort þetta orð væri í íslenskri orðabók, hvort það væri í íslensk-enskri orðabók eða íslensk-danskri. Ætli það endi ekki á því að ég flétti þessu upp þegar ég kem heim ef...
Tölur dagsins eru:
Tími:35,57
Meðalpúls 122
Hámarkspúls 154
Brennsla 356 kcal.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 2. júlí 2008
10°c skýjað og töluverður vindur
Það tók dálítið á að hjóla í vinnuna núna í morgun. Ég fékk töluverðan mót- og hliðarvind nánast alla leið. Ég þurfti meira að segja að hjóla niðiður í mót, svona til að missa ekki hraðann. En þetta var fínt og maður er mættur fullur af orku til að takast á víð daginn.
Tölur dagsins eru:
Tími:37.31
Meðalpúls 136
Hámarkspúls 167
Brennsla 455 kcal.
Heimferðin i gær var stórgóð, ég hitti á stundina og nánast flaug heim. Það er bara frábært þegar slíkt á sér stað.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 1. júlí 2008
Hitinn á uppleið 7°c klukkan sex í morgun
Það var rennandi hjólafæri í morgun, þó það hefði ekki mátt vera kaldara. Hvað segir það manni að hitastigið skuli rétt slefa yfir frostmark snemma morguns á miðju sumri. Jú, þetta er nú bara Ísland. gott og vel.
Ég var 34,07 mínútur á leiðinni. Allt í lagi tími. Meðalpúlsinn 131, fór hæst í 165, og brennslan 386kcl.
Ég sendi póst í gærkvöldi á Þórólfa, svona rétt til að koma fólki í gírinn og byrja að peppa upp fyrir ferðina.
Dagur I fimmtudagur 17. júlí 2008
Siglt frá Bæjum á Snæfjallaströnd í Hornvík. Tjaldað og gist að Höfn.
Dagur II föstudagur 18. júlí 2008
Gengið úr Höfn í Hornvík yfir í Rangala í Lónafirði. Farið er um Rangalaskarð sem liggur í einhverjum 600 mys. Meðal Hornstrandafara er það talið nokkurt manndómsmerki að fara þetta skarð sem er hið hæsta af fjallaskörðum Hornstranda. Þetta er um 12-13 kílómetrar.
Dagur III laugardagur 19. júlí 2008
Frá Rangala göngum við út með Lónafirði að Kvíum og skoðum okkur þar vel um. Því næst göngum við yfir Kvíafjall (480 mys). Við göngum niður Bæjardal og að bænum Steig í Veiðileysufirði. Þar í grenndinni finnum við okkur tjaldstæði og eyðum nótt.
Dagur IV sunnudagur 20. júlí 2008
Tökum daginn snemma og göngum inn í botn Veiðileysufjarðar. Þegar fyrir botninn er komið komum við að forvaði við fjallið Lónhorn. Ekki verður farið það nema á rúmlega hálfföllnu. Eftir því sem ég best veit þá er háfjara þar um klukkan þrjú síðdegis, þannig að við höfum tíma frá tvö til c.a. fimm til að fara þar fyrir. Þaðan er síðan stutt að lítilli eyri sem heitir Meleyri, þar ku vera tjaldstæði og kamaraðstaða. Þessi dagur er stuttur í kílómetrum, en við verðum að klöngrast í fjöru og vaða dálítið. Þannig að það er eins gott að vera sæmilega vaðskæddur.
Dagur V mánudagur 21. júlí 2008
Dálítið löng ganga frá Meleyri upp á Vatnalautafjall, stefnum þar á Kjaransvíkurskarðið, sem við þekkjum frá annarri ferð okkar á þessar slóðir. Þar komum við inn á slóðina á Innri-Hesteyrarbrúnum sem við fylgjum sem leið liggur til Hesteyrar. Þar munum við væntanlega slá upp Þórólfsgrillveislu.
Samkvæmt grófum mælingum er leiðin úr Hornvík til Hesteyrar um Lónafjörð og Veiðileysufjörð um 55 kílómetrar.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 30. júní 2008
5°c klukkan sex í morgun
Það jaðraði við skíta kulda í morgun þegar ég lagði í'ann í vinnuna. Það var þó logn og gott veður. Ég ákvað að taka því rólega og var rétt rúmar 35 mínútur á leiðinn. Meðalpúlsinn 131 og fór hæst í 166 slög. Mér varð hugsað til þess ef það ætti að flýta klukkunni, til dæmis um eina til tvær klukkustundir þá væri fjári kalt að vera á ferðinni um 04:00 eða 05:00 og varla orðið sæmilega hlítt á hádegi.
Það styttist í Hornstrandaferðina. Eftir 17 daga verðum við kominn vestur á leið á Hornbjargið. Ég hlakka til, ætla að taka aftur fram bækurnar og kortin og lesa mér til.
Við förum ekki í eiginlegt sumarfrí fyrr en í ágúst. Og erum ekki ennþá ákveðin í því hvað við ætlum af okkur að gera. En hvað við gerum, verður fríið kærkomið.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 25. júní 2008
Það má segja að lengi sé von á einu
Ég hjóla þess vegna er ég á lífi. Ég nöldra, þess vegna blogga ég.
Það er fátt sem fer eins mikið í taugarnar á mér og þegar bílum er lagt UPPI á gangstétt eða á þann veg að það hindri gangandi og hjólandi fólk. Þá kemur síminn sér sérlega vel og ætla ég mér að taka myndir og birta hér.
Þessi gerði sér lítið fyrir og lagði svo gjörsamlega fyrir hjólastígnum að það voru bara vandræði að komast framhjá honum. Þarna hefur hann verið í nokkra daga, en seinnipartinn í dag var þó búið að færa hann þannig að hægt var að hjóla framhjá honum. Eigandinn ætlaði greinilega að vera sniðugur og "auglýsa" fyrirtækið sitt. En ég verð að viðurkenna að hann klúðraði þessu bigtæm. Ef ég þar á stálhaus að halda leita ég eitthvað annað.
En það sem mér finnst merkilegast að það eina sem hægt er að nota, þennan stóra, mikla og eyðslufreka bensínhák er að stilla honum upp til að auglýsa.
Þessi toppar allt sem hægt er að toppa þetta. Hann kemst varla innar á gangstéttina. Glatað. Ég vona að númerin sjáist vel.
Ég bætti tímann minn í dag. 32 mínútur sléttar frá Ármúla í Hafnarfjörðinn. Hef ekki komist undir 33 mínúturnar fyrr. Bara sáttur.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Miðvikudagur, 11. júní 2008
Svona rétt til að rifja upp aðgangsorðið
Ég er ekki dauður, ég held ekki allavegana. Það er búið að vera meira en nóg að gera síðustu vikur og mánuði og hef svo sannarlega haft gaman af því að vera til.
Ég fann aftur upp hjólið og tók því traustataki og hef hjólað í vinnuna nánast upp á hvern einasta dag frá því í byrjun apríl. Það hefur komið nokkrum sinnum fyrir að ég hef nærri því verið keyrður niður af bílstjórum sem eru algjörlega úti að aka, þrátt fyrir að ég fylgi hjólastígum, gangstéttum og gangbrautum, nánast frá heimilinu í Hafnarfirðinum og að VÍS í Ármúlanum. Það merkilega er að í þau skipti sem ég hef nærri verið keyrður niður er þegar ég er að fara yfir gangbraut á grænu ljósi. Þá er eins og maður hafi sett á sig huliðshjálm og er ósýnilegur þeim sem aka bílum. Að öllu öðru leiti en það að vera í bráðri lífshættu eru hjólreiðar meinhollar og maður hefur bara gott af þeim. Og líka gaman
Ættarmót Árbakkaættarinnar er um næstu helgi. Það er búið að vera gaman að stússast í þeim undirbúningi. Það stefnir í fína þátttöku, gott veður og mikið fjör. Við brunum norður á Laugarbakka eftir hádegi á föstudaginn.
Jæja, best að fara að koma sér í koj.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)