Erum að leggja af stað

hornvik2Jæja, bakpokarnir klárir, koma til með að taka dálítið í - en það tilheyrir.  Allt með, regnföt, sólarvörn, verkjalyf og matur ásamt ýmsum óþarfa sem gerir ekkert annað en íþyngja manni.  Veðurspáin flott og fín.  Hópurinn ekki eins stór og maður hefði viljað, en þýðir ekkert að fást yfir því.

Vona að birnir hitti nú enga ísbirni.


Vont en það venst

Maður á það til að vera virkilega klikkaður yfir veðrinu.  Núna skoða ég veðurútlitið fyrir Hornstrandir með reglulegu millibili.  Spáin er fín og það stefnir í fína ferð.  Samt finnst mér eins og eitthvað vanti.  Kannski er það að vegna þess að það lítur út fyrir að allur hópurinn komist ekki.  Við verðum amk. þremur færri en vanalega.  Það finnst mér frekar slæmt. 

Breiður og fjölbreyttur hópur er algjörlega nauðsynlegur í svona ferð.  Sérviska hvers og eins fær þá að njóta sín og fólk vegur hvort annað upp.  Það hefur allavegana sýnt sig að síðustu 5 ár höfum við náð skratti vel saman, eins misjöfn og ólik við erum.

Það var saumataka hjá mér í morgun.  Þetta lítur ágætlega út.  Nú gúffa ég í mig penisilini og íbúfen.  Allt gert til að vera góður fyrir ferðina.


Bacchalo a Bras

Þetta er búið að vera rólegheita helgi. Ég þurfti á því að halda.  Föstudagurinn var skratti strembinn, ég sat í þrjá tíma í stólnum hjá tanna og hann var ekkert sérlega mjúkhentur.  En ekki meira um það.

Máninn fer væntanlega í Kópavoginn á morgun.  Við vorum því með hálfgerða kveðjumálitíð í kvöld.  Hann valdi saltfiskinn hans Bras, Bacchalo a Bras.  Klikkar aldrei.

Samkvæmt Veðurstofu Íslands er gert ráð fyrir fínu veðri um næstu helgi fyrir vestan, á Hornströndum.

Ójá, það styttist. 


Glerárdalur 2008

Var að fá fréttir af Tobbu mágkonu.  Hún er að þramma Glerárdalshringinn þennan sólarhringinn.  Hún var stödd á Stórastalli klukkan 20:00.  Greinilega fínasti gangur á þeim.  Ætli það megi ekki búast við henni niður svona um klukkan 3-5 í fyrramálið, tja eða í nótt.  Eftir því hvernig maður lítur á það.  Þetta er löng og ströng ganga.

Hjólreiðar og Hornstrandir

Lagði að baki rúma 80 kílómetra þessa vikuna í að hjóla í vinnuna og heim aftur.  Alveg sáttur við það.  Í næstu verður væntanlega stúss alla daga eftir vinnu þannig að það verður lítið um hjólatúra.  Svo förum við náttúrulega á Hornstrandir nk. fimmtudag. 

Það var  Hornstrandafundur í gær.  Fólk er upprifið og spennt - en það er ekki alveg komið á hreint hvað við verðum mörg.  Lítur út fyrir að við verðum færri en vanalega.  En það kemur í ljós.  Hluti Þórólfa er að fara norður í dag til að taka þátt í Glerárdalshringnum - 24x24.  Þau koma svo til baka  á sunnudag og svo rjúkum við norður á Strandir á fimmtudag.  Töff dagar framundan.

Á tíma hjá tannlækni í dag... ekkert spenntur fyrir því.


Nú skein sólin, 10,2°c og logn

Á slíkum dögum er ekki annað að gera en drífa sig út, beisla fákinn og renna af stað.  Maður hjólar varla í betra veðri en þessu.

Ég var reyndar alveg húðlatur í morgun og ætlaði vara að hafa mig framúr.  Fór allt of seint að sofa miðað við það að ætla að rífa sig upp fyrir klukkan 6.  Var búinn að láta snúsa alveg til klukkan sex.  ákvað þá að hjóla ekki heldur verða samferða mínum betri helmingi.  Stillti því vekjarann upp á nýtt og staulaðist fram til að losa blöðruna.  Leit aðeins út um eldhúsgluggann í leiðinni og sá þá hvað veðrið var frábært.  Þannig að ég hætti við að vera latur og dreif mig af stað.  Enda assgoti gott að byrja daginn á hjólaspretti.

Við gáfum Mána tölvu um daginn, tengdum hann svo við netið í gærkvöldi.  Mikil gleði á þeim bænum.

Tölur dagsins eru:
Tími:33,04
Meðalpúls 135
Hámarkspúls 160
Brennsla 392 kcal. 
Í eyranu:  Hinn íslenski Þursaflokkur - Hinn íslenski Þursaflokkur.  Fjári góð plata sem kom út árið 1978.  Dálítið mjólkursýrð á köflum.  Saman safn af snillingum var í þessari sveit.


Fallegur morgun. Skýjað, logn og hiti rétt rúmlega 10°c

Og það var algjört rennifæri.  Lítill sigur hjá mér hvað tíma varðar.  Undir 31. mínútu.  Er að sjá það gerast að ég komist undir 30 mínúturnar fyrir sumarfrí í ágúst.  Þá verður kátt í höllinni.

Eftir kvöldmat í gær fórum við Kristín í göngutúr.  Svona rétt til að viðra okkur.  Skoðuðum meðal annars Hellisgerði.  Kíktum svo á Tobbu og Gísla.  Sátum úti í garði hjá þeim og spjölluðum.  Hún fer í Glerárdalsgönguna um næstu helgi.  Ætlar að munstra sig í A-hóp og taka þessa 24 tinda á innan við 24 tímum.  Hún rúllar því upp, ég hef ekki nokkra trú á öðru.  Gísli ætlar sér í allt annað verkefni.  Hann tekur stefnuna á Arnarvatnsheiði, ásamt mági sínum, og ætlar að bleyta í nokkrum flugum.  Hann sýndi mér einmitt fullt af flugum og öðrum kvikindum og pöddum sem hann hafið verið að kaupa sér.  Nobblerar, killerar, steinfluga og allskonar annað gúmmelaði.

Tölur dagsins eru:
Tími:30,51
Meðalpúls 140
Hámarkspúls 162
Brennsla 392 kcal. 
Í eyranu:  Utangarðsmenn - Geislavirkir.  Ágætt stöff sem eldist furðu vel.


Segi ekki að það sé að hitna í kolunum, en það voru 10,2°c. í morgun

Það var fínt hjólafæri í morgun.  Og það var frábært hjólafæri seinnipartinn í gær þegar ég dólaði mér heim.  Þegar veðrið er eins og það var í þá, sólskin, logn og hiti þá er eins og það færist ró yfir allt.  Verður allt svo slakt.  Maður gerir í því að lengja ferðina aðeins.  Tekur ýmsa aukakróka og er bara ekkert að stressa sig. 

Svo þegar í Hafnarfjörðinn var komið fórum við Kristín í Hellisgerði og sátum þar í dágóðan tíma og nutum sólarinnar.  Gegt.

Það er rétt vika í Hornstrandaferðina.  Það er lítill æsingur í okkur Þórólfum þetta árið, kannski vegna þess að þokkrir þeirra ætla skella sér um næstu helgi Glerárdalshringinn, aðrir fóru Fimmvörðuháls fyrir rúmri viku nú eða þá er bara svo mikið kúl í liðinu að það er ekkert að pæla í þessu fyrr en mætt er á staðinn.  En það er tilhlökkun í mér.  Ég hef verið að skoða kort og lesa Hornstrandabók Páls Ásgeirs og einnig gluggað aðeins í Ferðafélagsbókina frá 1994.

Tölur dagsins hjá mér segja náttúrulega bara hálfan sannleika, því þetta er bara önnur leiðin.  Ég hjóla einnig heim seinnipart dags en er ekkert að hirða um að halda bókhald yfir þær ferðir.

Tölur dagsins eru:
Tími:33,35
Meðalpúls 132
Hámarkspúls 164
Brennsla 384 kcal.


Hafnarfjörður: Þoka, logn hiti 8°c klukkan 6 í morgun

Ég áttaði mig ekki alveg á þokunni þegar ég lagði í'ann í morgun.  Fór því bara léttklæddur, stuttbuxur og þunnur síðerma svitabolur.  Fljótlega, eftir að ég kom upp á Álfaskeiðið áttaði ég mig á því að það var eiginlega frekar kalt.  Sem þýddi bara það að maður yrði að hjóla nokkuð rösklega.  Leiðin sem ég hjóla milli Hafnarfjarðar og Reykjavíkur er dálítið upp og niður.  Upp frá Sunnuveginum og niður.  Upp á Arnarneshæðina og niður, upp á Kópavogshæðina og niður. Upp úr Fossvoginum og hálfa leið niður...  Þokan náði ekki niður að sjó, því var hlýrra þar en það kólnaði þegar maður hjólaði upp í hana aftur.  Bara gott hjólaveður.

Tölur dagsins eru:
Tími:33,32
Meðalpúls 129
Hámarkspúls 158
Brennsla 369 kcal.


Kate Bush hvað?

The Ukulele Orchestra - Wuthering Heights, gamla Kate Bush lagið.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband