Fimmtudagur, 4. september 2008
Google Chrome
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 30. ágúst 2008
Sveitabrúðkaup
Við fórum á bíó í gær. Sáum Sveitabrúðkaup. Alveg hreint frábær mynd og skemmtum við okkur vel.
En sökum þessarar jákvæðni verð ég að nöldra líka. Myndin var auglýst klukkan sex. Vorum við mætt dálítið fyrir þann tíma til að kaupa popp og kók og svoleiðis. Sátum svo og horfðum á skjáauglýsingar þar til klukkan var 18:05 en þá var byrjað að sýna auglýsingar og trailera úr væntanlegum myndum. Ég viðurkenni að ég var orðinn frekar pirraður þegar myndin loksins byrjaði klukkan rúmlega TUTTUGUMÍNÚTUR YFIR SEX. Svo var náttúrulega gert langt hlé á myndinni eftir tæpar 40 mínútur. Eftir því sem ég varð var við fóru mög fáir út og komu fljótt til baka.
En myndin var frábær eins og áður sagði.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Föstudagur, 29. ágúst 2008
Bleikjuveiði
Nokkrar myndir úr sumarfríi.
Veiðimaður framtíðarinnar.
Misvænar bleikjur úr Þingvallavatni
Mjög vænir kallar að undirbúa forréttinn.
Þessar myndri voru teknar á Þingvöllum, vorum þar í bústað hjá þeim Tobbu og Gísla.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Fimmtudagur, 28. ágúst 2008
Sumarfrí brátt á enda
Þessu ágæta sumarfrí fer brátt að ljúka. Hef verið eins og blómi í eggi síðustu tvær vikur og er allur að endurnærast.
Svona til að sýna hversu slakur ér er set ég inn eitt tónlistarmyndband....
Takk fyrir það.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Mánudagur, 11. ágúst 2008
Þingvallableikja
Víð áttum afskaplega skemmtilega helgi. Strax eftir vinnu á föstudeginum brunuðum við við austur fyrir fjall og samglöddumst þeim Gísla (bróður Kristínar) og Drífu. Þau tóku upp á því að gifta sig þennan dag. Var fínasta veisla fram eftir kvöldi.
Daginn eftir sóttum við Mána og þá var stefnan tekin á Þingvöll. Gísli (ekki hálfbróðir Kristínar, heldur mágur) og Tobba voru þar í bústað og gerðum við, ásamt fleirum, okkur heimakomin. Ég var fljótur að setja stöngina saman, smokka mér í vöðlurnar og arka út í vatn. Þar undi ég glaður við mitt nánast allan daginn. Og til að gera þetta enn skemmtilegra þá fékk ég nokkra fiska, þessar fínu bleikjur. Það eru einhver ár síðan ég vætti í færi, nú er ég friðlaus í að komast aftur í vatn. Þarf reyndar að bæta við pöddusafnið, því ég var nokkuð lunkinn við að festa flugurnar og tapaði þannig nokkrum.
Eftir morgundaginn er ég kominn í frí. Takk fyrir það.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Sunnudagur, 3. ágúst 2008
Hornastrandaferð Þórólfa 2008
Í vetur var legið yfir kortum og bókum, spáð og spögglerað í gönguleiðum. Þá fljótlega var dottið niður á að ganga úr Hornvíkinni yfir í Lónafjörð. Þaðan í Veiðileysufjörð og enda á Hesteyri við Hesteyrarfjörð. Þar höfum við í tvígang gert okkur heimakominn og fengið frábæran viðurgjörning. Einnig kitlaði það dálítið að ganga Rangalaskarðið. Að sögn er það manndómsraun hvers Hornstrandafara.
Um hádegisbil, fimmtudaginn 17. júlí, sóttum við Kristín þær Tobbu og Steinu sem urðu samferða okkur vestur í Djúp. Ferðin gekk vel, með tilhlýðilegum stoppum á leiðinni. Síðasta stoppið sem við gerðum áður en við komum að Bæjum var í Kaldalóni, þar sem teknar voru nokkrar myndir í sæmilegum strekkingi. Ármúli, næsti bær við Kaldalón, er minn uppeldisstaður. Þangað flutti ég frá Ísafirði og bjó þar í nokkur ár. Einhverra hluta vegna tala ég alltaf um Ármúla og Djúpið sem ,,heima", þó svo ég hafi búið á örðum stöðum lengur en þar.
Jónas, Æðeyjarjarl sótti okkur á Sæfugli á tilsettum tíma í Bæi. Við fengum ekki gott í sjóinn. Það var töluverð alda úti fyrir Straumnesi og allt austur í Hlöðuvík, en þar urðum við að koma að landi til að skila af okkur trússi sem annar gönguhópur skildi svo vitja næsta dags. Áfram var haldið og við komum til Hornvíkur eftir miðnætti. Það var dumbungur yfir víkinni. Við vorum fljót að slá upp tjöldum og fá okkur í gogginn enda klukkan orðin margt.
Daginn eftir var Hornvíkin böðuð í sól. Eftir morgunmat og tilhlýðilegt pisserí og annað þarflegt var lagt af stað. Stefnan var sett á Rangalaskarð sem ýmist var hulið skýjum eða eða glotti við okkur. Það er töluverð ganga frá Höfn og að hlíðum fjallanna sem umlykja víkina. En í góðu veðri er aðalatriðið að njóta þess sem fyrir augu ber. Hækkunin upp í Rangalaskarð er eitthvað um 600 metrar. Með töluverðar birgðar á bakinu gerði ég ráð fyrir að það volgnaði almennilega í manni mörinn. Það varð næstum raunin. En þar sem aðstæður voru eins og best verður á kosið reyndist gangan upp í skarðið vera hin ánægjulegasta og besta skemmtun.
Það reyndist bratt úr skarðinu og niður efsta hjallann Lónafjarðarmeginn. En þar sem það voru fannir í fjallinu (sem væntanlega eru allt árið) gekk okkur sæmilega. Gangan frá Rangalaskarði og niður í Rangala var ánægjuleg en löng. Við slógum upp búðum í Rangala. Þar er ægifagurt og allt ósnortið. Það var ekki ónýtt að horfa inn í Miðkjósina og gæða sér á heitu pasta. Þennan dag gengum við rúmlega 15 kílómetra.
Laugardagurinn 19. júlí rann upp bjartur og heitur. Ég byrjaði að rumska um 06:00 klukkan átta var ég glaðvaknaður og hálftíma seinna gat ég ekki setið á mér lengur og stökk út. Sólin skein í heiði og með sanni má segja að ég hafi upplifa það sem mér finnst mest um vert - en það er lognið fyrir vestan. Stafalogn, dauðalogn, svartalogn, rjómalogn, blankalogn... mér er svo sem sama. Lognið fyrir vestan, í Djúpinu, Jökulfjörðum og á Ströndum er einhvern veginn mun meira en hér fyrir sunnan. Ég get ekki útskýrt það neitt nánar. Þarna, snemma morguns í Lónafirði sungum við afmælissöng fyrir Júlíu systur. Hún á án efa eftir að muna eftir þessum afmælisdegi lengi.
Við gengum út Lónafjörðinn og að Kvíum sem lúrir undir Kvíafjalli. Gönguleiðin þangað er mjög falleg og vorum við ekkert að flýta okkur. Einna merkilegast á þeirri leið eru Gautastaðir. Þar fallega hlaðinn veggur umhverfis bæ og tún sem nú eru þakinn hvönn.
Kvíar hefur verið fallegur og reisulegur bær. Við kíktum inn og dáðumst að fallegum stiga og ofni sem þar er. Að sjálfsögðu rituðum við nöfn okkar í gestabók sem þar er, en hún hefur greinilega verið lítið notuð. Annað hvort eru mjög fáir þarna á ferð eða göngumenn hafa ekki hirt um að skrá sig og ferðir sínar.
Leiðin yfir Kvíafjall er vel vörðuð en ströng og töluvert á fótinn. Við pjökkuðumst þetta og vorum því fegnust þegar við fórum að lækka okkur Veiðileysufjarðarmegin, því mörg okkar urðum fyrir því að fylla ekki á vatnsbrúsana áður en við lögðum á fjallið, enda gerðum við ráð fyrir nægu vatni eins og allsstaðar. En það var nú ekki raunin. Það varð ekki ein einasta lækjarspræna á vegi okkar frá Kvíum og upp á topp Kvíafjalls. Gangan niður Bæjardal að Steig var létt undir fót og fórum við fljótt yfir.
Tjöld voru reyst við tóftirnar að Steig. Matseðillinn var með svona fuision stíl. Harðfiskur með smjeri í forrétt og pastagorms í aðalrétt. Kakó og vanillukex í eftirrétt. Það voru þreyttir og sælir ferðalangar sem skriðu í dúninn þetta kvöld. Dagleiðin rúmir 15 kílómetrar.
Við urðum í tvígang fyrir rúmruski um nóttina. Í bæði skiptin flaug þyrla yfir tjöldum okkar og vakt okkur af værum blundi. Seinna meir komumst við að því að hún var að leita að ísbjörnum....!
Sunnudagur 20. júlí rann upp bjartur og fagur. Þessi göngudagur yrði styttri í kílómetrum en tæki aðeins í þar sem við myndum ganga grýtta fjöru. Það kom á daginn að það tók tímann sinn að ganga rétt rúma 12 kílómetra sem við lögðum undir fót. Við gengum upp í hlíðar Vatnalautafjalla hvar við fundum sæmileg tjaldstæði í rúmlega 100 m. hæð yfir sjávarmáli. Þegar á reyndi var tjaldið okkar í of miklum halla. Urðum við að púkka undir fætur okkar með bakpoka áður en við fórum að sofa svo við myndum ekki enda fram í kór. Kvöldmaturinn var eldaður og snæddur af okkur kappklæddum. Enda gekk á með skúrum. Um nóttina rigndi hraustlega og var notalegt, í öllum hallanum, að rumska og heyra í rigningunni lemjast og bylja á tjaldinu. Þá var gott að loka augunum í þeirri vissu að allt væri þurrt. Lítill svefn þá nótt.Mánudagurinn 21. júlí var grár og gugginn. Við náðum þó að taka samann í þurru. Við gengum á topp Vatnalautafjalla. Þar er fallegt útsýni, bæði niður í
Hesteyrarfjörð en ekki síður yfir Hlöðuvíkina, Álfsfellið og nyrsta enda Hælavikursbjargs. Þessi leið er ekki mikið farin og þótti okkur það ekki verra. Gangan út með Innri-Hesteyrarbrúnum er þægileg, enda fórum við hratt yfir og vorum á leiðarenda nokkuð fyrir áætlaðan komutíma. Við gengum rétt rúma 14 kílómetra. Líkt og endranær fengum við höfðinglegar móttökur á Hesteyri. Við fengum skólahúsið fyrir okkur. Hrólfur Vagnsson, vert, kom sjálfur með salatskálina og gasið fyrir grillið. Okkur skorti ekkert, nema restina af Þórólfum, sem ég vona að komi með okkur á Hornstrandir á næsta ári.
Salat og með því að hætti Steinu og Tobbu. Grill að hætti Vigga og uppvast að hætti Óla og mín. Frábært kvöld í enda frábærrar ferðar.
Hornstrandir og Jökulfirðir eru eitt ævintýrasvæði. Enn á ég eftir að ganga Austurfirði Hornstranda, en samt er ég farin að spá í þá staði sem ég hef verið á áður, Aðalvíkin, Hornbjargið, Lónafjörður, Grunnavík og Fljótavík. Ég á vonandi eftir að koma á alla þessa staði aftur. Og aftur.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Föstudagur, 1. ágúst 2008
Það er mikill munur á 06:00 og 07:00
Það var langur dagur hjá okkur báðum í gær. Ég var ekki kominn heim fyrr en um sjö og Kristín töluvert seinna eða þegar klukkan var að nálgast hálf tíu. Kvöldmatur var því í seinna lagi.... og ég nennti því ekki á fætur klukkan 6 í morgun, heldur fór á fætur klukkan sjö. Það er mikill munur þar á. Allt meira vaknað og umferðin mun meiri. Ég kýs þá frekar að koma mér á fætur klukkan 06:00, þá vakna ég betur.
Ég tók sæmilega á því í morgun. Fór þó frekar rólega af stað, enda annað óþarfi, jók svo hægt og rólega álagið. Var svo á fínu gasi síðasta kílómetran, eða svo. Tíminn kannski ekki sá besti hjá mér, en fín leið til að byrja daginn.
Ég fann það í gær, á heimleiðinni hvað það er í raun bætandi að vinda ofan af sér með því að hjóla heim eftir vinnu. Dagurinn hafið verið nokkuð erilsamur og ég var létt steiktur í hausnum þegar ég kom út. En kom endurnærður heim.
Það var langur dagur hjá okkur báðum í gær. Ég var ekki kominn heim fyrr en um sjö og Kristín töluvert seinna eða þegar klukkan var að nálgast hálf tíu. Kvöldmatur var því í seinna lagi.... og ég nennti því ekki á fætur klukkan 6 í morgun, heldur fór á fætur klukkan sjö.
Það er mikill munur þar á. Allt meira vaknað og umferðin mun meiri. Ég kýs þá frekar að koma mér á fótur klukkan 06:00, Þá vakna ég betur.
Tölur dagsins:
Tími:30,43
Meðalpúls 143
Hámarkspúls 164
Brennsla 404 kcal.
Í eyranu: Creedence Clearwater Revival - Klassískt og gott. Minnir mig alltaf á bíómyndir um Vietnam; Platoon, Good Morning Vietnam og fl.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 31. júlí 2008
Skýjað, logn og hiti 12°c klukkan 06:00 í morgun
Það var hálf skrítið að hjóla heim eftir vinnu í gær. Mikill hiti og allt eitthvað svo erlendis. Kom mér reyndar ekki úr vinnu fyrr en klukkan var að nálgast 18. En maður, ó maður. Þá var tekið á því. Var algjörlega endurnærður þegar ég kom í Hafnarfjörðinn og hefði eiginlega verið til í að halda lengur áfram.
Ég má til með að skella myndum sem ég náði í gær á heimleiðinni. Það var einn virðulegur Ford jeppi, alvöru tæki, á rólegheita rúnti á göngu/hjólastígnum milli Suðurhlíðar og N1 bensínstöðvarinnar í Fossvoginum. Ég trúði varla mínum eigin augum, en þarna var hann nú samt, svo ég gat nú ekki annað en smellt myndum af honum. Meira að segja urðu gangandi og hjólandi vegfaraendur að gjöra svo vel að fara út af stígnum svo að hans heilagleiki kæmist ferðar sinnar. Það er bara ömurlegt að horfa upp á þetta.
Það var frábært að hjóla í morgun. Alveg príma veður og allt æðislegt, eins og sagt er. Ég tók þetta á jöfnum ogþægilegum hraða, var ekkert að sperra mig neitt um og. Enda algjör óþarfi var á góðum tíma. Naut þess að renna áfram og hlusta á góða tónlist. Queen. Ef þetta kemur manni ekki í gírinn, þá veit ég ekki hvað.
Bicycle races are coming your way
So forget all your duties oh yeah!
Fat bottomed girls they'll be riding today
So look out for those beauties oh yeah
On your marks get set go
Bicycle race bicycle race bicycle race
Bicycle bicycle bicyI want to ride my bicycle
Bicycle bicycle bicycle
Bicycle race
Tölur dagsins:
Tími:33,56
Meðalpúls 129
Hámarkspúls 136
Brennsla 372 kcal.
Í eyranu: Queen - Greatest Hits I. Hlusta reglulega á þetta. Alltaf jafn flott.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Miðvikudagur, 30. júlí 2008
Í dag verður heitt - glampandi sól, 11°c og logn klukkan 06:00
Það var frábært að hjóla í vinnuna í morgun. Skreið framúr tíu mínútur í sex. Kíkti út um gluggann og brosti. Það var það eina sem mér datt í hug að gera. Skellti mér í stuttbuxur, spennti á mig púlsmælinn, léttan bol, skó og setti á mig hjálm og brunaði af stað.
Á svona morgni er ekki hægt að flýta sér, heldur er maður upptekinn af því að njóta hans.
En samt heldur maður tölum dagsins til haga og þær eru:
Tími:31,53
Meðalpúls 140
Hámarkspúls 171
Brennsla 409 kcal.
Í eyranu: Clash - London calling. Ár og öld síðan ég hlustaði á þessa. Ég var kominn í aftur í Reykjanesið'83. Ég er alltaf dálítið svag fyrir þessu, svona mitt uppáhalds.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þriðjudagur, 22. júlí 2008
Að gefnu tilefni...
...viljum við í Fjallaklúbbunum Þórólfi taka það fram að við eigum engan þátt í að þyrla og björgunarsveit voru kallaðar út þarna á Hornströndum. Þegar þessi ósköp áttu sér stað vorum við í góðu yfirlæti í Veiðileysufirði, reyndar urðum við vör við þegar þyrlan flaug tvisvar yfir okkur um nóttina. Það eina sem við gerðu var að snúa okkur á hina hliðina, bölva þessum vitleysingum sem trufluðu nætursvefn okkar og héldum áfram að sofa.
Hér má lesa um hvernig þetta var í raun og veru...
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)