Meira af hlutabréfamarkaði - hvað á maður að kaupa

Þar sem ávöxtun dagsins í dag er kannski ekki til að hrópa húrra fyrir skulum við spóla dálítið aftur í tímann og pæla í því í hverju maður hefði ekki átt að fjárfesta í og hvernig staðan væri í dag ef maður hefði fjárfest fyrir eins og einn þúsundkall í nokkrum útlenskum félögum.

Ef maður hefði keypt hlutabréf í Nortel fyrir þúsund kall, þá væru þau 49 kr. virði í dag.
Ef valið hefði verið Enron þá stæðu bréfin í 16,5 kr. virði miðað við að höfuðstóllinn hefði verið 1000 kr.
Ef WorldCom hefði verið fyrir valinu væru aumar 5 kr eftir.
Ef maður hefði eytt 1000 kalli í Delta Air Lines væri verðmæti þeirra 49 kr. í dag.

En, ef maður hefði bara farið í Ríkið og keypt átta bjóra (dós af Faxe kostar 119 kr.)  fyrir 952 kr, drukkið hann, farið svo með dósirnar í endurvinnslu, þá ætti maður 80 krónur.

Það er spurning um að fá sér kassa fyrir helgi.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband