Þriðjudagur, 9. janúar 2007
Puðið gegn mörinni
Nú er það hafið og engin miskun. Hálfs mánaðar leti er búin og nú er það harkan sex sem gildir. Eftir vinnu í gær voru teknar 47 mínútur á skíðavélinni, þar af 40 mínútur á útopnu. Það tók þó nokkuð margar mínútur til að koma svitakirtlunum og mörbræðslunni í gang. Að velgja mörinn. Allt þetta salt, saltpétur og önnur bindiefni ríghéldéldu í sitt og neituðu að sleppa, en með með þrjósku hafðist að koma vélinni af stað. Og þá byrjaði maður líka að svitna. Það var gott. Eftir góðar teygjur var svo skriðið ofan í heitan pott í nokkrar mínútur. Ég er sem sagt byrjaður aftur. Í kvöld verður lyft.
Athugasemdir
Flottur á því frændi :)
Formaðurinn (IP-tala skráð) 9.1.2007 kl. 12:40
Eruð þið systur ekki komnar á fullt?
Allt að gerast!
Heiðar Birnir, 9.1.2007 kl. 14:28
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.