Mánudagur, 8. janúar 2007
Það sem ég sagði ekki - en annar gerði
Oft les maður eitthvað eða heyrir og vildi óska þess að manni hafi dottið það í hug. En þá er ekki annað í stöðunni en nota klippa og líma og að sjálfsöðu geta þess hvaðan línurnar eru fengnar. Gísli Ásgeirsson var með fínan pistil á síðunni sinni um daginn. Birti hluta af honum hér:
,,Eftir ótal gjafir Álvers bónda stendur eftir spurningin: Um hvað á að kjósa? Álverið keypti lóðina undir stækkunina fyrir nokkrum árum. Mér skilst að rekstrar-og byggingarleyfi séu fyrirliggjandi og það eina sem er eftir, sé að afgreiða skipulagið. Kannski eigum við að kjósa um skipulag með álveri eða skipulag án álvers? Hvað veit ég? Ef ég ætti svona stóra lóð og fengi ekki að byggja á henni, yrði ég álíka saltvondur og Álftnesingurinn sem fær ekki að byggja á lóðinni sinni því hún er of nálægt heimili forseta bæjarstjórnarinnar sem tók sig til í sumar og bjó til tjörn á henni því honum fannst hún svo ljót. Þetta er vont mál fyrir Nesmennina og endar með málaferlum og skaðabótum og eflaust verður bærinn að kaupa lóðina aftur á fullu verði. Þessi staða gæti komið upp í Hafnarfirði.
Ég held að þrátt fyrir íbúalýðræðið margumrædda verði kosningin höfð þannig að álverið verður samþykkt. Það hentar bæjarstjórninni ekki að hætta við á elleftu stundu sem væri á við rofnar samfarir og það hefur hingað til ekki þótt gott. Bæjarstjórninni væri í lófa lagið að setja ákvæði um 50% kjörsókn og afgerandi meirihluta. Þess vegna verða kosningarnar ekki samfara þingkosningum í vor, því þá er hætta á góðri kjörsókn. Með góðum vilja er hægt að keyra mál í gegn og kalla það lýðræðislega ákvörðun."
Ég held að þetta geti vel orðið niðurstaðan, en það er líka hægt að koma í veg fyrir það. Eða?
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.