Miðvikudagur, 6. desember 2006
Hagur í heilsu
Actavis, hagur í heilsu. Núna ætlar þetta ágæta fyrirtæki að reyna að uppfylla þær kröfur um að selja Íslendingum samheitalyfin, sem það framleiðir, á lægra verði. Þessi lyf sem Acatvis framleiðir hér á landi eru seld m.a. í Danmörku á mun lægra verði en hér. Og hvernig ætla þessir ágætu menn að fara að. Jú, með því að flytja framleiðsluna úr landi.
Ég fatta þetta því miður ekki.
Athugasemdir
Jú er það ekki þannig að það er allt ódýrara í útlöndum, þannig að þeir senda út og kaupa svo af sjálfum sér erlendis frá og þá verður allt svo miklu ódýrara, algjör snilld. Við ættum að gera þetta líka með okkar landbúnaðarvöru, þá fyrst vænkast hagur fjölskyldna í landinu, ódýrt két, smér og fleira gott og matarveislur um alla borg, jibbí.
Birkir Elmarsson (IP-tala skráð) 7.12.2006 kl. 10:55
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.