Ég bara varð

Það er alveg merkilegt hvað maður lærir seint og illa.  Í þau fáu skipti sem við ösnumst til að versla við KFC verð ég alltaf hálf fúll.  Yfirleitt út af því hve maturinn er í raun ólystugur og vondur - en þó aðallega vegna þess að í hvert skipti sem við ætlum að fara að borða þetta (kaupum og tökum með heim) þá vantar eitthvað;  Einn skammt af frönskum, einn bita, einn borgara, gosið eða eitthvað annað.  Og auðvitað lætur maður þetta fara í taugarnar á sér.  Maður borgar engar smá upphæðir fyrir þetta.  EN núna stend ég upp og segi hátt og snjallt.  Ég fer í heilagt stríð gegn KFC.  Mig vantar bara hönnuð til að teikna logo, svona anti KFC logo.  

Er það ekki?

Og til hamingju með daginn.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég gæti nú alveg hannað svona lógó fyrir þig Heiðar minn...en mér finnst bara kjúklingaborgararnir þeirra svo góðir og vil því ekki styggja Kenny kallinn:-P

Júlía (IP-tala skráð) 2.12.2006 kl. 11:33

2 Smámynd: Heiðar Birnir

heheh. 

Heiðar Birnir, 2.12.2006 kl. 11:48

3 identicon

Ég er alveg sammála þér. Reyndar finnast mér borgararnir þeirra góðir en ef maður asnast til að fá sér bita vilja þeir verða... jah... ógeðslegir.

 Hér er logoið sem þú ert að leita að: http://i72.photobucket.com/albums/i186/thetrash04/antikfc.jpg

Karl Ágúst (IP-tala skráð) 3.12.2006 kl. 00:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband