Íslensk króna

idiot

Ég var að velta örlítið fyrir mér ástandi krónunnar, núna "á þessum síðustu og verstu".  Hún hefur fallið, er að falla og mun væntanlega falla næstu daga.  Hún er sem sagt í frjálsu falli, eins og spekúlantarnir orða það.  Það hefur veri sagt að ein helsta ástæða þess sé óróleikinn á fjármálamörkuðum.  Þetta er nú allt orðið svo glóbalt.  Þessu hefur verið haldið fram meðal annars af seðlabankastjóra og forsætisráðherra, ef ég man rétt.

Það væri gaman að vita hvernig myntir annarra þjóða í Evrópu sem ekki eru aðilar að evrunni standi sig.  Hvernig standa krónur hinna norðurlandanna gagnvart evrunni.  Hvernig er breska pundið og svissneski frankinn að standa sig á þessum tímum?  Væntanlega á sömu hröðu leið niður á botn, rétt eins og íslenska krónan.

Eða? 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég átti heima í Sviss og dóttir mín er þar núna og ekki er að finna það á henni og fólki að það sé einhver kreppa þar! Það er bara hér þar sem allt er í klessu!

Ragnheiður Arna Magnúsdóttir (IP-tala skráð) 1.10.2008 kl. 21:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband