Sunnudagur, 28. september 2008
Hvað með grey parið sem keypt dónamyndina en situr uppi með John Travolta og Olivia Newton-John
Ég er ekki alveg að skilja fréttagildið í fréttinni á Vísir.is og Stöð 2 í kvöld um "Klámmynd í stað Grease í Góða hirðinum". Ég skil ósköp vel að mamman, sem er tæplega þrítug móðir í Reykjanesbæ, þó það komi ekki málinu neitt við, sé nett öskureið yfir því að klámmynd hafi verið í stað Grísmyndarinnar sem hún keypti fyrir dóttur sína. En að þetta sé frétt, bæði á vefmiðli og líka í sjónvarpi er ég ekki alveg að skilja. Einhvernvegin stórefa ég að allt hafa farið í "bál og brand" ef myndin Hostel hafi verið í hulstrinu.
Hvað með grey parið sem keypt dónamyndina en situr uppi með John Travolta og Olivia Newton-John, eins settleg og framast getur orðið....
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.