Sjónvarpspælingar fyrr og nú

Þó ég sé nú ekki eins gamall og elstu menn muna þá man ég þó eftir því þegar ekkert sjónvarp var á fimmtudagskvöldum og sjónvarpslausum mánuði á sumrin.  Einnig man ég eftir Derrick, Þýskum sakamálaþætti sem sýndur var í áratugi á rúv.  Eftir því sem ég man þá voru þessir þættir bara nokkuð góðir í upphafi.  Sæmileg flétta sem byggði upp ágæta spennu og svo var, ef ég man rétt, allt í lagi leikurinn hjá þeim félögum Horst Tappert sem lék sjálfan Stephan Derrick og Fritz Wepper sem lék Harry Klein, hundtrygga aðstoðarmann hans.  Kannski fannst manni bara allt gott í sjónvarpinu þegar maður var púki.  Eftir því sem ég eltist þóttu mér þættirnir þynnast mikið og fyrir rest var varla heil brú í þeim.  Það sama finnst mér vera að gerast með skosku þættina um Taggart.  Hér áður fyrr, þegar þættirnir voru upp á sitt besta og "sjálfur" Taggart var og hét, voru þetta fínir þættir sem ég hafði nokkuð gaman af.  Í dag er þetta útþynnt og dapurt þriðja flokks efni með oftast nær lélegum söguþræði og arfalöppum leik allra.  Einnig er glatað að þættirnir séu endursýndir á föstudagskvöldum, þegar maður skildi búist við einhverju örlitlu betra sjónvarpsefni.

Ég get lítið annað en tuðað þessa dagana.  Vildi svo gjarnan vera jákvæðari en stemningin í mér er bara því miður ekki meiri en þetta.  Svo er líka allt í lagi að hleypa tuðaranum út annað slagið.  Losa aðeins um hann. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband