Föstudagur, 19. september 2008
Brjósklos

Ég fékk úr því skorið í morgun að ég er með myndarlegt brjósklos milli fjórða og fimmta hryggjaliðs, hægra megin. Eirík, sjúkraþjálfara, leist ekkert á þetta þannig að ég leggst undir hnífinn (eða hvaða græjur verða notaðar) vonandi sem fyrst. Síðustu daga hef ég innbyrgt svo mikið magn af verkja- og slakandi lyfja að ég held að líkamanum hljóti að þykja nóg um. En þrátt fyrir það finnst mér þau lítið slá á verkina.
Ég er búinn að vera frá vinnu þessa viku og það lítur nú ekki út fyrir að ég komist í vinnu alveg á næstunni, þó svo maður voni það allra besta. Ég er svo heppinn að vinna með frábæru fólki sem brettir bara hærra upp og gengur í hlutina.
Einhvern tíma sungu þeir Helgi Björns og félagar um hvort pabbar gætu ekki grátið. Jú, ég held að þeir geti það, þótt þeir reyni að láta lítið bera á því.
Athugasemdir
Sæll Heiðar
Það er leiðinleg að heyra, en gott að það sé komin greining hjá þér á hvað er að gera út á við þig. Sendi baráttu kveðju til þín Heiðar og megi heilsan komast í lag sem fyrst hjá þér. Það var eins og einn vinnufélagi okkar sagði við mig þegar hann veiktist alvarlega, (Siggi þetta er einn leikurinn í viðbót sem ég þarf að vinna) hann var og er mikill íþróttarmaður. Ég efast ekki að það sé sama hugarfar hjá þér
og þú verðir kominn á hjólið áður enn langt um líður.
mbk
Siggi
Sigurður Sigurbjörnsson (IP-tala skráð) 20.9.2008 kl. 09:28
Takk fyrir þetta. Nú er bara að bretta upp ermar og skálmar og taka á þessu.
Heiðar Birnir, 20.9.2008 kl. 18:52
Bin there, done that. Gangi þér vel
Ingþór (IP-tala skráð) 21.9.2008 kl. 12:28
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.