Byssa og bak

Jæja, ætli það sé ekki tími á smá öppdeit.  Veit svo sem ekki hvar ég á að byrja, af mörgu að taka.

Ég hef verið með eindæmum óheppinn með bakið á mér síðustu vikur.  Eftir Hornstrandagönguna (eða í henni) fékk ég einhvern slink á bakið og hef í raun ekki verið góður síðan.  Svo í sumarfríinu gerðist eitthvað enn frekar og nú er það þannig að ég get mig varla hreyft, vaknaði til dæmis í morgun með svo mikla verki í bakinu sem leiddu niður í hægri fót, og sérstaklega hægra hnéð að ég hélt að ég yrði ekki eldri.  Ég rétt náði að staulast inn í eldhús og gleypa í mig tvær íbúfen og tvær panódíl.  Staulaðist svo aftur upp í rúm og náði að hagræða mér þannig að verkurinn var þolandi.  Tveim tímum seinna vaknaði ég aftur við mikinn sársauka, en náði að hagræða mér þannig að þetta var viðunandi.

Ég á tíma myndatöku nk. miðvikudag, maður verður bara að bíta á jaxlinn og láta sig hafa þetta einhvern veginn.  Það verður fínt að mæta í vinnuna á mánudaginn, Ásgrímur lét setja rafmagnsfætur undir borðið mitt, svo nú hef ég möguleika að standa við borðið þegar það hentar mér betur.

En það er nú eitthvað skemmtileg líka hjá mér... ekki bara vol og væl.  Ég lét gamlan draum es-100.jpgrætast og keypt mér eina almennilega haglabyssu.  Fyrir valinu varð Beretta ES 100, ítölsk/spænsk hálfsjálfvirk haglabyssa.  Ég hef því miður ekki náð að skjóta almennilega úr henni ennþá, en við Máni skruppum og puðruðum nokkrum skotum út í loftið.  Bara fjör hjá okkur.

Nú er bara að bíða eftir að komast á gæs.  Ég á von um að komast á túnblett og reyna á hvort ég nái í eins og eina eða tvær gæsir.  Og hver veit hvort maður verði einnig svo heppinn að hafa rjúpu um jólin.  Einnig ætlum við bræður að bruna norður í október og fara á svartfugl.  

Það er greinilega nóg um að vera... eins gott að helv... bakið fari að komast í gott lag.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband