Sveitabrúðkaup

Við fórum á bíó í gær.  Sáum Sveitabrúðkaup.  Alveg hreint frábær mynd og skemmtum við okkur vel.

En sökum þessarar jákvæðni verð ég að nöldra líka.  Myndin var auglýst klukkan sex.  Vorum við mætt dálítið fyrir þann tíma til að kaupa popp og kók og svoleiðis.  Sátum svo og horfðum á skjáauglýsingar þar til klukkan var 18:05 en þá var byrjað að sýna auglýsingar og trailera úr væntanlegum myndum.   Ég viðurkenni að ég var orðinn frekar pirraður þegar myndin loksins byrjaði klukkan rúmlega TUTTUGUMÍNÚTUR YFIR SEX.  Svo var náttúrulega gert langt hlé á myndinni eftir tæpar 40 mínútur.  Eftir því sem ég varð var við fóru mög fáir út og komu fljótt til baka.

En myndin var frábær eins og áður sagði.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hulla Dan

Ohhh mig langar að sjá þessa mynd!

Hulla Dan, 8.9.2008 kl. 23:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband