Skýjað, logn og hiti 12°c klukkan 06:00 í morgun

Það var hálf skrítið að hjóla heim eftir vinnu í gær.  Mikill hiti og allt eitthvað svo erlendis.  Kom mér reyndar ekki úr vinnu fyrr en klukkan var að nálgast 18.  En maður, ó maður.  Þá var tekið á því.  Var algjörlega endurnærður þegar ég kom í Hafnarfjörðinn og hefði eiginlega verið til í að halda lengur áfram.

PE267Ég má til með að skella myndum sem ég náði í gær á heimleiðinni.  Það var einn virðulegur Ford jeppi, alvöru tæki, á rólegheita rúnti á göngu/hjólastígnum milli Suðurhlíðar og N1 bensínstöðvarinnar í Fossvoginum.  Ég trúði varla mínum eigin augum, en þarna var hann nú samt, svo ég gat nú ekki annað en smellt myndum af honum.  Meira að segja urðu gangandi og hjólandi vegfaraendur að gjöra svo vel að fara út af stígnum svo að hans heilagleiki kæmist ferðar sinnar.  Það er bara ömurlegt að horfa upp á þetta.

Það var frábært að hjóla í morgun.  Alveg príma veður og allt æðislegt, eins og sagt er.  Ég tók þetta á jöfnum ogPE267(2)þægilegum hraða, var ekkert að sperra mig neitt um og.  Enda algjör óþarfi var á góðum tíma.  Naut þess að renna áfram og hlusta á góða tónlist.  Queen.  Ef þetta kemur manni ekki í gírinn, þá veit ég ekki hvað.

Bicycle races are coming your way
So forget all your duties oh yeah!
Fat bottomed girls they'll be riding today
So look out for those beauties oh yeah

On your marks get set go

Bicycle race bicycle race bicycle race
Bicycle bicycle bicyI want to ride my bicycle
Bicycle bicycle bicycle
Bicycle race

Tölur dagsins:
Tími:33,56
Meðalpúls 129
Hámarkspúls 136
Brennsla 372 kcal. 
Í eyranu:  Queen - Greatest Hits I.  Hlusta reglulega á þetta.  Alltaf jafn flott. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Blessaður.

vaknar klukkan sex!!! er það ekki pínu snemmt? annars ánægður með þig. þú ert hörkutól. 

Hlynur (IP-tala skráð) 31.7.2008 kl. 21:18

2 Smámynd: Hulla Dan

Finn fyrir endalausri löngun hjá mér í svona "mælir"
Góða helgi á þig

Hulla Dan, 1.8.2008 kl. 02:05

3 Smámynd: Heiðar Birnir

Heiðar Birnir, 1.8.2008 kl. 07:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband