Miđvikudagur, 30. júlí 2008
Í dag verđur heitt - glampandi sól, 11°c og logn klukkan 06:00
Ţađ var frábćrt ađ hjóla í vinnuna í morgun. Skreiđ framúr tíu mínútur í sex. Kíkti út um gluggann og brosti. Ţađ var ţađ eina sem mér datt í hug ađ gera. Skellti mér í stuttbuxur, spennti á mig púlsmćlinn, léttan bol, skó og setti á mig hjálm og brunađi af stađ.
Á svona morgni er ekki hćgt ađ flýta sér, heldur er mađur upptekinn af ţví ađ njóta hans.
En samt heldur mađur tölum dagsins til haga og ţćr eru:
Tími:31,53
Međalpúls 140
Hámarkspúls 171
Brennsla 409 kcal.
Í eyranu: Clash - London calling. Ár og öld síđan ég hlustađi á ţessa. Ég var kominn í aftur í Reykjanesiđ'83. Ég er alltaf dálítiđ svag fyrir ţessu, svona mitt uppáhalds.
Athugasemdir
Alltaf međ puttann á púlsinum
Heiđar Birnir, 31.7.2008 kl. 08:43
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.