Fimmtudagur, 10. júlí 2008
Nú skein sólin, 10,2°c og logn
Á slíkum dögum er ekki annað að gera en drífa sig út, beisla fákinn og renna af stað. Maður hjólar varla í betra veðri en þessu.
Ég var reyndar alveg húðlatur í morgun og ætlaði vara að hafa mig framúr. Fór allt of seint að sofa miðað við það að ætla að rífa sig upp fyrir klukkan 6. Var búinn að láta snúsa alveg til klukkan sex. ákvað þá að hjóla ekki heldur verða samferða mínum betri helmingi. Stillti því vekjarann upp á nýtt og staulaðist fram til að losa blöðruna. Leit aðeins út um eldhúsgluggann í leiðinni og sá þá hvað veðrið var frábært. Þannig að ég hætti við að vera latur og dreif mig af stað. Enda assgoti gott að byrja daginn á hjólaspretti.
Við gáfum Mána tölvu um daginn, tengdum hann svo við netið í gærkvöldi. Mikil gleði á þeim bænum.
Tölur dagsins eru:
Tími:33,04
Meðalpúls 135
Hámarkspúls 160
Brennsla 392 kcal.
Í eyranu: Hinn íslenski Þursaflokkur - Hinn íslenski Þursaflokkur. Fjári góð plata sem kom út árið 1978. Dálítið mjólkursýrð á köflum. Saman safn af snillingum var í þessari sveit.
Athugasemdir
Heiddi minn
Gætirðu ekki útskýrt þessar tölur fyrir kvenmanninum mér?
Skil alveg tímann... en varla ertu að taka á þér púlsinn með vissu millibili... Kæmist þá aldrei á þessum tíma ehhhe.
Hvað eru annars að hjóla langt á þessum tíma og hvernig í ósköpunum veistu hversu miklu þú brennir???
Og Utangarðsmenn ERU góðir!!!
Kveðja frá Hullu sem kann varla að hjóla.
Hulla Dan, 10.7.2008 kl. 20:57
Sæl frú Hulla.
Blessuð vertu ég er ekki að taka púlsinn á mér reglulega, heldur tengir maður sig við púlsmælir sem mælir þetta alltsaman, hámarkspúls, meðalpúls og brennslu.
Vegalengdin hjá mér að heiman og í vinnu eru tæpir 12 kílómetrar, þannig að þetta eru tæpir 24 kílómetrar á dag.
Skemmtu þér vel í Belgíu.
Heiðar Birnir, 11.7.2008 kl. 08:54
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.