Almennilegur hjólatúr

Ég hef látið mig dreyma um að fara í almennilegan hjólatúr.   Þetta hefur blundaði í mér allt frá því við keyptum okkur hjólin vorið 2007.  En ég hef ekki látið vera að því fyrr en í dag.  Ég hafði einhversstaðar heyrt að Bláfjallahringurinn væri kjörinn hringur, 40 kílómetrar eða eitthvað svoleiðis.  Mér þótti það vera hæfilegur rúntur svona á laugardegi. 

Í stað þess að aula mér af stað í morgun var ég að drolla eitthvað fram eftir degi.  Þegar ég svo ákvað að skella mér, renndi ég fyrst upp í Hjólasprett, til að kaupa eina slöngu, svona rétt til að hafa örlítið vað fyrir neðan sig. Svo var stokkið af stað með Garmin og Polar græjur.

Ég lagð af stað frá Hafnarfirði og kom rétt aðeins við í sjoppu til að kaupa smá nesti.  Þaðan lá leiðin í gegnum Setbergshverfið og út á Reykjanesbrautina.  Þar var ég í kappi við kolbrjálaða bílstjóra sem þó sýndu hjólakappanum þokkalega tillitssemi.  Ég fór í gegnum Garðabæ og Kópavog og tók stefnuna í gegnum Seljahverfið.  Það tók dálítið í að hjóla þar upp.  Áfram var haldið og upp á Suðurlandsveg, framhjá Norðlingaholti og í áttina að Hellisheiði.  Við Bláfjallaafleggjarann á Sandskeiði sýndi garmurinn að ég hafði lagt um 22 kílómetra að baki.  Hva, bara hálfnaður, hugsaði ég með mér en ákvað að hjóla dálítið lengra í átt til Bláfjalla áður en ég nestaði mig.  

Eftir gómsæta rækjusamloku, kókómjólk og banana á góðum stað rétt utan vegar með útsýni yfir
blafjoll4 Vífilfellið, með toppinn hulinn skýjum, var haldið áfram.  Það var rennifæri örlítill mótvindur sem virkaði sem fínasta kæling.

Á þessum punkti uppgötvaði ég hvílík snilldargræja síminn minn er.  Ég hafði fyrir nokkru dundað mér við að setja nokkur lög inn á hann, svona til gamans.  Þegar ég var orðinn leiður á sjálfum mér og mínum hugsunum, tróð ég heddsettinu í eyrað og byrjaði að blasa á fullu og syngja með.  Það hefur án efa verið stórfurðuleg sjón að sjá hjólreiðamann á puðandi upp brekkur syngjandi Gibba Gibb með Halla og Ladda.  En trúið mér, það lag virkar vel, þegar maður er að taka á því.  Eins var er Mugison góður.  Einnig hlustaði ég á Dolly Parton og AC/DC ég er óttalegt tónlistarviðundur.  Alæta.

Þegar stutt er eftir á skíðasvæðið er beygt útaf við skilti sem segir að það séu 25 km í Hafnarfjörð.  blafjoll3Þarna var ég búinn að hjóla rúma 30 kílómetra og var því að átta mig á að upplýsingarnar sem ég taldi mig hafa um 40 km vegalengd var bull.  En fyrst maður var kominn svona langt þá var bara að halda áfram.  Nú tók við laaaaangur vegakafli, ómalbikaður og mjög grófur.  Þarna hélt ég að ég og hjólið myndum hrisstast í sundur.  Ég færi úr lið í öxlum og úlnlið.  En með AC/DC glymjandi í eyranu hafðist þetta nú allt saman og vel það.  Þetta var hin mesta skemmtun því nú lá leiðin niður í mót allt auðveldara.  Ég segi það ekki, ég hefði mun frekar viljað vera á malbiki, það hefði verið mun þægilegra.  En allir komu þeir aftur og enginn þeirra dó.  Dollý Parton og Kenny Rogers sungu Island in the stream.  Og ég hugsaði um jólin (kósíheit par ...).  

Við Grindarskörðin var tilhlýðilegt að stíga af fáknum og smella eins og einni mynd sjálfum sér viðblafjoll1 skiltið, svona rétt til staðfestingar á því að maður hafi verið þarna.  

Eftir um 58 kílómetra og rétt um þrem tímum seinna var ég kominn heim.  Er skratti ánægður með sjálfan mig, en hrikalega aumur í gumpnum.  Ég set ofarlega á óskalista hjá mér að eignast almennilegar hjólabrækur, svona ef vera kynni að ég skelli mér í svona ævintýri aftur, sem ég geri fyllilega ráð fyrir.

Hef heyrt að það sé skemmtilegur hjólatúr að renna sér Hvalfjörðinn. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Húsmóðir

duglegur strákur - Eftir svona erfiði finnst mér þú eiga það fyllilega skilið að fjárfesta í einhverjum brókum með gelfyllingu ( eða hvað það nú er sem ofurduglegt hjólreiðafólk notar við svona iðju )  

Húsmóðir, 6.7.2008 kl. 11:37

2 Smámynd: Heiðar Birnir

Ég er einmitt að reyna að finna gáfulegt nafn á þennan þarfa hlut.  Svampbrók, Gelbrók, Djásnavörn, Gumpahlífir.... gengur hægt.

Heiðar Birnir, 8.7.2008 kl. 07:27

3 Smámynd: Húsmóðir

Fjárhirsla ?  skartgripaskrín ?  Nei bara spyr ...............

Húsmóðir, 8.7.2008 kl. 18:26

4 identicon

Þetta er alvöru hjólatúr. Prófaðu næst að fara Hafnarfjarðarmegin og renna þér niðureftir frá Sandskeiðinu.  Drífðu þig svo í Markið og fáðu þér gelpúða á hnakkinn, eða hjólabuxur með klofstykki. 

Gísli Ásgeirsson (IP-tala skráð) 10.7.2008 kl. 10:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband