Hitinn á uppleið 7°c klukkan sex í morgun

Það var rennandi hjólafæri í morgun, þó það hefði ekki mátt vera kaldara.  Hvað segir það manni að hitastigið skuli rétt slefa yfir frostmark snemma morguns á miðju sumri.  Jú, þetta er nú bara Ísland.  gott og vel.

Ég var 34,07 mínútur á leiðinni.  Allt í lagi tími.  Meðalpúlsinn 131, fór hæst í 165, og brennslan 386kcl. 

Ég sendi póst í gærkvöldi á Þórólfa, svona rétt til að koma fólki í gírinn og byrja að peppa upp fyrir ferðina. 

Dagur I – fimmtudagur 17. júlí 2008
Siglt frá Bæjum á Snæfjallaströnd í Hornvík.  Tjaldað og gist að Höfn.

Dagur II – föstudagur 18. júlí 2008
Gengið úr Höfn í Hornvík yfir í Rangala í Lónafirði.  Farið er um Rangalaskarð sem liggur í einhverjum 600 mys.  Meðal Hornstrandafara er það talið nokkurt manndómsmerki að fara þetta skarð sem er hið hæsta af fjallaskörðum Hornstranda.  Þetta er um 12-13 kílómetrar.

Dagur III – laugardagur 19. júlí 2008
Frá Rangala göngum við út með Lónafirði að Kvíum og skoðum okkur þar vel um.  Því næst göngum við yfir Kvíafjall (480 mys).  Við göngum niður Bæjardal og að bænum Steig í Veiðileysufirði.  Þar í grenndinni finnum við okkur tjaldstæði og eyðum nótt.

Dagur IV – sunnudagur 20. júlí 2008
Tökum daginn snemma og göngum inn í botn Veiðileysufjarðar.  Þegar fyrir botninn er komið komum við að forvaði við fjallið Lónhorn.  Ekki verður farið það nema á rúmlega hálfföllnu.  Eftir því sem ég best veit þá er háfjara þar um klukkan þrjú síðdegis, þannig að við höfum tíma frá tvö til c.a. fimm til að fara þar fyrir.  Þaðan er síðan stutt að lítilli eyri sem heitir Meleyri, þar ku vera tjaldstæði og kamaraðstaða.  Þessi dagur er stuttur í kílómetrum, en við verðum að klöngrast í fjöru og vaða dálítið.  Þannig að það er eins gott að vera sæmilega vaðskæddur.

Dagur V – mánudagur 21. júlí 2008
Dálítið löng ganga frá Meleyri upp á Vatnalautafjall, stefnum þar á Kjaransvíkurskarðið, sem við þekkjum frá annarri ferð okkar á þessar slóðir.  Þar komum við inn á slóðina á Innri-Hesteyrarbrúnum sem við fylgjum sem leið liggur til Hesteyrar.  Þar munum við væntanlega slá upp Þórólfsgrillveislu. 

Samkvæmt grófum mælingum er leiðin úr Hornvík til Hesteyrar um Lónafjörð og Veiðileysufjörð um 55 kílómetrar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband