Þriðjudagur, 13. maí 2008
Vor í lofti
Það var ljúfur og góður birkiilmur í lofti þegar ég hjólaði í vinnuna í morgun. Ullarsokkurinn spratt fram í mér og mig langað ekkert inn á skrifstofu. Svo til að toppa þetta alltsaman þá heyrði ég og sá Kríu í dag á leið heim úr vinnunni. Það er ótvírætt merki um vorkomuna.
Athugasemdir
Þú ættir að upplifa danskt vor. Það er það allra besta í öllum heiminum... hugsa ég.
Hafðu það gott og láttu mig vita ef þið skellið ykkur í danmerkurferð, þá er alltaf heitt á könnunni og kalt í ísskápnum (s.s öl)
:)
Hulla Dan, 15.5.2008 kl. 07:26
Sæll Heiðar,
á ekki að skrifa neitt meira.. eða getur maður hætt að kíkja hérna inn, ekki segja það. svo gaman af þessu...
hlynurkrist (IP-tala skráð) 2.6.2008 kl. 21:28
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.