Laugardagur, 3. maí 2008
Brottnamið úr kvennabúrinu
Stundum er bókstaflega hægt að gleyma sér við að hlusta á útvarpið, Rás 1. Ég átti slíka stund nú í kvöld er ég hlustaði á uppfærslu Metropolitan óperunnar í New York á Brottnáminu úr kvennabúrinu eftir W. A. Mozart, í beinni útsendingu. Vissulega er maður ekki óhlutdrægur, okkar maður, Kristinn Sigmundsson, fór með eitt aðalhlutverkanna, hann skilað því með miklum sóma. Ég hefði svo sannarlega viljað vera á svæðinu og upplifa stemninguna, fá hana beint í æð.
Ég hef ekki þekkingu á sígildri tónlist, en nýt þess að hlusta á það sem gleður eyrað. Uppfærslan í kvöld gerði það svo sannarlega. Húmorinn skein einhvernvegin í gegn og fékk maður það á tilfinninguna að maður væri á staðnum.
Athugasemdir
Að hlusta og horfa á óperur er eitthvað það skemmtilegasta sem ég geri enda missi ég aldrei af neinni óperu hér heima. Stórkostlegasta stundin mín var þó þegar við vorum saman í NY og fór á uppáhalds óperuna mína, Aidu í Metropolitan. Þú þarft bara að vera duglegri að koma þér af stað og upplifa klassíska tónlist live. Það er alltaf eitthvað um að vera alls staðar.
Chiao,
Addi.
Arnlaugur Helgason, 5.5.2008 kl. 12:34
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.