Mánudagsmorgunn

Við vorum nokkrir Þórólfar sem gengum á Esjuna í gær, sunnudag.  Við vorum mætt við Mógilsá um klukkan 10 og gengum í björtu og fallegu veðri á fjallið.  Þegar við komum svo heim bökuðum við vöfflur og ekta súkkulaði.  Svona eiga sunnudagar að vera.  Við Þórólfar stefnum á að ganga á Skeggja um næstu helgi.  Það verður frábært.

Svo er það ræktin.  Er alveg að ná að rífa mig á fætur fyrir klukkan 6 á morgnanna.  Nú er bara að halda því áfram.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ertu bæði að labba á fjöll og hjóla og stunda líkamsrækt???
Ertu viss um að það sé ekki pínu óholt að hreyfa sig svona mikið?
Mér finnst nóg að arka um húsið mitt og labba svo út í bíl og keyra í vinnuna.

Allavega, þú ert bara duglegur, en farðu vel með þig, það ku vera frekar óþægilegt að hafa harðsperrur.

Kveðja, Hulla

Hulla (IP-tala skráð) 15.1.2008 kl. 06:51

2 Smámynd: Heiðar Birnir

Heiðar Birnir, 15.1.2008 kl. 11:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband