Föstudagur, 7. desember 2007
Mont Blanc
Við Þórólfar hittumst í gærkvöld til að skoða myndir. Einn háfjallameistari kom og sýndi okkur myndir úr ferð sinni á Mont Blanc. Einhverjir Þórólfar hafa verið að gæla við það að puðast þangað upp.
Myndirnar voru magnaðar og þetta er ævintýri sem kitlar marga. Ég viðurkenni að mér þótti mikið til koma og spenntist nokkuð upp. En þegar háfjallameistarinn sagði okkur frá því að deginum áður en hann var þarna þá fórust fimm manns í fjallinu og vikunni á undan fjórir. Fólk fraus í hel og annað hrapaði til bana. Þá .... varð þetta minna spennandi.
Athugasemdir
Það er ótúlega sexý að missa tær í fjallgöngu !!!
Formaðurinn, 12.12.2007 kl. 19:00
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.