Örtuð

Mikið á ég erfitt með að skilja sumt.

Hvernig stendur á því að á meðan uppboðum á eignum fóks hefur fjölgað gríðalega mikið, segja bankarnir að vanskil hjá þeim séu í sögulegum lágmarki.  Hvernig má það vera?

Hvernig stendur á á því að þeir vantrúuðu, sem fjálglega berjast á móti kristinni trú og gera lítið úr henni, finnst bara allt í lagi að halda jólin hátíðleg.  Og ekki koma með það kjaftæði að hátið hafi verið haldin hér á landi á löngu á undan kristnitökunni. 

Best að hætta þessu tuði, það hefur ekkert uppásig.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

úff... þessi erfiðu reikningsdæmi eru að fara með mig....7+6..ég þurftir að hugsa smá stund :)

 ég tel mig nokkuð vantrúaða. Fer ekki til kirkju nema við brúðkaup og jarðarfarir eða til að skoða arkitektúr. Ég er enginn vantrúar-ofstækissinni. Fólk verður að hafa sitt og líða vel með það finnst mér. Þjóðkirkjan er heill kapituli útaf fyrir sig. Og að ein þjóðartrú finnist...fúff.

Jólin fyrir mér er kærkomið bil á skólaárinu. Þetta er dimmur tími svo mér finnst notalegt að hafa auka ljós til að lýsa upp skammdegið. Maður hittir svo fjölskylduna og afi kemur og borðar hangikjöt á aðfangadag. Góður matur og konfekt, fjölskylduþras og skemmtun, jólaljós og rólegheitastemning. 13 jólasveinar og smákökur. Þetta er maður alinn uppvið og þetta verður vani. Guði sé lof ;) ekki leiðindavani. Ég ætla því að halda upp á hátíð ljóss og friðar með góðri samvisku. Taka mér smá frí frá skólanum og gefa Ingþóri jólagjöf.

Ég trúi allavega á jólasveina :) nóg til að fá stundum í skóinn!

Olla Z (IP-tala skráð) 15.12.2007 kl. 11:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband