Þriðja leiðin - hvað með þá fjórðu

Stefán Máni, rithöfundur, skrifar grein í Fréttablaðið í dag og kynnir þar þriðju leiðina í sölu áfengis.  Hann er á móti ríkisreknum verslunum því hann er talsmaður frjálsrar verslunar, þess vegna stingur hann niður penna og fram kemur þriðja leiðin.

Ég er sammála honum um að vín í matvörubúðir er ekki góður kostur.  Þar nefnir hann sérstaklega aukið aðgengi, en ég vil líka bæta við að þá muni úrvalið minnka.  Samlíkingin hans við nammibarina er líka mjög góð.

Nú, í greininni færir hann rök fyrir því hvernig hann vilji sjá þetta í framtíðinni.  Einkareknar áfengisverslanir, sem eru háðar ströngum skilyrðum, það yrðu gefin út ákveðin mörg leyfi sem yrðu seld dýrum dómi hæstbjóðenda.  Aðeins ein búð í hvert hverfi, ein búð í hvern bæ.  Allt fyrir frelsið?

Ég held að með því að útfæra þetta á þennan hátt muni "ástandið" (sem að mínum dómi er bara nokkuð gott) ekkert batna.  Heldur muni þetta aðeins vekja upp enn meiri leiðindi en er í dag (reyndar verð ég ekki mikið var við þessi leiðindi, nema þá helst hjá einstaka þingmanni og í Vefþjóðviljanum). 

Hvers vegna ætti Jón Jóhannesson að geta keypt öll leyfi til að selja áfengi í krafti þessa að hafa nægt fé á milli handanna á meðan Jón Jónson getur það ekki.  Þó hefur Jón Jónsson áhuga, þekkingu og eldmóð til að takast á við þetta en skortir pening.  Jón Jóhannesson hefur peninginn en bara áhuga á að græða á þessu.  Í hverju felst þá þetta frelsi?

Stefán Máni er þess fullviss að áfengi sé eitur og því þurfi að stíga varlega niður.  Er þá ekki farsælast að láta ríkið (okkur öll) standa í þessu, en ekki að einhverjir útvaldir séu kallaðir til, til þess að græða á þessu.

Ég vil frekar fara leið Baggalútsmanna, það mætti kalla hana fjórðu leiðina.  Fá matvöru í vínbúðirnar.  Takk fyrir.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég er svo sammála fjórðu leiðinni.
Var í vínbúðinni í Smáranum fyrir nákvæmlega viku (eftir 2 daga) og þar var ég búin að standa í röð í 20 mínútur þegar ég fattaði allt í einu að mig vantaði svakalega samloku með rækjusalati og niðursoðna fláða tómata.
Hefði nú bara ekki verið dásamlegt að geta bara kippt því með og borgað allt í einu, í staðinn fyrir að þurfa að dröslast inní Hagkaup og hanga þar í aðrar 20 mínútur.
Bara bull.

Kveðja Hulla

Hulla (IP-tala skráð) 14.11.2007 kl. 20:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband