La Primavera

Við Kristín fórum á La Primavera á laugardaginn fyrir viku.   Gerðum þar sérlega vel við okkur í mat og drykk, annað ekki hægt þegar þegar okkur bauðst þetta tækifæri og ekki síður þá býður staðurinn upp á það að hafa það gott.

Í forrétt fékk Kristín sér Carpaccio.  Klassískur ítalskur forréttur sem alltaf stendur fyrir sínu.  Alveg frábær.  Ég fékk mér sterkkryddaða fiskisúpu.  Hún var alveg ágæt.  Gott bragð en þó fannst mér eins og það vantaði punktinn yfir i-ið.  Með þessu drukkum við Sauvignon blanc, Vie di Romans Vieris '05.   Ilmríkt og gott vín með þægilegu og góðu eftirbragði.  Það var ánægjulegt að okkur var boðið að hafa flöskuna hjá okkur á borðinu í stað þess að ofkæla vínið í kælifötu.

Í aðalrétt fengum við okkur bæði hreindýr með ofnbakaðri fíkju vafinni inní parmaskinku ásamt súkkulaði gorgonzola sósu.  Við vorum sammála um að valið var gott.  Kjötið hreinlega bráðnaði í munninum.  Villibráðarbragðið naut sín til fulls.   Sætur keimur fíkjunnar sem þó hafði léttsaltan kem skinkunnar tónaði vel við.  Ýtti svo undir alltsaman.  Við vorum flott á því og fengum okkur Isole e Olena Cepparello '03 með þessu.  Vínið stóð fyllilega undir væntingum.  Þétt og byggði vel undir matinn. 

Í eftirrétt fékk Kristín sér súkkulaðiköku en ég tiramizu.  Með því fengum við okkur Vin Santo frá Isole e Olena.  Dásemd.

Þetta kvöld var frábært.  Góður matur + góð vín + góð þjónusta = frábært. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það má nú aldeilis fyrrvera ! Þvílík og önnur eins vín sem þið voruð að slurpa í ykkur, fékk bara vatn í munninn við lesturinn. En,, þú misstir af Cepparello, 94,95,96,97,98,99,2000,01,02,03 og 04 í gær með skemmtilegri umsögn Paolos sjálfs. Skildist reyndar að þú hefðir verið hálf ruglaður af því að sniffa lakk sem er langtum leiðinlegra en að dreka góð vín.  chiao bella mussolini milano !

Addi.

addi (IP-tala skráð) 19.11.2007 kl. 16:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband