Sunnudagur, 14. október 2007
Sparnaður
Ein hagfræðin, eða kannski réttara sagt, ein gerð sparnaðar er sú að kaupa ódýrari vöru í stað dýrari. Það er alveg með ólíkindum hvað hægt er að spara með því einu. Þannig hugsaði ég með mér þegar ég gekk út úr versluninni Mótorsí dag. Þangað hafði ég farið til að láta mig dreyma um fagra fáka. Harley Davidson. Ég vissi þá að ég gæti ekki með neinum almennilegum rökum sannfært minn betri helming um slík kaup, því í fyrsta lagi var áhuginn á mótorhjólum að kvikna hjá mér núna þetta haustið. Þó vissulega hefur hefur mótorhjólaáhugi kraumað undirniðri í mörg ár. Og í öðru lagi þá kostar Harley Davidson óheyrilega mikla peninga. Þá spara ég bara. Einfaldasta hagfræði heimilanna er að vera ekki að sperra sig við að kaupa það dýrasta ef ódýrari hlutur er ekki síðri. Ég tel mér allavegana trú um að Honda Shadow 750csé mér full boðlegt og muni henta mér vel á allan hátt. Þar að auki er ótrúlega mikill verðmunur á Harley og Hondu. Ég kem til með að spara hundruð þúsunda króna við það eitt að kaupa Hondu, í stað Harley. Þannig lagið ég dæmið upp fyrir mína. Ég er enn að spá í hvað fór úrskeiðis hjá mér.
|
Athugasemdir
Flott nýja lúkkið á síðunni.
Bara að gera eins og Viggi - hann vann verk fyrir tengdapabba sinn og lét hann kaupa hjól handa sér í staðinn - held hann hafi svo sagt konunni að hann hafi bara getað fengið borgað í hjóli :)
Formaðurinn (IP-tala skráð) 15.10.2007 kl. 15:15
Skrítið, þetta er nákvæmlega sama aðferð og Anna Birgitta notar á mig þegar hún er að kaupa eitthvað og eini munurinn er sá að það fer aldrei úrskeiðis hjá henni. Ég sit bara eftir og skil ekki af hverju hefur ekki þykknað í buddunni
Annars þarf ég að fara taka upp meira svona þinn stíl í blogginu, þú ert mun gagnorðari en ég. Þetta tekur orðið allt of mikinn tíma hjá mér ;)
Addidas
Arnlaugur Helgason, 22.10.2007 kl. 15:56
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.