Mánudagur, 1. október 2007
Ísland, bezt í heimi
Það er nú, sem betur fer, margt sem ég get ómögulega skilið. Eitt af því er það að sækja tónleika með íslenskum flytjendum í útlöndum. Stuðmenn, Sálin, Garðar Thor, Diddú og nú síðast sjálfur Bó flykkjast til útlanda til að halda tónleika. Fyrir hverja? Jú, fyrir okkur vitleysingana sem rjúkum til og kaupum rándýra flugferð til London, Köben eða Hvertsemer til þess eins að fara á tónleika með samlöndum okkar.
Hvers vegna þarf að sækja vatnið yfir lækinn. Er ekki miklu skemmtilegra að sjá og upplifa eitthvað nýtt í útlöndum. Þetta er eins og að taka með sér harðfisk, hangikjöt og skyr þegar maður bregður sér út fyrir landssteinana. Ekki hægt að éta óþverrann sem þar er borinn á borð. Á sama hátt erum við að flykkjast út til að sjá Bó og Có. Bjánalegt.
Er þetta minnimáttarkennd hjá okkur? Ísland, bezt í heimi og allt það.!
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.