Upplýstur

Ég varð þess heiðurs aðnjótandi að taka leigubíl fyrir einhverjum misserum.  Þetta var þýðversk eðaldrossía af gerðinni Mercedes.  Það sem fór í taugarnar á mér var hvað bílstjórinn var spar á að nota stefnuljósin.  Þegar ég bar þetta upp á hann og setti þar með ofan í við hann, gaf hann þá  spekingslegu skýringu að hann þyrfti nú ekkert að nota þau.  Hann vissi alveg hvert hann væri að fara.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Helló Heiðar...

Kíkji stundum til þín án þess að kvitta - dónin ég.

Allavega þá er ég ekkert að gefa stefnuljós ef eru ekki bílar nálægt mér, því ég veit yfirleitt alltaf hvert ég er að fara.  
Stundum gef ég líka stefnuljós, en hætti svo við á síðustu stundu, þvíi ég ákveð að fara aðra leið og ÞAÐ ruglar aðra bílstjóra get ég sagt þér...

Langar til að setja link á þig inn á síðuna mína, er að safna R-nesingum og er komin með slatta.
Þú lætur mig bara vita ef þú ert á móti því...

Ha´det godt     Kveðja frá mér. Hulla

Hulla (IP-tala skráð) 28.9.2007 kl. 21:44

2 Smámynd: Heiðar Birnir

Ljúfan mín.... minn er heiðurinn.

Heiðar Birnir, 29.9.2007 kl. 21:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband