Mánudagur, 2. júlí 2007
Styttist og styttist
Jæja, nú styttist í Glerárdalshringinn, 24x24. Það er ekki laust við það að sé smá spenningur í loftinu, enda er það dálítið að ætla að ganga í 24 tíma, 50 kílómetra og um 4000 metra hækkun. Þrátt fyrir að hjóla rúma 20 kílómetra að minnsta kosti þrisvar í viku og ganga á Esju og Helgafell annað slagið. Birgja sig upp af ýmsum vítamínum steinefnum, omega 3 og lýsi. Þá er maður ekki viss hvort maður sé tilbúinn. Hvenær er maður svo sem til í svona vitleysu. Veit það ekki. Við leggjum alla vegana af stað með það fyrir augum að klára dæmið. Annað kemur ekki til greina. Þetta verður alveg magnað.
Athugasemdir
Þetta er harka, góða ferð, bara að hafa lýsispelan í vasanum og þá eru allir vegir færir.
Hvenar ætlar Þórólfara að koma til Bergen og ganga, það er ekki sniðugt hvað er mikið af gönguleiðum hérna. Kostar minna en að fara á Akureyri ! þetta þarf að taka fyrir á næsta fundi.
Kv Ingþór
Ingþór (IP-tala skráð) 3.7.2007 kl. 17:02
Ég er með hnút í mallanum !! Sjáumst á AK :)
gubbbbörg (IP-tala skráð) 5.7.2007 kl. 21:24
Ingþór....! Vonandi styttist í það að við fjölmennum til Bergen í göngur þar. Mér líst alla vega mjög vel á þá hugmynd. Vonandi kemur fljótlega að því.
Heiðar Birnir, 12.7.2007 kl. 09:46
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.